Fréttablaðið - 23.07.2021, Síða 20
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda
tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Þórey Skagfjörð Ólafsdóttir
lést á dvalarheimilinu Hlíð 15. júlí.
Útför hennar fer fram frá Akureyrar-
kirkju mánudaginn 26. júlí kl. 13.00.
Streymt verður frá athöfninni á
Facebooksíðunni Jarðarfarir í Akureyrarkirkju - beinar
útsendingar. Hjartans þakkir til starfsfólks á Víðihlíð
fyrir elskulegheit og góða umönnun.
Stefanía Þorsteinsdóttir Gísli Pálsson
Kristín J. Þorsteinsdóttir Kristinn F. Sigurharðarson
Sigrún Hrönn Þorsteinsdóttir Rögnvaldur Ólafsson
Ásdís Alda Þorsteinsdóttir Árni Þór Bjarnason
Ólöf Ásta Þorsteinsdóttir Sigurþór Guðmundsson
ömmu- og langömmubörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Hulda Elvý Helgadóttir
lést 8. júlí sl.
Útför hennar fer fram frá Fossvogs-
kirkju miðvikudaginn 28. júlí kl. 13.00.
Ásta Björk Ragnarsdóttir Guðmundur Guðnason
Helgi Ragnarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Hafdís Steingrímsdóttir
Fossvegi 6, Selfossi,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands
mánudaginn 19. júlí. Útförin fer fram í
Selfosskirkju mánudaginn 26. júlí
klukkan 13 og verður einnig streymt af vef kirkjunnar.
Helga Guðlaugsdóttir
Steingrímur K. Reynisson Svava Óla Stefánsdóttir
Kristbjörn Hafliðason
Guðmundur Hafliðason Elisabeth Pontoppidan
Valgerður Hafliðadóttir
Ólafur Hafliðason Jóna Þórunn Ragnarsdóttir
Steinn Hafliðason
Finnur Hafliðason Tinna Ósk Björnsdóttir
Friðjón Elli Hafliðason Jónheiður Ísleifsdóttir
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Valdimar Ritchie Samúelsson
flugvirki,
Kleifarási 3,
lést á Landspítalanum 21. júlí.
Jarðarför fer fram frá Árbæjarkirkju
fimmtudaginn 29. júlí kl. 15.
Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja minnast
hins látna er bent á Landsbjörg.
Guðrún Björnsdóttir
Hulda Guðrún Valdimarsdóttir Ragnar Páll Bjarnason
Harpa Valdimarsdóttir Ómar Einarsson
Elfa Hrönn Valdimarsdóttir Freyr Friðriksson
og barnabörn.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð
og vináttu við andlát og útför föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
Geirs Ólafs Oddssonar
húsasmíðameistara,
áður til heimilis að Nýhöfn 3, Garðabæ.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
Hrafnistu í Hafnarfirði fyrir góða umönnun og alúð.
Sigurður Ingi Geirsson Katrín Davíðsdóttir
Kristjana Geirsdóttir Tómas Freyr Marteinsson
Gunnar Þór Geirsson Elísabet Pálmadóttir
Arna Guðrún Geirsdóttir Ævar Björn Þorsteinsson
afa- og langafabörn.
Elsku hjartans maðurinn minn,
pabbi okkar, tengdapabbi og afi,
Guðjón Heiðar
Gunnbjörnsson
húsasmíðameistari,
Hólahjalla 2, Kópavogi,
lést á heimili sínu þriðjudaginn 13. júlí.
Útför fer fram frá Digraneskirkju þriðjudaginn 27. júlí kl. 13.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Heru
líknarheimaþjónustu og Krabbameinsfélagið.
Elínborg Sigvaldadóttir
Guðrún María Guðjónsdóttir Elías Mikael V. Siggeirsson
Hafsteinn Örn Guðjónsson
Ragnheiður Elín Guðjónsdóttir
Þórey Elísabet Elíasdóttir
Ástkær eiginmaður minn,
Eyþór Björgvinsson
læknir,
Kópavogstúni 9, Kópavogi,
lést á blóðlækningadeild Landspítala,
fimmtudaginn 22. júlí.
Útförin verður auglýst síðar.
Ágústa Benný Herbertsdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
stjúpmóðir, amma og langamma,
Katrín Jónsdóttir
Árskógum 6, Reykjavík,
lést þann 17. júlí á Hjúkrunarheimilinu
Grund. Útför hennar fer fram frá
Seljakirkju þriðjudaginn 27. júlí klukkan 13.
Streymt verður frá athöfninni á Seljakirkja.is.
