Fréttablaðið - 23.07.2021, Síða 1

Fréttablaðið - 23.07.2021, Síða 1
f r e t t a b l a d i d . i sf r e t t a b l a d i d . i s 1 4 3 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R F Ö S T U D A G U R 2 3 . J Ú L Í 2 0 2 1 HVAR & HVENÆR SEM ER Vefsýningarsalurinn okkar er alltaf opinn! www.hekla.is HEKLA · Laugavegur 170 · Sími 590 5000 · www.hekla.is Í sumar er opið alla virka daga hjá HEKLU á Laugavegi og Kletthálsi en lokað er á laugardögum. Škoda Enyaq iV Verð frá 5.790.000 kr. Ungir fimleikapiltar léku listir sínar í veðurblíðunni á Akureyri þegar þeir gengu á höndum niður kirkjutröppurnar. Þeir voru léttklæddir við gönguna enda ekkert lát á veðurblíðunni fyrir norðan. Þetta var þó ekki aðeins sýning því piltarnir voru um leið að safna styrkjum fyrir Píeta samtökin sem sinna forvarnarstarfi gegn sjálfsvígum og sjálfsskaða. MYND/RAKEL ÓSK SIGURÐARDÓTTIR Yfirlæknir á ónæmisfræðideild Landspítalans segir nýja rann- sókn sýna að vernd bóluefna gagnvart Delta-afbrigðinu sé mun betri en í fyrstu var talið. Hann segir að aukin þekking á mótefnasvari líkamans gegn Covid-19 geti nýst til að breyta bóluefnum með litlum fyrirvara eins og gert er með flensu sprautu ár hvert. odduraevar@frettabladid.is COVID-19 Rannsókn sem birtist í New England Journal of Medicine í gær gefur til kynna að mikið gagn sé að bóluefnum Pfizer og Astra- Zeneca gegn sjúkdómseinkennum sem Delta-afbrigðið veldur, þvert á niðurstöður frumrannsókna. „Auðvitað hefði maður viljað að bóluefnin kæmu í veg fyrir meira smit en megintilgangurinn með bóluefnunum er fyrst og fremst að koma í veg fyrir sjúkdóma, ekki endilega smit,“ segir Björn Rúnar Lúðvíksson, yfirlæknir á ónæmis- fræðideild Landspítalans. Rann- sóknin sýni ótvírætt að bólusettir smiti margfalt minna en óbólusett- ir. „Þessi rannsókn sýnir að munur- inn er minni en við héldum fyrst,“ segir Björn og vísar til virkni bólu- efnanna gegn Delta. „Núna er virkn- in 94 prósent ef þú ert með Pfizer, fullbólusettur gegn sjúkdómsein- kennum. Ekki af því að smitast, heldur að fá Covid-sjúkdóminn. Virknin er 88 prósent fyrir Delta- afbrigðinu,“ segir Björn. Munurinn sé ekki nema sex prósent. „Það eru sláandi niðurstöður,“ segir hann. Niðurstöðurnar séu töluvert betri en vísindamenn hafi þorað að vona vegna Delta. Aðspurður segir Björn leitina enn standa yfir að hinu rétta mótefna- svari gegn Covid-19, sem þá geti nýst til að breyta bóluefnum með litlum fyrirvara eins og gert er með flensusprautu ár hvert. „Það er hinn heilagi kaleikur í þessu,“ segir Björn. Leitin hafi staðið í langan tíma en þetta sé meðal annars rannsakað, af ónæmisfræðideild Landspítalans, í þeim sem smitast hafa af veirunni. „Svo eru stórar rannsóknir í gangi núna á bólusettum til að bera saman þessa þætti. Það er að segja: Eru einhver ákveðin mörk eða teg- und ónæmissvars sem segir til um það hversu mikla vernd þú hefur gegn sjúkdómnum, ef þú lendir í smiti?“ útskýrir Björn. SJÁ SÍÐU 8 Vörnin gegn Delta meiri en talið var Þessi rannsókn sýnir að munurinn er minni en við héldum fyrst. Björn Rúnar Lúðvíksson, yfirlæknir á ónæmisfræði- deild Land- spítalans. adalheidur@frettabladid.is COVID-19 Búist er við að ráðherra- nefnd innan ríkisstjórnarinnar fundi um hertar aðgerðir innan- lands nú fyrir hádegi. Ekki lá fyrir hvernig fundi ríkisstjórnarinnar um aðgerðir yrði nákvæmlega háttað, þegar Fréttablaðið fór í prentun. Þórólfur Guðnason sóttvarna- læknir skilaði minnisblaði með til- lögum til heilbrigðisráðherra í gær og gert er ráð fyrir að tilkynnt verði um hertar aðgerðir í dag. Í fyrradag greind ust 78 Co vid-smit inn an lands og 56 daginn þar á undan. Faraldurinn er í veldisvexti. Landspítalinn er nú á hættustigi. Þar liggja tveir á smitsjúkdómadeild og 301 einstaklingur er í eftirliti á göngudeild, þar af 25 börn. n Herða á aðgerðir innanlands í dag

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.