Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.03.2021, Side 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.03.2021, Side 32
Uppskera sjaldséðra fiska var heldur rýr á Íslandsmiðum á árinu 1970. Sá sjaldgæfasti af þeim sex tegundum, sem Haf- rannsóknastofnunin fékk til rannsóknar það árið, var slóans- gelgja og var það þriðji fiskur þessarar tegundar, sem sögur fóru af hér við land. Þetta kom fram í grein eftir Gunnar Jóns- son fiskifræðing í Ægi, riti Fiski- félags Íslands, sem Morgun- blaðið vitnaði til í frétt á þessum degi árið 1971. Slóans-gelgjuna fékk V/s Jökull ÞH 14. nóvember á 146 metra dýpi syðst á Papagrunni. Fiskur- inn, sem var 28 sm, kom upp úr ufsa. „Tvær fyrri slóansgelgjur hér við land voru báðar minni en sú, sem V/s Jökull fékk. Þann l6. febrúar fannst ein 10 sm löng rekin við Hornafjarðarós og önnur veiddist 1952 um 80-100 sjómílur vestur af Snæfellsnesi. Var sú 23 sm löng.“ Hinir sjaldgæfu fiskarnir fimm sem Gunnar gat um í grein sinni voru álsnípa, keilubróðir, svart- hveðnir, gráröndungur og sand- hverfa. Þá veiddist 80 sm löng sæsteinsuga við Surtsey á árinu 1970. GAMLA FRÉTTIN Slóans-gelgja veiddist á Papagrunni Heimkynni slóans-gelgjunnar eru beggja vegna Norður-Atlantshafs- ins, í Miðjarðarhafi, austanverðu Suður-Atlantshafi og Indlandshafi. SUNNUDAGUR 14. MARS 2021 Suðurlandsbraut 24 108 Reykjavík Sími 554 6969 lur@lur.is • lur.is Verið velkomin í heimsókn Mikið úrval hvíldarstóla fyrir alla Hvíldin byrjar í LÚR LÁTTU ÞÉR LÍÐA VEL Hver hefði trúað því að fjölmennustu tónleikar í heimi ættu eftir að verða haldnir á Íslandi? Einmitt það átti sér stað á dögunum, alltént lét listamaðurinn sem kom fram á téðum tónleikum, Vík- ingur Heiðar Ólafsson píanóvirtúós, í það skína í samtölum við fjölmiðla. Ugglaust hafa ófáir litið Víking öfundaraugum enda bíða tónlistarmenn um heim allan, klassískir og rokkarar, eftir því með öndina í hálsinum að komast aftur á túr. Einn þeirra er Paul Stanley, söngvari og gítarleikari gömlu glyströllanna í Kiss, en hann leit við í spjall á Beinastöðinni (e. 107,7 The Bone) vestur í Bandaríkjunum í vikunni. „Rokk- tónleikar eins og við höldum þá – í tónleikahöllum eða á íþrótta- leikvöngum – eru ekki í sjónmáli. Allir sem halda að þeir séu á leiðinni á stóra tónleika á næstunni lifa í blekkingu,“ sagði Stanley sem staðfesti þó að Kiss myndi hugsa sér til hreyfings þegar það verður óhætt og klára lokalokalokatúr sinn. Paul Stanley á tónleikum í Staples Center í Los Ang- eles fyrir réttu ári. Síðan hefur Kiss verið í vari. AFP Enn munu túrar lúra Víkingur Heiðar Ólafsson leikur fyrir fleiri áheyr- endur en kapparnir í Kiss um þessar mundir. Morgunblaðið/Einar Falur Sjaldan hafa eins margir eins víða beðið með óþreyju eftir því að komast á túr ÞRÍFARAR VIKUNNAR Ronald D. Moore handritshöfundur og framleiðandi Árni Þórarinsson rithöfundur Hjalti Már Björnsson læknir

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.