Morgunblaðið - 30.03.2021, Síða 26

Morgunblaðið - 30.03.2021, Síða 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. MARS 2021 Evrópudeild karla 16-liða úrslit, fyrri leikur: Kristianstad – Ademar León ............. 34:27 - Teitur Örn Einarsson skoraði 5 mörk fyrir Kristianstad en Ólafur Andrés Guð- mundsson var ekki í hópi. .$0-!)49, Spánn Estudiantes – Andorra ....................... 97:85 - Haukur Helgi Pálsson var ekki í leik- mannahóp Andorra. Staða efstu liða: Real Madrid 52, Barcelona 48, Baskonia 40, Tenerife 40, San Pablo Burgos 34, Valencia 34, Joventut Badalona 30, Unicaja Málaga 26, Andorra 24, Manresa 24. NBA-deildin Charlotte – Phoenix................... (frl.) 97:101 Toronto – Portland........................... 117:122 Denver – Atlanta .............................. 126:102 LA Lakers – Orlando........................... 96:93 Staðan í Austurdeild: Philadelphia 32/14, Brooklyn 31/15, Mil- waukee 29/16, New York 24/22, Charlotte 23/22, Atlanta 23/23, Boston 23/23, Miami 22/24, Indiana 21/23, Chicago 19/25, To- ronto 18/28, Cleveland 17/29, Washington 16/28, Orlando 15/31, Detroit 12/33. Staðan í Vesturdeild: Utah 34/11, Phoenix 31/14, Clippers 31/16, Lakers 30/17, Denver 28/18, Portland 28/ 18, San Antonio 23/20, Dallas 23/21, Memp- his 21/22, Golden State 22/24, Sacramento 21/25, New Orleans 20/25, Oklahoma City 19/26, Houston 13/32, Minnesota 11/35. 57+36!)49, Arnar Þór Viðarsson, þjálfari karlalandsliðsins í fótbolta, kallaði í gær fjóra leikmenn úr 21 árs lands- liðinu inn í A-landsliðshópinn fyrir leikinn gegn Liechtenstein annað kvöld. Þeir Jón Dagur Þor- steinsson, Willum Þór Willumsson, Sveinn Aron Guðjohnsen og Ísak Bergmann Jóhannesson leika því ekki með 21 árs liðinu gegn Frökk- um á EM í Ungverjalandi á morgun en þeir eru nú komnir til móts við A-liðið sem dvelur í Sviss og býr sig þar undir leikinn gegn Liechten- stein. Fjórir færðir yfir í hóp A-liðsins Ljósmynd/Szilvia Micheller Ferðalag Jón Dagur Þorsteinsson er kominn yfir í A-landsliðið. Teitur Örn Einarsson átti góðan leik fyrir Kristianstad þegar liðið vann sjö marka sigur gegn spænska liðinu Ademar León í fyrri leik lið- anna í sextán liða úrslitum Evr- ópudeildarinnar í handknattleik í Svíþjóð í gær. Leiknum lauk með 34:27-sigri Kristianstad en Teitur skoraði fimm mörk í leiknum og var á meðal markahæstu manna Kristianstad. Sænska liðið leiddi 16:14 í hálfleik en Ólafur Guð- mundsson lék ekki með Kristian- stad í leiknum. Síðari leikur liðanna fer fram í Kristianstad í kvöld. Sjö marka sigur í Evrópudeildinni Ljósmynd/Kristianstad Fimm Teitur Örn verður aftur í eld- línunni með Kristianstad í kvöld. LANDSLIÐIÐ Víðir Sigurðsson vs@mbl.is „Eftir þessa tvo ósigra gegn Þýska- landi og Armeníu er ljóst að ís- lenska liðið má ekki misstíga sig í leiknum í Liechtenstein. Þangað verður það að sækja þrjú stig og eftir það verður góður tími til að undirbúa liðið fyrir alla heimaleik- ina í haust,“ sagði Helgi Kolviðsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari Liech- tenstein í knatt- spyrnu og að- stoðarþjálfari íslenska karla- landsliðsins á ár- unum 2016 til 2018 við Morg- unblaðið í gær. Íslenska liðið kom í gær til Sviss frá Arme- níu og býr sig þar undir leikinn sem fram fer í Vaduz, höfuðstað Liechtenstein, annað kvöld. Heima- menn í Liechtenstein fengu skell í Norður-Makedóníu, 5:0, á sunnu- daginn og höfðu áður tapað 