Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.03.2021, Page 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.03.2021, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.3. 2021 LESBÓK HRÖKKBRAUÐ ÁREITI Sænska poppstjarnan Zara Larsson, sem sló í gegn mjög ung, segir viðmót flestra karla sem störfuðu í kringum hana hafa breyst daginn sem hún varð átján ára. „Almáttugur hvað það breytti miklu. Það var sturlað. Skyndilega voru menn, sem voru mun eldri en ég og ég hafði litið upp til, farnir að tjá sig um líkama minn. Eða: „Á hvaða hóteli ertu? Númer hvað er herbergið?“ Ég var bara: „Hver andskotinn!“ Ég er vilja- sterk að upplagi en samt vissi ég ekki hvernig ég átti að bregðast við þessu áreiti,“ segir hún í samtali við breska blaðið The Independent. Larsson, sem er 23 ára í dag, seg- ir stöðuna hafa skánað og þakkar það öðru fremur #metoo-byltingunni. Hún segir atvikin hafa verið misalvarleg en brotaviljinn hafi jafnan verið skýr. „Á hvaða hóteli ertu?“ AFP BÍÓ Ísland bíóland nefnast nýir sjónvarps- þættir í tíu hlutum sem Ríkissjónvarpið hefur sýningar á í kvöld, sunnudagskvöld. Fyrsti þátturinn hefur yfirskriftina Löng fæðing. „Í kvikmyndum frá fyrri hluta 20. aldar og fram undir lok 6. áratugarins má sjá löngun til að takast á við þetta nýja tjáningarform af bjart- sýni og áræði en einnig erfiðar aðstæður og brostna drauma,“ segir í kynningu. Rýnt er meðal annars í myndirnar Fjalla-Eyvind, Sögu Borgarættarinnar, Ævintýri Jóns og Gvendar, Höddu Pöddu, Björgunarafrekið við Látrabjarg, Milli fjalls og fjöru, Síðasta bæinn í dalnum, Ágirnd og Sölku Völku. Tekist á við nýtt tjáningarform Úr kvikmyndinni Sölku Völku frá árinu 1954. Stilla Eddie Murphy leikur Akeem kóng. Snýr aftur til Ameríku FRAMHALD Gamanmyndin Com- ing 2 America var frumsýnd í Bandaríkjunum í byrjun mánaðar- ins en hún er, svo sem nafnið gefur til kynna, framhald hinnar vinsælu Coming to America frá 1988. Eddie Murphy snýr aftur sem Akeem prins af Zamunda sem í byrjun myndarinnar tekur við krúninni eftir föður sinn. Á dánarbeðinum upplýsir faðir hans Akeem um það að hann eigi launson í New York sem hann verði tafarlaust að finna svo þráðurinn rofni ekki en Akeem á aðeins dætur með eiginkonu sinni. Arsenio Hall snýr einnig aft- ur og af öðrum leikurum má nefna Wesley Snipes, Morgan Freeman, Jermaine Fowler og Gladys Knight. Öll þekkjum við Sex Pistols,Duran Duran og Guns N’Roses. Þrjú gjörólík bönd sem öll voru leiðandi á sínu sviði dægurtónlistar, pönki, nýbylgju- poppi og hörðu rokki, á áttunda og níunda áratugi seinustu aldar. Tvö þau síðastnefndu halda meira að segja enn velli. Hitt er sjaldgæfara, að sjá þessi bönd nefnd í sömu andrá eins og ég leyfi mér að gera hér – og er sjálfsagt þegar búinn að ganga svo hressilega fram af einhverjum að þeir eru steinhættir að lesa. Þeir missa þá af þeim tíðindum, hafi þeir ekki vitað það fyrir, að þessi ágætu bönd eiga sér mjög ákveðinn snerti- flöt. Það er hljómsveitin Neurotic Outsiders sem starfaði um skamma hríð á tíunda áratugnum með menn úr téðum böndum innanborðs. Ég verð að viðurkenna að ég man ekkert eftir þessu bandi, rakst bara á þessa staðreynd þegar ég var að gúgla Steve Jones, gítarleikara Pist- ols, í hálfkæringi á dögunum og fann mig knúinn til að deila þessu með ykkur. Það er eitthvað skemmtilega galið við Neurotic Outsiders. Utan- garðsmenn á nálum, gæti það útlagst á hinu ástkæra ylhýra, ekki satt? Ruglið þeim alls ekki saman við okk- ar eigin Utangarðsmenn, Bubba, Pollockana og þá, sem á sinni tíð voru geislavirkir. Bubbi hefði svo sem tek- ið sig vel út í Neurotic Outsiders en því miður hafði enginn rænu á að bjalla í hann. Svo við byrjum nú bara á byrjun- inni þá var Jones alls ekki í bandinu í upphafi; hryndeildin úr Guns N’ Ro- ses, Matt Sorum og Duff McKagan, stofnuðu það ásamt söngvaranum geðþekka Billy Idol og gítarleikar- anum Steve Stevens. Ekki lækkar sýrustigið við það – enda þótt sú liðs- skipan gangi á margan hátt betur upp. Þegar bandið var upphaflega Steve Jones, lengst til hægri, ásamt félögum sín- um í Sex Pistols árið 1977. Utangarðs- menn á nálum Hver man ekki eftir ofurbandinu Neurotic Out- siders sem starfaði um hríð á tíunda áratugnum og stóð saman af mönnum úr gjörólíkum áttum? Tja, ekki ég. Þannig að ég lagðist í rannsóknir. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is John Taylor í banastuði á tónleikum Duran Duran í Egilshöll árið 2005. Morgunblaðið/Árni Torfason Matt Sorum og Duff McKagan eru frægastir fyrir veru sína í Guns N’ Roses. AFP Margt breyttist þegar Zara Lars- son varð átján ára.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.