Fréttablaðið - 20.07.2021, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 20.07.2021, Blaðsíða 1
f r e t t a b l a d i d . i sf r e t t a b l a d i d . i s 1 4 0 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R Þ R I Ð J U D A G U R 2 0 . J Ú L Í 2 0 2 1 Fullvaxinn fjórhjóladrifinn rafmagnsbíll Settu saman þinn ID.4 GTX á www.hekla.is/gtx Verð frá 7.150.000 kr. Komdu og prófaðu! 2021 HEKLA · Sími 590 5000 · Laugavegur 170 UTANRÍKISMÁL Brennandi áhugi geðlæknisins Óttars Guðmunds- sonar á Sturlungu er nánast þrá- hyggjukenndur. Hann leiðir Þing- vallagöngu um Snorra Sturluson í vikunni og ætlar þar að nota tæki- færið til þess að ítreka kröfu sína um að Ísland slíti „öllu stjórnmála- sambandi og öllum samskiptum við Noreg þangað til þeir biðjast opinberlega afsökunar á morðinu á Snorra Sturlusyni.“ SJÁ SÍÐU 18 Vill slíta sambandi Íslands við Noreg Óttar Guðmundsson geðlæknir. Landsvirkjun og Norðurál hafa komist að samkomulagi um framlengingu á raforku- samningi. Norðurál ræðst í 15 milljarða fjárfestingu. Mun skapa á annað hundrað störf. Álverð hefur hækkað um 80 prósent á rúmlega ári. thg@frettabladid.is Landsvirkjun og Norðurál hafa kom- ist að samkomulagi um þriggja ára framlengingu á raforkusölusamningi sem er í gildi fyrirtækjanna á milli, samkvæmt tilkynningu í gær. Nýr samningur tekur gildi 1. janúar 2023. Norðurál hyggst í framhaldi af framlengingu samningsins ráðast í byggingu steypuskála við álverið á Grundartanga, sem mun framleiða svokallaða álbolta. Er þar um að ræða fjárfestingu upp á um 15 milljarða króna. Framkvæmdir verða fyrst og fremst á árinu 2024, en þær munu skapa um það bil 100 tímabundin störf. Til framtíðar munu skapast um 40 störf í steypuskála Norðuráls á Grundartanga. Tveir raforkusamningar eru í gildi milli Landsvirkjunar og Norður- áls. Sá fyrri og stærri var upphaf- lega gerður árið 1997 og er upp á 161 megavatt. Árið 2016 var samið um framlengingu samningsins til 2023. Þær breytingar á samningum tóku gildi í nóvember 2019, en þær sneru að raforkuverði og fólust í því að tenging raforkuverðs við álverð var afnumin. Raforkuverðið var í stað þess tengt verði á Nord Pool, raforku- markaði Norðurlandanna. Nýja framlengingin verður hins vegar aftengd Nord Pool markaðn- um, enda hafa verðsveiflur á þeim markaði verið töluvert miklar á und- anförnum árum og töluvert meiri en á álmarkaði. Einnig mun selt magn aukast og verða 182 megavött, í stað 161 megavatts. Nýr samningur felur í sér fast verð sem hækkar þó örlítið á ári hverju. Heimsmarkaðsverð á áli hefur hækkað hratt á undanförnum miss- erum. Álverð náði einni af sínum dýpstu lægðum í apríl á síðasta ári og hjó nærri 1.400 Bandaríkjadölum á tonnið. Verðið hefur hins vegar hækkað hratt og stóð í um 2.500 Bandaríkjadölum á tonnið í gær. Hækkun frá því í apríl í fyrra er því tæplega 80 prósent. Verð á svokölluðum álboltum hefur hins vegar hækkað meira. Í mars á þessu ári seldust álboltar á Evrópumarkaði á um það bil 300 Bandaríkjadölum yfir áltonninu. Það álag hefur hins vegar meira en þrefaldast síðan þá og stendur í um 1.000 Bandaríkjadölum. n Ráðast í verk fyrir fimmtán milljarða Blíðskaparveður var í Skaftafelli í gær og kældu bæði börn og fullorðnir sig í hylnum undir Þjófafossi í Lambhaga. Ekkert lát er á blíðunni á Suðaustur- og Austurlandi þar sem spáð er allt að 24 stiga hita í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Framlenging samn- ingsins og fyrirhugaðar framkvæmdir Norður- áls munu skapa á annað hundrað starfa. JAFNRÉTTISMÁL Rannsókn And- reu Sigrúnar Hjálmsdóttur, lekt- ors í félagsfræði við Háskólann á Akureyri,  leiðir í  ljós að  viðhorf ungmenna á Íslandi gagnvart verkaskiptingu inni á heimilunum virðast verða jafnréttissinnaðri með tímanum. Þróunin er hins vegar ekki línu- leg samkvæmt rannsókninni sem birtist í tímaritinu Adolesc ents í gær. Hún sýnir að ungmenni tóku íhaldssama dýfu árið 2006 og tengir Andrea hana ríkjandi andrúmslofti hér á árunum fyrir hrun. SJÁ SÍÐU 6 Ekki línuleg þróun í viðhorfum Andrea Sigrún Hjálmsdóttir, lektor í félagsfræði við HA.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.