Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.03.2021, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.03.2021, Blaðsíða 15
bæði Eþíópía og Úganda farið betur út úr far- aldrinum en margar aðrar þjóðir með tilliti til veikinda og dauðsfalla. Aðgerðir sem gripið hefur verið til í því augnamiði að stemma stigu við útbreiðslu veirunnar hafi á hinn bóginn komið hart niður á mörgum íbúum þessara ríkja. Til dæmis hafi lítið verið um markaði undanfarna mánuði með tilheyrandi tekjufalli fyrir marga. Til að bæta gráu ofan á svart hafa bæði engisprettufaraldur og þurrkar herjað á Sómalífylki. Að sögn Bjarna hefur hægt mjög á verk- menntuninni í Úganda vegna veirunnar en á hinn bóginn hefur gengið ágætlega að grafa fyrir brunnum og vatnsþróm í Eþíópíu. Þá hef- ur starfsfólk Hjálparstarfs kirkjunnar verið duglegt að taka þátt í fræðslu og vörnum gegn kórónuveirunni. „Ég er bjartsýnn á að við för- um að sjá eðlilegri starfsemi seinna á þessu ári eða í byrjun þess næsta.“ Bjarni segir stefnt að áframhaldandi starf- semi í bæði Eþíópíu og Úganda. Verkefnið í Eþíópíu er til næstu fjögurra ára og núver- andi verkefni í Úganda á að ljúka í lok árs 2023. „Við vonumst til að halda okkar starfi áfram lengi eftir það enda höfum við átt í frá- bæru samstarfi við utanríkis- og þróun- arsamvinnuráðuneytið, auk þess sem al- menningur sýnir þessu starfi bæði skilning og stuðning sem hefur bara aukist meðan veiran hefur geisað. Fyrir það erum við æv- inlega þakklát.“ Sýningunni á myndum Þorkels lýkur í Smáralindinni í dag, sunnudag.Ljósmyndir/Þorkell Þorkelsson Það er leikur að læra. Glaðbeitt börn á skólabekk í Eþíópíu. Konur dæla vatni úr brunni í Sómalífylki. Tilkoma brunnsins hefur sparað þeim ófá sporin en áður gat tekið þrjá til fjóra tíma að ganga eftir vatni. 14.3. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15 BOÐNIR ERU TIL SÖLU V/S KLAKKUR ÍS-903 OG V/B HALLDÓR SIGURÐSSON ÍS-14 ÁSAMT AFLAHLUTDEILDUM. Klakkur ÍS-903 (sknr. 1472) er stálskip, smíðað árið 1977 og skráð í Lloyd‘s klassa. Skipið er vel tækjum búið til tveggja trolla veiða á rækju og bolfiski. Aflahlutdeildir í úthafsrækju (7,05%) og rækju (10,09%) við Snæfellsnes. Halldór Sigurðsson ÍS-14 (sknr. 1403) er stálskip, smíðað árið 1974. Skipið er vel tækjum búið til veiða með rækjutrolli, fiskitrolli og dragnót. Aflahlutdeildir í rækju í Ísafjarðardjúpi (30,58%), rækju við Breiðafjörð (100%) auk minniháttar hlutdeildar í Löngu, Keilu og Skötusel. Jóhann M. Ólafsson, löggiltur skipasali, veitir áhugasömum allar frekari upplýsingar í síma 460-4700. Tilboð skulu berast fyrir kl. 16:00, föstudaginn 19. mars 2021 á netfangið: iv@iv.is.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.