Fréttablaðið - 22.07.2021, Qupperneq 16
Coco sagði að vel-
gengni sín byggðist
á einni peysu sem hún
klæddist vegna kulda.
Ástin, lúxusinn, fataskápur-
inn og út að borða er það
sem nýja þáttaröðin um
vinkonurnar í Sex and the
City fjallar um. Upptökur
fara nú fram í New York og
aðdáendur þyrpast að til að
mynda stjörnurnar.
elin@frettabladid.is
Þættirnir hafa fengið nafnið And
Just Like That. Samantha Jones
(Kim Cattrall) er þó fjarri góðu
gamni því einungis þrjár vin-
konur koma saman í þessum nýju
þáttum. Áhorfendur hitta fyrir
Charlotte York, Miröndu Hobbes
og Carrie Bradshaw en þættirnir
sýna hvernig líf þeirra hefur breyst
enda komnar um fimmtugt.
Sumum þótti fyrri þátta-
röðin sem sýnd var frá árunum
1998-2004 sýna óraunverulega
veröld glæsilegs lúxuslífs þrítugra
kvenna. Aðdáendur voru þó mun
fleiri sem máttu ekki missa af
þætti úr heimi ástalífs, starfsframa
og merkjavöru vinkvennanna.
Unglingsstúlkur sátu og ræddu
stíft um hvað þeim fannst um ást
og ástarsorg Carrie sem um leið
veitti mikinn innblástur inn í
tískuveröldina. Ef þeim leiddist var
alltaf hægt að horfa á þættina aftur
og aftur og láta sér líða betur með
glansveröldinni á skjánum. Hjá
mörgum eru bleiku DVD-diskarnir
safngripir. Ætli sé kominn tími til
að dusta rykið af Manolo-skónum
og hella cosmopolitan-kokteil í
glas?
Ekki hefur verið gefið út hvenær
þáttaröðin verður frumsýnd. Alls
verða tíu þættir og það er HBO sem
framleiðir þá. Miranda hefur ekki
lengur þetta fallega rauða hár því
hún er orðin gráhærð. Hinn geð-
þekki Big (Chris North) kemur við
sögu í þáttunum sem fyrr og Aiden
(John Corbett) og Steve hennar
Miröndu (David Eigenberg). Þótt
Samantha sé fjarverandi bætast
nýir vinir í hópinn, meðal þeirra
er Sara Ramirez sem er þekkt úr
þáttunum Grey’s Anatomy.
Í gömlu þáttunum skrifaði Carrie
dálka í tímariti en í þeim nýju gerir
hún hlaðvarpsþætti. Fataskápur-
inn hefur þó ekkert breyst og þar
munu birtast merkjavörur frá
Dior, YSL, Celine, Fendi, Givenchy
og Chanel. Búningahönnuður
gömlu þáttanna, Patricia Fields, er
um þessar mundir upptekin við
gerð þáttanna um Emily in Paris
númer 2 en Molly Rogers var fengin
í hennar stað. New York borg er
sem fyrr aðalstaðsetning þáttanna.
Hvernig unnið verður úr efninu
fáum við að sjá von bráðar. n
Lúxusdrottningar hittast
Cynthia, Kristin og Sarah Jessica ganga hér um í New York þegar upptökur
fóru fram fyrr í vikunni. Kjóllinn sem Sarah klæðist er frá Carolina Herrera.
Coco Chanel ruddi brautina
í hönnun á kvenfatnaði, þar
sem einfaldleiki og glæsi-
leiki var í fyrirrúmi. Coco
ólst upp á munaðarleys-
ingjahæli hjá nunnum sem
kenndu henni að sauma.
sis@frettabladid.is
Fatnaður og töskur frá Coco
Chanel virðast aldrei fara úr tísku
og fólk stendur jafnvel í biðröð
eftir að komast inn í verslanir til
að festa kaup á þeim, þrátt fyrir
hátt verð. Um er að ræða sígilda
hönnun, enda ganga dragtir og
veski frá Chanel gjarnan í erfðir.
Í sumarlínunni 2021 má sjá að
áhrifa hennar gætir enn hjá tísku-
húsinu, þótt í ár séu fimm áratugir
frá því að Coco kvaddi þennan
heim. Þar eru stuttir jakkar án
kraga og klæðileg pils áberandi.
