Fréttablaðið - 23.07.2021, Qupperneq 32
RITSTJÓRN
ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD
auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN
Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 550 5000
FRÉTTIR, FÓLK &
MENNING
á Hringbraut
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
AFGREIÐSLUTÍMI
Mán.–fös. 11–18 | Lau. 11–16
www.betrabak.is
ALLT AÐ 60% AFSLÁTTUR
SUMARÚTSALA
BETRA BAKS
SUMARÚTSALAN E
R Í FULLU FJÖRI!
STILLANLEG RÚM | HEILSURÚM OG -DÝNUR | GAFLAR | SÆNGUR | KODDAR | SVEFNSÓFAR | STÓLAR | SÆNGURFÖT, O.FL.
Jóhönnu Vigdísar
Guðmundsdóttur
n Bakþankar
Hvernig líður okkur þegar ein-
staklingur sem við lítum upp til
er sakaður um að brjóta af sér?
Ég verð að viðurkenna að ég er í
einhvers konar áfalli. Ég er leið,
eiginlega sorgmædd, og ég vona
að þær sakir sem eru bornar
upp á þjóðhetjuna okkar, fyrir-
mynd barnanna okkar, eigi
ekki við rök að styðjast. Ég vil í
það minnsta ekki trúa þeim.
Rithöfundurinn C.S. Lewis
sagði að afneitunin væri
dempari sálarinnar, vegna
þess að hún verndar okkur
þar til við erum tilbúin til að
takast á við raunveruleikann.
Er þessi afneitun gerendameð-
virkni? Í mörgum tilvikum, já.
Í tilviki þjóðhetjunnar okkar
hef ég ekki hugmynd um hvað
afneitun mín er yfirleitt. Ég veit
ekki hver raunveruleikinn er,
og er sannarlega ekki tilbúin
til að takast á við þá mynd sem
dregin er upp.
Ef hetjurnar okkar gera
eitthvað slæmt þurfum við
hins vegar f leiri bjargráð en
afneitunina til að takast á við
það. Við sem einstaklingar og
við sem samfélag. Bjargráðin
felast þó ekki í því að hlaupa
niður í geymslu og sækja
heykvíslarnar, finna til efnið í
bálköstinn og leita að stjak-
anum.
Ég er ekki með svarið. Við
getum hins vegar rýnt við-
brögð okkar og velt því fyrir
okkur hvaðan þau koma.
Skiljið heykvíslarnar eftir inni í
geymslu um leið og við munum
að of beldi fer ekki í mann-
greinarálit. Það ætla ég í það
minnsta að reyna. n
Demparar
sálarinnar