Fréttablaðið - 22.07.2021, Síða 2
Það eru mjög margir
góðir kokteilbarir í
Reykjavík en okkur
langaði að koma með
eitthvað nýtt.
Magnús Már Kristinsson,
bareigandi.
Einbeittir nemar í Svínahrauni
STÖKKTU TIL KRÍTAR Á MORGUN!
23. JÚLÍ - 03. ÁGÚST
FLUG OG GISTING VERÐ FRÁ:
99.900 KR.
*Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN
FLUG, GISTING, INNRITAÐUR FARANGUR
BEINT FLUG FRAM OG TIL BAKA
FLUG, SKATTUR OG HANDFARANGUR
FLUG EINGÖNGU VERÐ FRÁ:
49.900 KR. *
WWW.UU.IS | HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓP. | 585 40000 | INFO@UU.IS
odduraevar@frettabladid.is
JAFNRÉTTISMÁL „Þau buðu mér og
kærastanum að kíkja í lónið og það
getur vel verið að við gerum það
við tækifæri,“ segir Diljá Sigurðar-
dóttir sem var vísað úr baðlóni Sky
Lagoon í Kópavogi um síðustu helgi
fyrir að vera ber að ofan en hefur
nú verið boðið aftur ofan í.
„Eftir að hafa skoðað málið betur
komumst við að þeirri niðurstöðu
að túlkun viðkomandi á skilmálum
okkar átti rétt á sér,“ sagði í til-
kynningu frá Sky Lagoon. Konum
væri því ekki lengur skylt að vera í
baðfötum að ofan.
Sjálf hefur Diljá fengið afsökun-
arbeiðni frá Dagnýju Pétursdóttur,
framkvæmdastjóra Sky Lagoon.
Segist Diljá vilja skoða hvað þurfi
að gera til að hindra að sams konar
atvik komi aftur upp á Íslandi. n
Beðin afsökunar og boðið aftur ofan í
Diljá Sigurðardóttir segir koma til
greina að þiggja boðið. MYND/AÐSEND
mhj@frettabladid.is
SAMFÉLAG Félagarnir Magnús Már
Kristinsson og Vilhjálmur Þór Krist-
jánsson hafa lengi verið þekktir
meðal kraftbjóraunnenda hérlend-
is. Ásamt því að vera hlutaeigendur
Session Craft bar hafa þeir komið að
bruggun á ýmsum bjórum, meðal
annars hjá Malbyggi og Reykjavík
Brewing.
Þegar heimsfaraldurinn skall á
og ölhúsum borgarinnar var lokað
ákváðu þeir hins vegar að finna sér
nýja áskorun: Kokteila. Þeir ákváðu
því að opna sinn eigin kokteilbar á
Skólavörðustíg, Stereo Bar, með það
í huga að taka öðruvísi snúning á
kokteila en aðrir staðir á Íslandi.
Á Stereo verður einblínt á kokteila
á krana til að flýta fyrir afgreiðslu.
Niturgas er notað svo það þurfi ekki
að hrista drykkina en að þeirra sögn
er það í fyrsta sinn sem niturgas
verður notað til að hrista kokteila.
Hægt verður að fá allt frá Espresso
Martini á krana yfir í óáfenga kok-
teila. Einnig verður boðið upp á
Hard-seltzer á krana en viðskipta-
vinir geta síðan valið á milli fimm
til sex bragðtegunda líkt og í ísbúð.
Langaði að feta nýjar slóðir
„Við vildum prófa að gera eitthvað
nýtt í þessu Covid-ástandi. Það lá vel
við að nýta tímann,“ segir Vilhjálm-
ur Þór. „Við höfum báðir verið í bjór-
bransanum lengi og okkur vantaði
nýja áskorun,“ bætir Magnús Már
við. „Það halda margir að við séum
rosalega góðir barþjónar en þegar
kemur að kokteilum þá vitum við
ekki neitt,“ segir Magnús Már og
hlær. „Við kunnum bara að brosa
bak við barinn og vera fyndnir,“
bætir hann við.
„Það eru mjög margir góðir kok-
teilbarir í Reykjavík en okkur lang-
aði að koma með eitthvað nýtt. Við
erum mjög góðir að setja bjórkúta
undir dælur og þess vegna ætlum
við að vera með kokteila á kút,“ segir
Magnús léttur. „Það sparar tíma og
ætti koma út í lægra vöruverði fyrir
neytandann án þess að gæðin ættu
að skerðast neitt svakalega.“
Vilhjálmur Þór hannaði staðinn
sjálfur en hann vann áður hjá Haf
Studio. Staðurinn er mjög litríkur
en Vilhjálmur segir það vera hugsað
til að lífga upp á veturinn á Íslandi.
„Það er gott að hafa bjart rými og
smá liti þegar grámyglan hellist yfir
mann,“ segir Vilhjálmur. „Litavalið
eru í raun litir sem eru of æpandi
til að hafa heima hjá þér en þeir eru
góðir í svona rými.“
Þeir félagar hafa ráðið til sín kok-
teilabarþjón til að hrista sérpantaða
drykki. „Hann heitir Andreas og
er Svíi,“ segir Magnús. Stereo Bar
opnar dyr sínar í fyrsta sinn í dag
klukkan 17.00 og mun DJ flugvél og
geimskip spila fyrir gesti. n
Þekktir bruggarar fara úr
kraftbjórum yfir í kokteila
Magnús Már og Vilhjálmur Þór hafa opnað kokteilbar. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Þessir bandarísku jarðvísindanemar voru staddir skammt frá Litlu Kaffistofunni í Svínahrauni. Þar voru þeir að fá leiðsögn um hvernig setja á upp gosmæli
sem nemur hreyfingar á jarðskorpunni. Sjónir vísindamanna hafa beinst að Íslandi undanfarnar vikur vegna eldgossins í Geldingadölum. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
kristinnpall@frettabladid.is
VESTFIRÐIR Bæjarráð Ísafjarðar-
bæjar samþykkti í gær beiðni lista-
mannsins Jean Larson um að mála
stórt vegglistaverk af skarfi á einn af
veggjum íþróttahússins á Flateyri.
Samþykkið er háð því að hverfisráð
Önundarfjarðar taki vel í beiðnina.
Í beiðni listamannsins kemur
fram að hann sé að vinna að verk-
efni fyrir bæinn Flateyri þar sem
hann málar tólf mismunandi fugla
á tólf mismunandi staðsetningum.
Markmið verkefnisins er að gestir og
gangandi geti gengið meðal fuglanna
sem dvelji allir í Önundarfirði.
Nú þegar hefur Larson hlotið styrk
fyrir öllum efniskostnaði verkefnis-
ins fyrir utan málningu sem nýtt
verður á veggi hússins þegar fugl-
inn er tilbúinn. Því felst ekki mikill
kostnaður fyrir bæinn í uppsetningu
vegglistaverksins. n
Leyfa skarfamynd
á sundlaugarhúsið
Hægt verður fara á fuglarölt á Flat-
eyri. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
2 Fréttir 22. júlí 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