Ólst upp hjá nunnum
Fáum hefði dottið í hug að Gabrielle
Bonheur, eins og Coco Chanel var
skírð, myndi eiga eftir að fagna
mikilli velgengni þegar hún fæddist
þann 19. ágúst árið 1883 í Frakk-
landi. Foreldrar hennar voru litlum
efnum búnir og móðirin lést þegar
Coco var aðeins tólf ára. Faðirinn
kom ungu dótturinni þá fyrir á
munaðarleysingjahæli og lét sig
hverfa á braut. Það var engin sæla
að alast upp á slíku heimili sem var
rekið af nunnum en þar lærði Coco
að sauma. Sú kunnátta kom sér
vel þegar hún byrjaði að hanna og
sauma föt síðar á ævinni. Coco átti
eftir að sækja innblástur í búning-
ana sem hún og aðrar stelpur þurftu
daglega að klæðast á munaðarleys-
ingjahælinu. Það voru svartir kjólar
með hvítum kraga. Síðar gekk hún
í kristilegan heimavistarskóla og
síðan lá leiðin í afgreiðslustörf.
Undirföt, sokkar og hattar
Fyrst fékk Coco vinnu við afgreiðslu
í undirfata- og sokkaverslun en
þegar hún var að nálgast þrítugt
opnaði hún sína eigin hattaverslun.
Þremur árum síðar, árið 1913, færði
hún út kvíarnar og opnaði tísku-
verslun þar sem til sölu voru kjólar
og prjóna flíkur. Ekki liðu nema
tvö ár þar til Coco opnaði tísku-
hús og um ári síðar sýndi hún sína
fyrstu fatalínu. Hún vakti mikla
athygli fyrir óvenjulegt efnisval en
hún notaði prjón og flannel í sína
hönnun. Á þessum tíma var prjón
helst notað í nærfatnað og vinnu-
föt, en ekki hátískufatnað, en Coco
var heldur aldrei hrædd við að fara
ótroðnar slóðir.
Peysa varð að kjól
Ein fyrsta flíkin sem Coco hannaði
og vakti óvænta athygli var kjóll
sem hún bjó til úr gamalli jakka-
peysu og klæddist á köldum degi.
Kjóllinn vakti svo mikla eftirtekt
að hún var beðin um að sauma
fleiri slíka, sem hún og gerði.
Síðar sagði Coco að velgengni sín
byggðist á einni peysu, sem hún
hefði klæðst því það var kalt úti.
Árið 1925 kynnti Coco til
sögunnar kragalausan jakka og lát-
laust pils, sem enn í dag er vinsælt
sem Chanel-dragtin. Hönnun þessi
þótti byltingarkennd því hér var
komin valdaflík fyrir konur, sem
mótvægi við herrajakkaföt.
Svarti kjóllinn var einnig ein-
kennisflík úr smiðju Coco Chanel.
Fram að þeim tíma voru svartir
kjólar álitnir sorgarklæði en henni
tókst að breyta því þannig að
svartur kjóll varð nánast skyldu-
eign allra kvenna.
Tímalaust ilmvatn
Á þriðja áratug síðustu aldar setti
Coco fyrsta ilmvatnið á markað,
Chanel No. 5. Hún fékk fjárfesta
með sér í lið við framleiðsluna
á því en samdi í raun af sér, því
þeir fengu níutíu prósent af öllum
ágóða af sölu þess, en hún aðeins
tíu prósent. Ilmvatnið hefur frá
upphafi selst gríðarlega vel og er
eitt það vinsælasta í heimi. Það
varð ekki til að minnka vinsæld-
irnar þegar sjálf Marilyn Monroe
sagðist aðeins klæðast Chanel
No. 5 þegar hún svæfi. Coco átti
eftir að stefna þessum fjárfestum
oftar en einu sinni til að fá þessum
samningi hnekkt.
Eftir að Coco lést árið 1971 héldu
vörur undir hennar nafni áfram
að seljast vel en það var í raun
ekki fyrr en eftir að þýski fata-
hönnuðurinn Karl Lagerfeld varð
yfirhönnuður og síðar stjórnandi
Chanel-tískuhússins að það hófst
aftur til fyrri vegs og virðingar. Í
dag er tískuhúsið í eigu Alain Wert-
heimer og Gérard Wertheimer en
afi þeirra var Pierre Wertheimer,
sem studdi Coco Chanel fjárhags-
lega á sínum tíma við að koma
undir sig fótunum. n
Litli risinn í tískuheiminum
Á tískuvikunni í París, sem haldin var í fyrrahaust, var vor- og sumarlínan frá Chanel sýnd. Þar mátti já að Coco Chanel
hefur enn áhrif á hönnun tískuhússins, jakkar með rúnnuðum kraga og pils voru áberandi. FRÉTTAABLAÐIÐ/GETTY
Coco Chanel í París árið 1959, hér fyrir
miðri mynd. Hún var alltaf smekk-
lega klædd, gjarnan í eigin hönnun.
Díana prinsessa sást oftar en einu
sinni í dragt frá Chanel. Hér er hún í
einni slíkri, sem nú er komin á safn.
4 kynningarblað A L LT 22. júlí 2021 FIMMTUDAGUR