0:1 fyrir Armeníu á heimavelli síðasta mið- vikudag. Hafa lítið spilað í heilt ár Helgi sagði að undirbúningurinn hjá Liechtenstein hefði verið erfiður fyrir þessa landsleiki. „Vandamál þeirra er að flestir leikmannanna spila í áhugamannadeildum í Sviss og þar hefur keppni legið niðri í nánast eitt ár vegna kórónuveir- unnar. Það sem hefur bjargað mál- unum er að landsliðið mátti æfa, það telst vera á atvinnustigi, og þar með hefur nýi þjálfarinn getað verið með þá landsliðsmenn sem ekki eru at- vinnumenn á æfingum þrisvar til fjórum sinnum í viku síðan í janúar. Þeir eru því í þokkalegri æfingu en vantar leikformið og fyrir lið með litla breidd eins og Liechtenstein er afar erfitt að spila þrjá leiki á sex dögum. Sú staða kom líka upp þeg- ar ég var með liðið og þá voru strákarnir þokkalega búnir á því í þriðja og síðasta leiknum,“ sagði Helgi en tók fram að það þyrfti eftir sem áður að vara sig á liði fursta- dæmisins. Eru með hættulega stráka „Þeir hafa spilað fimm manna vörn að undanförnu og lítið reynt að sækja. En þeir geta verið mjög vel skipulagðir í sínum varnarleik og eru líka með hættulega stráka sem geta refsað liðum og skorað ef þeir fá svæði til að hlaupa í. Varnarleik- urinn gegn þeim þarf því að vera skipulagður og agaður, og íslenska liðið þarf að sýna mikla þolinmæði í þessum leik í Vaduz,“ sagði Helgi. Hann fylgdist með íslenska liðinu í tapleikjunum í Þýskalandi og Armeníu. „Það er að sjálfsögðu mik- il pressa að byrja mótið á þremur útileikjum og þeim fyrsta í Þýska- landi. Það var ekki beint óskabyrjun að fá á sig tvö mörk á fyrstu sjö mínútunum gegn Þjóðverjum, það gat varla verið verra. En það er engin skömm að tapa 3:0 fyrir Þýskalandi á útivelli, enda eru því- lík gæði í þýska liðinu. Virðing fyrir íslenska liðinu Það var slæmt að tapa í Armeníu en við vissum fyrirfram að Armenar hafa staðið sig vel að undanförnu, t.d. í Þjóðadeildinni. Ég spilaði tvisvar gegn þeim þegar ég var með lið Liechtenstein og það er aldrei auðvelt að spila í Armeníu. Bosn- íumenn steinlágu til dæmis gegn þeim þar. Þegar ég kom til Armeníu var ljóst að þeir báru gríðarlega mikla virðingu fyrir íslenska lands- liðinu og spurðu mig mikið út í það. Það var alveg ljóst að þeir höfðu Ís- land sem fyrirmynd og voru meira að segja með víkingaklappið. Frammistaða íslenska liðsins á EM og HM var mikill innblástur fyrir Armena og fleiri smærri þjóðir í Evrópu, það er alveg á hreinu. Og við sáum líka í leikslok hve rosalega þeir fögnuðu þessum sigri gegn Ís- landi, hve mikla þýðingu hann hafði fyrir þá,“ sagði Helgi. Slæmt að vera án Gylfa Hann telur að þrátt fyrir ósigrana séu enn allir möguleikar fyrir hendi í baráttunni um sæti í lokakeppni heimsmeistaramótsins í Katar. „Við verðum að horfa á riðilinn í heild. Ísland, Norður-Makedónía, Rúmenía og Armenía eiga eftir að taka stig hvert af öðru og ekkert lið mun sækja auðveld stig til Armeníu, það er alveg ljóst. Þessi leikur í Jer- evan var þannig að það blasti við að liðið sem skoraði á undan myndi vinna leikinn. Við sáum líka hversu slæmt það er fyrir íslenska liðið að vera án Gylfa. Hann getur alltaf búið til eitt- hvað aukalega í svona leikjum og það er erfitt að fylla hans skarð. Styrkleikar íslenska liðsins hafa annars verið fólgnir í því að vera vel skipulagðir og þéttir í varn- arleiknum, og svo hafa Gylfi, Jói og fleiri getað gert útslagið og skorað mörk þegar á þarf að