Fréttablaðið - 23.07.2021, Blaðsíða 26
Mig langaði að tilfinn-
ingin væri eins og Júlía
hefði búið þessi lög til
inni í svefnherberginu
sínu. Bara á tölvuna
sína.
Í LOFTINU
Sækja frá
SÆKTU NÝJA APPIÐ!
LAUGARDAGA 16:00-18:30
VEISTU HVER ÉG VAR?
Salka Valsdóttir víkkar per-
sónu hinnar harmrænu Júlíu
og gefur henni um leið sterka
rödd og færi á að berja frá
sér með tónlist sinni fyrir
væntanlega uppfærslu Þjóð-
leikhússins á Rómeó og Júlíu.
Fyrsta lagið úr sýningunni,
sem kennt er við heitan kóng,
kom á Spotify í morgun.
Salka Valsdóttir, tónlistarstjóri
Rómeós og Júlíu, gefur hinni heitt-
elskuðu Júlíu rödd með tónlist sinni
fyrir fyrirhugaða uppfærslu Þjóð-
leikhússins á hinum sígilda harm-
leik Shakespeares. Fyrsta lagið úr
sýningunni, HEITI KING, er komið
á Spotify og allar helstu streymis-
veitur.
Laginu lýsir hún sem einhvers
konar „skærbleikum svefnherberg-
isslagara“ en nafnið vísar til heits
konungs. „Það heitir HEITI KING,
eins og „hot“ kóngur,“ segir Salka
og hlær.
„Í verkinu heyrist þetta bara
stuttu eftir svalasenuna. Stuttu eftir
fyrsta skiptið sem þau hittast og er
eiginlega bara fyrsta skiptið í verk-
inu þar sem hún hefur einhverja
von um að komast af þeim stað sem
hún er föst á,“ segir Salka um Júlíu,
Rómeó og forboðna ást þeirra.
„Allt þetta ferli er eiginlega búið
að vera mjög magnað og mjög
óvenjulegt hvernig leikstjórinn
ákvað að nálgast tónlistina. Vegna
þess að hann vildi hafa tvö tónskáld
og að annað þeirra væri eiginlega
bara að semja tónlist út frá persónu
Júlíu og hitt út frá persónu Rómeós,“
segir Salka um línurnar sem leik-
stjórinn Þorleifur Örn Arnarsson
lagði.
Rausið í Rómeó
„Það er mikil tónlist í þessu verki
og hún fær rosalega mikið pláss
og það er búið að vera sérstaklega
spennandi að vera á Júlíuhliðinni.
Allavegana fyrir mig vegna þess að í
verkinu er miklu, miklu minni tíma
eytt í hana og að hjálpa áhorfend-
unum að skilja hennar innri heim
og víkka hana í rauninni sem per-
sónu. Á meðan Rómeó fær alveg
heilar fimm, sex blaðsíður til að
rausa um sálarlíf sitt.
Þannig að það er í raun svo mikið
rými utan handrits á sviðinu og
áhugavert að þurfa að skálda, lesa
milli línanna og reyna að setja sig í
hennar spor. Víkka persónu hennar
og gera bara að þrívíðum karakter.
Og við höfum rosalega mikið náð að
gera það með tónlist. Sem er geggjað
spennandi,“ segir Salka sem vann
Júlía kýlir til baka með tónlistinni
Þórarinn
Þórarinsson
thorarinn
@frettabladid.is
tónlistina náið með Ebbu Katrínu
Finnsdóttur sem leikur Júlíu.
Ytra ofurefli
Salka segir hluta af þessari spennu
liggja í því að barátta Júlíu er allt
öðruvísi en Rómeós. „Hann er
svo mikið í slag við innri djöfla á
meðan hennar slagur er meira við
ytri aðstæður. Það er verið að þvinga
hana í hjónaband. Bara búið að ætla
henni eitt líf og það er að giftast fer-
tugum manni, unga út börnum og
eitthvað.
