Fréttablaðið - 23.07.2021, Page 28

Fréttablaðið - 23.07.2021, Page 28
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is Ég þurfti á tímabili eiginlega bara að velja á milli og ákvað þá bara að ég vildi setja meiri fókus á dansinn. HAPPY HOUR/rifrestaurant /rifrestaurant Beinlausir kjúklingavængir Beinlausir kjúklingabitar með vali um buffalo sósu, bbq eða bourbon glaze. Shake Súkkulaði Vanillu Jarðaberja 9 9 0 k r Hádegistilboð 2.090 kr Val á milli tveggja rétta, nýjir réttir í hverri viku! ALLAN DAGINN ALLA DAGA Tónlistarmaðurinn Bene- dikt gefur út sitt fyrsta lag, Diamond, á Spot ify í dag. Hann hafði ákveðið að taka ballettinn fram yfir tónlistina þegar meiðsli settu strik í reikninginn en hann fann taktinn í popptónlistinni eins og boðskapur nýja lagsins ber með sér. toti@frettabladid.is Diamond, fyrsta lag tónlistar- mannsins unga Benedikts Gylfa- sonar, kemur út á Spotify í dag og með því gefur hann tóninn fyrir væntanlega EP-plötu sem kemur út í haust. Benedikt er nítján ára gamall og samhliða námi í Menntaskól- anum við Hamrahlíð og söng með MH-kórnum stundar hann nám á poppbraut í Menntaskólanum í tón- list þar sem hann lagði einnig loka- hönd á nýja lagið. Benedikt söng einnig með Drengjakór Reykjavíkur í mörg ár og hefur sungið einsöng sem drengjasópran á fjölda tón- leika. Meðal annars með Karlakór Reykjavíkur og Frostrósum. „Ég lærði líka lagasmíðar og upp- tökustjórn í MÍT og lagið Diamond er samið í lagasmíðaáfanga þar og ég kláraði það síðan í upptökustjórn og náði þannig að að nýta mér skól- ann til að vinna í mínu eigin efni,“ segir Benedikt sem lýsir tónlist sinni sem poppi með grípandi laglínum. Góðar tilraunir Benedikt hefur samið eigin tónlist í nokkur ár og hefur haldið tvenna tónleika í MH og lenti í öðru sæti í Söngkeppni Samfés árið 2018. Dia- mond var síðan eitt þriggja laga sem hann lék á Músíktilraunum í vor þar sem hann komst í úrslit. „Ég ákvað bara að skella mér í Músíktilraunir í vor og komst í úrslit. Þetta voru allt hljómsveitir,“ segir Benedikt sem var með eina einstaklingsatriðið í úrslitum og bendir á að einstaklingur hafi aldrei unnið keppnina. „Ég tók Diamond í undankeppn- inni og annað lag sem kemur út á plötunni seinna á árinu og síðan fékk ég gigg á Dillon á Reykjavík Live út á þetta,“ segir Benedikt sem nýtur styrkja frá Tónskáldasjóði RÚV og STEFs sem og Upptökusjóði STEFs við tónsmíðarnar á fyrirhug- aðri þröngskífu. „Það er gott að vita að það eru einhverjir þarna úti sem hafa trú á manni,“ segir Benedikt um styrkina sem þar fyrir utan komi sér vel. „Það skiptir líka auðvitað miklu máli að fá fjárhagslegan stuðning. Vegna þess að það er miklu dýrara en maður heldur að gefa út tónlist þótt það sé ekkert endilega eitthvað sem maður hugsar út í þegar maður er að semja lögin.“ Benedikt notast, eins og gengur, mikið við tölvur þegar hann semur og flytur tónlist en fékk þó nokkra vini sína til þess að leggja sér lið á Diamond eins og það hljómar í útgáfunni sem kom á Spotify á mið- nætti. „Þau sem eru með mér í laginu er Alexander Grybos á rafgítar, Hlynur Sævarsson á bassa, Þórarinn Þeyr Rúnarsson á trommur og svo syngur Ilmur María Arnarsdóttir, vinkona mín, bakraddir.“ Klassísk byrjun Benedikt segist hafa byrjað að læra á píanó þegar hann var sex ára. „Þetta var klassískur píanóleikur sem ég lærði í um tíu ár og þegar ég var í kringum tólf ára fór ég að semja klassíska tónlist.“ Þá tók Benedikt þátt í Upp- taktinum þrjú ár í röð en þetta samstarfsverkefni Hörpu, Barna- menningarhátíðar, Tónlistarborg- arinnar Reykjavík, RÚV og Listahá- skóla Íslands er opið krökkum í efri bekkjum grunnskóla með áherslu á að hvetja börn og ungmenni til að semja tónlist og styðja þau í full- vinnslu hugmyndar. „En svona í lok grunnskóla fór fókusinn hjá mér að beinast meira að popptónlist og mér fannst það einhvern veginn bara náttúrulegt vegna þess að þetta var svona það sem ég hafði hlustað mest á.“ Dansmeiðsl og popp Þótt Benedikt sé búinn að vera virkur í tónlistarnámi og flutningi lengi hefur tónlistin ekki alltaf átt huga hans allan þar sem ballettinn var á tímabili efstur á blaði. „Ég lærði ballett í Listdansskóla Íslands í fimm vetur áður en ég fór til Noregs að læra ballett í Lista- háskólanum í Osló,“ segir Bene- dikt sem hefur keppt í ballett fyrir bæði Íslands hönd og skólans í Osló. „Síðan komu upp meiðsli og Covid þannig að ég kom heim og fór í MÍT. „Ég þurfti á tímabili eiginlega bara að velja á milli og ákvað þá að ég vildi setja meiri fókus á dansinn,“ segir Benedikt um þær tvær tíma- og orkufreku listgreinar sem hann hefur fengist við. „En svo þegar meiðslin koma upp þá tekur tón- listin bara við og var alltaf eitthvað sem ég bjó að.“ Framtíð Benedikts sem ballett- dansara er óráðin þar sem hann glímir við hnjámeiðsli. „Þannig að það er ekki hægt að gera neitt mikið meira en bíða bara og sjá hvort þetta lagist. Kannski lagast þetta. Kannski ekki, en ég hef allavegana nóg að gera,“ segir Benedikt æðru- laus. „Það er líka smá boðskapur í laginu. Að það er alltaf eitthvað annað og betra sem bíður manns.“ n Ballettinn vék fyrir poppinu Benedikt Gylfason byrjaði ungur að fást við klassískar tónsmíðar en sneri sér síðan að poppinu og gefur út sitt fyrsta lag, Diamond, í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓTTAR 24 Lífið 23. júlí 2021 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.