halda. Í þess- um leik gættu okkar menn sín ekki nógu vel á því að Armenar eru með góða og flinka skotmenn sem alltaf þarf að loka á. Þegar þeir skoruðu mörkin tvö voru okkar menn einu skrefi á eftir þeim. En svona er fótboltinn. Það er ekkert svartnætti í gangi þótt þess- ir tveir leikir hafi tapast og fleiri lið í þessum riðli eiga eftir að tapa stig- um í Armeníu. Þetta er ekki gott en alls ekki búið. Ísland á eftir sem áð- ur fullt af efnilegum strákum og framtíðin er björt,“ sagði Helgi Kol- viðsson. Ekkert svartnætti þótt tveir leikir hafi tapast - Íslenska liðið má ekki misstíga sig í Liechtenstein, segir Helgi Kolviðsson AFP Landsliðið Arnór Sigurðsson í baráttu við leikmann Armeníu í Jerevan en hann er yngstur þeirra sem hafa spilað fyrstu tvo leikina í ferðinni. Bræðurnir Yanik Frick og Noah Frick verða væntanlega báðir í liði Liech- tenstein sem tekur á móti Íslandi í undankeppni HM í knattspyrnu í Vaduz annað kvöld. Faðir þeirra, Mario Frick, er þekktasti leikmaðurinn í sögu Liechtenstein, lék 125 landsleiki og er langmarkahæstur frá upphafi með 16 mörk. „Super-Mario“, eins og hann var kallaður, lék með sterkum liðum í Sviss og á Ítalíu og skoraði einmitt eitt marka liðsins þegar liðið skellti ís- lenska liðinu 3:0 í undankeppni EM haustið 2007. „Strákarnir eru báðir mjög frískir, og leika sem atvinnumenn í Sviss og Þýskalandi. Sá yngri er bara 19 ára en er stór og mjög efnilegur. Hinn er eldfljótur, líklega fljótasti leikmaður liðsins,“ sagði Helgi Kolviðsson um piltana sem voru undir hans stjórn í landsliði Liechtenstein á síðasta ári. Sjálfur er Mario Frick í dag knattspyrnustjóri Vaduz, eina atvinnuliðs Liechtenstein, en það leikur í svissnesku A-deildinni. Skoraði gegn Íslandi og á tvo stráka í liðinu í dag _ Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í knatt- spyrnu, hefur dregið sig úr landsliðs- hópnum sem mætir Ítalíu í vin- áttulandsleik á Ítalíu hinn 13. apríl. Sara Björk er að glíma við meiðsli og hefur Karítast Tómasdóttir, leikmaður Breiðabliks, verið kölluð inn í hópinn í stað hennar. Sara er leikjahæsta lands- liðskona Íslands með 136 landsleiki en í þessum leikjum hefur hún skorað 22 mörk. _ Sigurvin Ólafsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari KR í knattspyrnu en Rúnar Kristinsson er þjálfari liðsins. Sigurvin tekur við starfinu af Bjarna Guðjónssyni sem tók við U19 ára liði Norrköping í Svíþjóð á dögunum. Sigurvin þekkir vel til í Vesturbænum eftir að hafa spilað með liðinu frá 2000 til 2005 en hann varð tvívegis Íslands- meistari með ÍBV á ferlinum, tvívegis með KR og einu sinni með FH. Hann lék einnig sem atvinnumaður með Stuttgart í Þýskalandi og þá á hann að baki sjö A-landsleiki. Þá mun Sigurvin áfram þjálfa KV í 2. deildinni, ásamt því að vera yfirþjálfari karlaflokka hjá KR. _ Sergio Agüero, markahæsti leik- maður í sögu enska knattspyrnufélags- ins Manchester City, mun yfirgefa fé- lagið þegar samningur hans rennur út í sumar. Agüero, sem er orðinn 32 ára gamall, gekk til liðs við City frá Atlético Madrid árið 2011 en enska félagið borg- aði 35 milljónir punda fyrir leikmanninn á sínum tíma. Framherjinn hefur skorað 257 mörk fyrir félagið í 384 leikjum en hann hefur fjórum sinnum orðið Eng- landsmeistari með City, einu sinni bik- armeistari og fimm sinnum deildabik- armeistari. Eitt ogannað Helgi Kolviðsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.