Eyrún Magnúsdóttir
Andrés Magnússon Áslaug Gunnarsdóttir
Jón Magnússon Guðrún Bergþórsdóttir
Ásmundur Magnússon Ásdís Þrá Höskuldsdóttir
Steinunn S. Magnúsdóttir Jesper Madsen
Sæmundur Þ. Magnússon
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær systir okkar,
mágkona og frænka,
Elín Hjálmsdóttir
lést á Droplaugarstöðum
þriðjudaginn 20. júlí.
Guðbjörg Hjálmsdóttir
Guðrún María Hjálmsdóttir
Ólafína Hjálmsdóttir Guðmundur H. Sigmundsson
systkinabörn og fjölskyldur.
Listakonan Momom Hayashi
mun sameina japönsku og ori-
gami á barnaviðburði um helgina.
arnartomas@frettabladid.is
„Ég ætla að kynna aðeins japönsku fyrir
börnunum með alls kyns leikjum og
kenni þeim kannski að skrifa nafnið
sitt með japanska stafrófinu,“ segir lista-
konan og kennarinn Momo Hayashi sem
stýrir viðburðinum Stafróf heimsins og
origami í Borgarbókasafninu í Kringl-
unni á laugardag. „Það fer aðeins eftir
því hversu gamall hópurinn verður, en
við förum allavega í einhverja skemmti-
lega leiki.
Viðburðurinn er hluti af röðinni
Kakó Lingua þar sem börn á öllum
aldri geta kynnst nýjum tungumálum
í gegnum verkefni og leiki. Momo, sem
er upprunalega frá Kobe í Japan, talar
sjálf íslensku, ensku og japönsku. Hún
segir kunnáttu í ólíkum tungumálum
geta hjálpað börnum að sjá hlutina frá
ólíkum sjónarhornum.
„Ég vinn líka á leikskóla þar sem
maður getur séð að íslenskan er ekki
nóg,“ segir Momo. „Á Íslandi læra allir
að tala ensku, og svo eru margir sem
eru hálf-íslenskir og læra ungir annað
tungumál. Það er mikilvægt að sýna
virðingu fyrir öðrum tungumálum og
bakgrunnum.“
Auk þess að kafa í tungumálið ætlar
Momo líka að kenna börnunum ein-
faldar aðferðir í origami.
„Í Japan læra allir hvernig eigi að gera
origami í leik- og grunnskóla,“ segir
Momo. „Það er stór hluti af menning-
unni okkar og líka mjög skemmtilegt.
Ég kenni stundum börnunum í leik-
skólanum hérna heima origami og það
er mjög vinsælt.“
Ef leitað er að origami á vefnum má
sjá ótrúlegustu skúlptúra sem fólki
hefur tekist að búa til með pappírsbroti,
en Momo stefnir þó á að hafa hlutina
einfalda á laugardaginn. „Við byrjum
kannski á einni eða tveimur útgáfum
af einhverju einföldu, eins og kanínu og
hundi, en kannski gerum við f lóknari
hluti ef það gengur vel,“ segir hún. „Svo
er hægt að teikna á origami-fígúrurnar
sem getur líka verið gaman.“
Utan vinnu sinnar sem kennari er
Momo annar eigandi hönnunarversl-
unarinnar Svartbysvart við Týsgötu,
þar sem einmitt má finna eyrnalokka í
origami-stíl. „Það gengur bara mjög vel,
eða allavega ágætlega,“ segir Momo. „Það
var aðeins erfitt hjá okkur vegna Covid
og byggingarframkvæmda, en í dag eru
hlutirnir að ganga miklu betur.“
Viðburðurinn hefst klukkan 13.30 og
aðgangur er gjaldfrjáls. n
Fjör í origami og japönsku
Merkisatburðir
1183 Sturla Þórðarson, ættfaðir Sturlunga, andast 58 ára
gamall.
1985 Commodore kynnir borðtölvuna Amiga fyrst til
leiks.
1986 Konunglegt brúðkaup í Westminster í Bretlandi þar
sem Andrés prins gengur að eiga Söruh Ferguson.
2011 Amy Winehouse finnst látin í íbúð sinni af völdum
áfengiseitrunar.
2011 Fyrsta Druslugangan er haldin í Reykjavík.
Momo segir
að origami
veki mikla
lukku hjá
börnunum á
leikskólanum.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
Ég kenni stundum börn-
unum í leikskólanum
hérna heima origami og
það er mjög vinsælt.
TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 23. júlí 2021 FÖSTUDAGUR