Þannig að hún þarf einhvern
veginn að vera að berjast á móti.
Berjast, ólíkt honum, við ytri öfl.
Það er svona undirtónninn í tón-
listinni sem við höfum gert fyrir
hana. Einhver ákveðin mótstaða.
Einhver agressjón eða styrkur sem
við erum að reyna að búa til,“ segir
Salka og bendir á að lagið HEITUR
KING sé löðrandi í einhvers konar
barnslegu hrekkleysi.
„En samt kraumar líka smá plott
undir niðri. Eins og hún sé kannski
að plotta eitthvað. Þetta er svona
algjört unglingsstelpu útrásarpopp-
dæmi,“ segir Salka og hlær.
Aðferðir Reykjavíkurdætra
Salka segist aðspurð ekki aðeins
hafa leitað að svigrúminu til þess
að efla persónu Júlíu milli línanna
hjá Shakespeare þar sem þær Ebba
hafi ekki síður komið með eigin
reynslu að borðinu.
„Við Ebba Katrín höfum unnið
þetta alveg mjög mikið saman og
langmest setið tvær og talað stans-
laust um þessa persónu og auðvitað
bara okkar baráttur og hvernig það
spilar inn í þetta,“ segir Salka og
bætir við að hún hafi náð sterkri
tengingu sem ein Reykjavíkur-
dætra.
„Ég er náttúrlega úr Reykjavíkur-
dætrum og heimspeki hvernig þú
getur notað tónlist sem valdeflandi
tól eða frásagnarmiðil eða einhvers
konar tæki til að kýla til baka.“
Salka segist þannig á ferli sínum
hafa fengið gott veganesti í þennan
heim Júlíu.
Rafmögnuð Júlía
„Ég er búin að reyna að vinna rosa-
lega mikið út frá raftónlist eftir
ungar konur og svoleiðis. Mig
langaði að tilfinningin væri eins
og Júlía hefði búið þessi lög til inni
í svefnherberginu sínu. Bara á tölv-
una sína. Þetta væru svona tólin
hennar. Hún að reyna að stækka
sig inni í litla rýminu sínu. Þenja
sig út í veggina einhvern veginn og
reyna að kýla til baka. Þannig að
þetta er nokkuð aggresív en samt
svona mjög stelpuleg popptónlist.“
Salka og Ebba Katrín hafa þekkst
um langt árabil en hafa aldrei
unnið jafn náið saman og við gerð
tónlistarinnar hennar Júlíu. „Við
unnum saman í Borgarleikhús-
inu, en ekki á þennan hátt, í frekar
mörg ár þegar hún var dresser og ég
hljóðmaður.
Þetta er fyrsta lagið sem hún
gefur út. Hún er í raun ekki tón-
listarkona en er samt alveg frábær
tónlistarkona. Hún er ógeðslega
klár og það er búið að vera sjúklega
gaman að semja með henni,“ segir
Salka og bætir við að Ebba Katrín
hafi komið með ferska orku sem
hafi minnt hana á upphaf Reykja-
víkurdætra.
„Tónlist er svo skemmtileg og
það er svo mikil barnsleg gleði yfir
því að búa hana til en þegar maður
er búinn að gera þetta svona lengi
tekur maður öllu svo alvarlega.
Og það var mjög gott fyrir mig að
fá einhvern inn sem tekur þessu,
þannig lagað, ekkert alvarlega.
Það var líka í anda Júlíu. Þetta er
hennar tól til að losa um og ekkert
endilega grafalvarlegt.“ n
Salka og Ebba Katrín renna nánast saman í eitt eins og Júlía og Rómeó í málverki úr sviðsheim-
inum þar sem takast á poppað og litaglatt æskufjör í harmrænu umhverfi. MYND/ BLAIR ALEXANDER
22 Lífið 23. júlí 2021 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 23. júlí 2021 FÖSTUDAGUR