Fréttablaðið - 20.07.2021, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 20.07.2021, Blaðsíða 23
Fasteignasalan Perla Invest- ments er rekin af íslenskum hjónum og var stofnuð fyrir meira en tveimur áratug- um. Fyrirtækið selur aðal- lega nýtt íbúðarhúsnæði og leggur áherslu á að kaupin séu bæði áreynslulaus og ánægjuleg. Fasteignasalan Perla Investments var stofnuð af hjónunum Auði Hansen og Orra Ingvasyni þegar þau f luttu búferlum til Spánar árið 1999 og hefur því verið starf- andi í yfir 20 ár. Auður, sem er eigandi og skrifstofustjóri Perlu, lauk námi til löggilts fasteigna- sala á Íslandi árið 1999 og hefur auk þess B.A.-próf í spænsku frá Háskóla Íslands. Hún hefur unnið þó nokkur þýðingaverkefni fyrir spænsk yfirvöld í gegnum tíðina og stundar um þessar mundir mastersnám í þýðingafræði sam- hliða starfi sínu hjá fasteigna- sölunni. Auður segir að frá upphafi hafi stöðugleiki og gæði verið leiðar- ljós þeirra hjóna við reksturinn, en þau hafa séð tímana tvenna í fasteignaviðskiptum á síðustu áratugum. „Þegar við byrjuðum var að hefjast hérna mikill uppgangstími og þegar mest var vorum við með fjórar skrifstofur á Spáni og eina á Íslandi,“ segir Auður. „Jafnframt fórum við í þó nokkra fasteigna- þróun, meðal annars í Brasilíu og víðar, og það má því segja að síðustu rúmlega tvo áratugi hafi líf okkar snúist algjörlega um fasteignir og aftur fasteignir.“ Alþjóðlegt fjölskyldufyrirtæki „Hjarta fyrirtækisins og höfuð- stöðvar fasteignasölunnar hafa alla tíð verið hérna á skrifstofunni okkar í Villamartin á Orih uela Costa-svæðinu, þar sem við störfum enn í dag. Við erum líka svo lánsöm að hafa nýlega fengið son okkar, Birgir Hans Birgis- son, til starfa hjá okkur. Hann er menntaður löggiltur spænskur fasteignasali, auk þess sem hann hefur lokið B.A.-prófi í alþjóða- samskiptum frá háskólanum í Val- ensía,“ segir Orri. „Hjá fyrirtækinu starfa einnig spænskur lög- fræðingur og spænskur þjónustu- fulltrúi, auk afleysingastarfsfólks, sem meðal annars telur yngsta son okkar hjónanna.“ Áreynslulaust og ánægjulegt Perla Investments selur aðal- lega nýtt íbúðarhúsnæði ásamt endursölueignum, en Orri segir þau leggja aðaláherslu á nýbygg- ingar vegna þess að það hafa orðið miklar framfarir í byggingar- gæðum á Spáni síðustu árin. „Það felur í sér aukið einangr- unargildi og betra efnisval, sem þýðir lægri rekstrarkostnað, auk þess sem eignirnar eru betri fjárfesting til framtíðar,“ segir Fasteignasalan Perla hefur yfir 20 ára reynslu  Hjónin Auður Hansen og Orri Ingvason stofn- uðu fasteigna- söluna Perla Investments þegar þau fluttu til Spánar árið 1999, svo þau búa yfir mikilli reynslu. MYNDIR/AÐSENDAR Orri segir þau leggja aðaláherslu á nýbyggingar vegna þess að það hafa orðið miklar framfarir í byggingar- gæðum á Spáni síðustu árin. Spánn er mikil paradís fyrir golf- áhugamenn, þar eru margir góðir vellir og alltaf veður til að spila. Frá upphafi hafa stöðugleiki og gæði verið leiðarljós Auð- ar og Orra við reksturinn. Marga dreymir um að eiga sitt eigið afdrep á Spáni, annaðhvort til að heimsækja reglulega eða til að flytja suður í hlýrra loftslag. Í nýbyggingum er efnisval betra og einangrun meiri, sem þýðir lægri rekstrarkostnað, auk þess sem eignirnar eru betri fjárfesting til framtíðar. Starfsfólk Perlu er á Spáni allan ársins hring og er því með viðskiptavinum þegar kaupin fara fram. Starfsfólk Perlu sér til þess að kaupin verði áreynslulaus og ánægjuleg frá fyrstu stundu. hann. „Við bjóðum fólki líka upp á aðstoð við að byggja sín eigin hús, hafi fólk áhuga á því.“ Auður segir að sérstaða fast- eignasölunnar felist ekki síst í því að starfsfólk hennar sjái til þess að kaupin verði áreynslulaus og ánægjuleg frá fyrstu stundu og sé til staðar þegar kaupin fara fram. „Við erum hér á Spáni allt árið um kring og sendum því íslenska viðskiptavini okkar ekki út eina til að ganga frá kaupunum, heldur erum við til staðar og með við- skiptavinum á meðan kaupin fara fram,“ segir hún. „Auk þess eru allir samningar þýddir og/eða túlkaðir yfir á íslensku fyrir kaup- endur og fullkomið tvítyngi og skilningur á fasteignalögum á Spáni er sannarlega mikill styrkur sem endur- speglast í öllu daglegu starfi fasteignasölunnar.“ „Við bjóðum alla velkomna í hóp ánægðra viðskiptavina okkar og hvetjum áhugasama til að kynna sér eignirnar og ferlið á vefnum okkar, perlainvest.com,“ segja Auður og Orri að lokum. n Fullkomið tvítyngi og skilningur á fasteignalögum á Spáni er sannarlega mikill styrkur sem endurspegl- ast í öllu daglegu starfi fasteignasölunnar. Auður Hansen. kynningarblað 7ÞRIÐJUDAGUR 20. júlí 2021 FASTEIGNAK AUP ERLENDIS

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.