Fréttablaðið - 22.07.2021, Qupperneq 28
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056:
Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Ég hef verið í söng-
námi í mörg ár en hef
aldrei getað lesið nótur
almennilega.
20 Lífið 22. júlí 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
990
1.590
1.990
8” Pizza af matseðli
og ½ ltr gos
12” Pizza af matseðli
og 2x ½ ltr gos
16” Pizza af matseðli
og 2 ltr gos
Hádegis
tilboð
2
1
3
Fjarðargata 11 · Dalvegur 32b
spadinn.is
Í boði alla daga frá kl. 11:00–16:00
Heilatengd sjónskerðing
veldur því að sópransöng-
konan Dagbjört Andrésdóttir
getur ekki lesið nótur. Þetta
hefur þó hvergi slegið á tón-
listarástríðuna og hún stefnir
á burtfararpróf í einsöng og er
ein aðalsöngkonan á Söng-
hátíð Möggu Pálma á Húsavík
um helgina.
toti@frettabladid.is
Sópransöngkonan Dagbjört Andrés-
dóttir hefur verið með heilatengda
sjónskerðingu, CVI, frá fæðingu.
Hún getur því ekki lesið nótur en
hefur mætt mótlætinu af einurð og
festu. Hún stefnir á burfararpróf
í einsöng næsta vor og verður ein
þriggja aðalsöngkvenna á Háslætti,
Sönghátíð Möggu Pálma, á Húsavík
á sunnudagskvöld.
„Ég fæddist tveimur mánuðum
fyrir tímann og ein af mörgum
afleiðingum þess er taugaskaði sem
veldur meðal annars þessu. Þetta
tengist augunum eiginlega ekki
neitt, bara því að heilinn vinnur
vitlaust úr upplýsingunum,“ segir
Dagbjört sem er með mjög skert
sjónsvið, svo skert að þó að sjón-
skerpan sé í lagi telst hún aðeins
með 4-5% sjón.
Heilaskaði olli einnig hreyfi-
hömlun, aðallega í fótum og á
vinstri hlið en Dagbjört segir þó
sjónskerðinguna vera það sem hái
henni mest. „Ég hef verið í söngnámi
í mörg ár en hef aldrei getað lesið
nótur almennilega,“ segir Dagbjört
og bætir við að það sé örugglega
vegna þess að línurnar fimm sem
skráðar eru á nótnastreng liggja
of þétt saman og renni fyrir henni
saman í eina.
Lesið með eyrunum
„Þetta er bara búið að vera þvílíkt
ströggl og það að geta ekki séð, eða
lesið, nóturnar hefur háð mér veru-
lega í bóklegu söngnámi,“ segir Dag-
björt sem hefur þó ekki látið þetta
stoppa sig heldur farið sínar eigin
leiðir í nótnalestri þar sem hún
treystir nær eingöngu á eyrun til
þess að læra lögin.
„Ég læri eftir eyranu þótt ég geti
náttúrlega lesið textaupplýsingar
upp að vissu marki. Aðalmálið er
að staðsetja nóturnar á strengnum.
Það er í rauninni það sem ég get
ekki gert. Ég þarf í rauninni að stóla
næstum eingöngu á eyrun.“
Hún segir að þótt skólinn sé allur
af vilja gerður og kennararnir henn-
ar frábærir þá upplifi hún almennt
ekki mikinn skilning á stöðu sinni
enda séu fáir nemendur með sér-
þarfir í tónlistarskólum. Hún hefur
því lagt sig fram um að vekja athygli
á sjúkdómnum og því að fá hann
viðurkenndan.
Brennandi ástríða
„Það væri í raun auðveldara ef ég
væri bara blind,“ segir hún og hlær.
„Vegna þess að það vita allir hvað
það er að vera blindur. Þannig lagað,
en það að vera sjónskertur er í raun
allt annað mál.“
Dagbjört segist hafa haft brenn-
andi ástríðu fyrir tónlistinni og
söngnum frá blautu barnsbeini.
„Mamma og pabbi voru alltaf mjög
dugleg að hvetja mig áfram í því. Ég
hef í rauninni bara sungið allt mitt
líf.“
Dagbjört byrjaði tíu ára gömul í
Stúlknakór Reykjavíkur hjá Mar-
gréti Pálmadóttur og hóf svo upp
úr því klassískt nám í Domus Vox,
fjórtán ára, hjá Hönnu Björk Guð-
jónsdóttur. Hún hóf síðan nám í
Söngskóla Sigurðar Demetz 2015
undir handleiðslu Sigrúnar Hjálm-
týsdóttur. Þaðan lauk hún fram-
haldsprófi 2018 og lærir nú til burt-
fararprófs sem hún gerir ráð fyrir að
ljúka 2022.
Tækifæri hjá Margréti
Segja má að Dagbjört loki ákveðn-
um hring á Húsavík á sunnudaginn
þegar hún verður einn aðalgestur-
inn á Háslætti, Sönghátíð Möggu
Pálma en allt saman byrjaði þetta í
Stúlknakórnum hjá henni.
„Þar var ég sleitulaust í sautján
ár og lærði fyrst söng í skólanum
hennar,“ segir Dagbjört sem hefur
allar götur síðan haldið sambandi
við Möggu. „Og hún er núna að gefa
mér þetta tækifæri til að koma fram
á Háslættinum sínum.
Huldumál er undirtitill hinnar
árlegu sönghátíðar Möggu Pálma
á Húsavík að þessu sinni en tón-
leikarnir verða í Húsavíkurkirkju
klukkan 20 á sunnudagskvöld.
Aðgangur er ókeypis og öllum
opinn en aðalgestir hátíðarinnar,
auk Dagbjartar, eru Una Stefáns-
dóttir og Særún Rúnudóttir. Mar-
grét sjálf er listrænn stjórnandi,
Sigríður Soffía Hafliðadóttir er kór-
stjóri og Jón Elíasson leikur á píanó.
Kórinn er síðan skipaður Ingibjörgu
Hrönn Jónsdóttur, Kristínu Vil-
bergsdóttur, Maríu Sigríði Ágústs-
dóttur og Sif Arnardóttur. n
Sjónskert sópransöngkona
les nóturnar með eyrunum
Dagbjört leggur í sannkallaða tónleikaferð til Húsavíkur en auk þess að vera ein aðalsöngkonan á Háslætti ætlar hún
að syngja á elliheimilinu. „Þá er ég aðallega að syngja þessi gömlu, íslensku klassísku lög.“ FRÉTTABLAÐIÐ/ÓTTAR