Fréttablaðið - 22.07.2021, Blaðsíða 1
f r e t t a b l a d i d . i sf r e t t a b l a d i d . i s
1 4 2 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R F I M M T U D A G U R 2 2 . J Ú L Í 2 0 2 1
Pssst ...
Góðar á
grillið!Nektarínur Krónanmælir með!
Mmm ...
Nektarínur
Bestar núna!
Viðgerð og andlitslyfting á styttunni af Kristjáni IX Danakonungi, sem stendur fyrir framan Stjórnarráð Íslands við Lækjartorg, er lokið en lappað hefur verið upp á styttuna síðustu vikurnar. Verið
var að taka niður stillansa sem notaðir voru við verkið þegar ljósmyndari Fréttablaðsins var á vappi um miðbæinn. Nú hefur sjónum viðgerðarmanna verið beint að styttunni af Hannesi Hafstein
sem stendur við hlið Kristjáns. Að baki styttunum er listaverk eftir Li Hill og John Grant sem prýðir einn veggja Gamla bíós. Það verk er undir áhrifum af laginu Pale Green Ghosts. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
birnadrofn@frettabladid.is
COVID-19 Í gær voru 220 einstakl-
ingar í eftirliti á Covid-göngudeild
Landspítalans, þar af fimmtán börn.
Einn liggur nú á smitsjúkdómadeild
spítalans með Covid-19.
Hertar aðgerðir tóku gildi á spítal-
anum í gær, samkvæmt ákvörðun
sóttvarnaráðs. Reglur um heim-
sóknir voru hertar og brýnt fyrir
starfsfólki að forðast mannamót.
Í gærmorgun voru 538 manns
í sóttkví og yfir 1.100 í skimunar-
sóttkví. Sólarhringinn á undan
greindust 56 smit innanlands.
Almannavarnadeild ríkislög-
reglustjóra hefur boðað til upp-
lýsingafundar klukkan 11 í dag.
Þar munu Þórólfur Guðnason sótt-
varnalæknir og Víðir Reynisson
yfirlögregluþjónn fara yfir stöðu
mála varðandi framgang faraldurs-
ins hér á landi síðastliðna daga. n
Á þriðja hundrað
smitaðra í eftirliti
Ríkisstjórnin er ekki farin að
ræða frekari aðgerðir vegna
stöðunnar í faraldrinum. For-
sætisráðherra segir stöðuna
allt aðra núna en í þriðju
bylgjunni. Þar sem Ísland
hefur hærra bólusetningar-
hlutfall en flest önnur ríki sé
engin forskrift til að fylgja.
adalheidur@frettabladid.is
COVID-19 „Þótt ég skilji þörf fólks
fyrir skýr svör um hvað verður, er
mikilvægt að við fáum andrými til
að meta stöðuna núna,“ segir Katrín
Jakobsdóttir forsætisráðherra um þá
stöðu sem nú er komin upp í faraldr-
inum. Tillögur um frekari aðgerðir
en þær sem ákveðnar voru á mánu-
dag eru ekki komnar á borð ríkis-
stjórnarinnar en ráðherrar eiga dag-
legt samráð við sóttvarnayfirvöld.
„Ég held að fólk skilji mjög vel
að það eru engin endanleg svör í
þessum faraldri. En við erum auð-
vitað ekki á sama stað og við vorum
í upphafi þriðju bylgju, þess vegna
er ekki hægt að draga bara sömu
aðgerðir upp úr poka,“ segir Katrín
og vísar til þess að nú sé þjóðin bólu-
sett og í stöðu ólíkri þeirri sem flest
önnur ríki búa við hvað varðar hátt
hlutfall bólusettra.
„Við erum þannig að reyna það
sem þjóð hvernig bóluefnin virka,
en það fylgir því að vera fremstur í
röðinni að enginn annar hefur neina
forskrift fyrir okkur. Við þurfum
sjálf að vega og meta stöðuna sem
er það sem okkar góða vísindafólk
er að gera.“
Katrín segir þó fylgst með öðrum
þjóðum sem gengið hefur vel að
bólusetja, til hvaða aðgerða sé verið
að grípa og hvernig þær gangi. Hún
segir þessa fjölgun smita að ein-
hverju leyti koma á óvart en á móti
komi að sjá að alvarleg veikindi séu
ekki farin að gera vart við sig, en
bólusetningunni hafi meðal annars
verið ætlað að koma í veg fyrir þau.
Aðspurð um stjórnarsamstarfið í
aðdraganda kosninga og samstöðu í
baráttu við faraldurinn segist Katrín
nálgast faraldurinn þannig að skyn-
samlegustu ákvarðanirnar séu tekn-
ar á hverjum tíma. Hún tekur dæmi
um ákvörðun ríkisstjórnarinnar á
mánudag. Þá hafi verið skynsamlegt
að líta til landamæranna eftir mat
á stöðunni sem uppi var. „Ábyrgð
okkar er að stýra þessu farsællega
áfram og kosningar mega ekki hafa
áhrif á það. Það er á okkar ábyrgð að
tryggja það,“ segir Katrín n
Meta þarf stöðuna upp á nýtt
Það fylgir því að vera
fremstur í röðinni að
enginn annar hefur
neina forskrift fyrir
okkur.
Katrín Jakobs-
dóttir, forsætis-
ráðherra.