Fréttablaðið - 20.07.2021, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 20.07.2021, Blaðsíða 38
stod2.is Óttar Guðmundsson geð- læknir fer fyrir Þingvalla- göngu þar sem hann mun geðgreina Snorra Sturluson, rekja þingævintýri hans úr Sturlungu og ítreka kröfu sína um að stjórnmálasambandi við Noreg verði slitið þar til Norðmenn gangist við og biðjist afsökunar á morðinu á Snorra 1241. toti@frettabladid.is „Við byrjum hjá Hakinu klukkan átta og göngum niður að kirkjunni,“ segir Óttar Guðmundsson geðlækn- ir um Þingvallagönguna sem hann leiðir á fimmtudagskvöld á meðan hann ræðir meðal annars tengingar Snorra Sturlusonar við þingstaðinn forna. „Efnið er Snorri Sturluson, ævi hans og hvernig hann tengist Þing- völlum. Það eru nokkrar sögur úr Sturlungu þar sem Snorri er á Þing- völlum og lendir þar í ýmsum ævin- týrum og ég segi frá því,“ segir Óttar sem mun að einhverju leyti styðjast við bók sína Sturlunga geðlæknis- ins. Ekki síst við upphaf göngunnar þar sem hann rýnir í persónuleika skáldsins. „Við Hakið mun ég tala um og geðgreina Snorra og ræða hvaða greiningar henti honum og hans fjölskyldu best. Ég fer ansi mikið í fjölskyldumálin og a fdr if bar nanna hans, eiginkvenna og ástkvenna. Þannig að þetta fer svona um víðan völl,“ segir Óttar sem gerir ráð fyrir að gangan taki um það bil eina og hálfa klukku- stund. Frá Hakinu er stefnan tekin niður Almannagjá og að Lögbergi þar sem Óttar fer yfir tengingar Snorra við Þing velli. „Og við kirkjuna ræði ég um hörmuleg enda- lok skáldsins. Þetta er nú náfrændi minn svo mér er málið skylt.“ Sturlunguþráhyggjan Sturlungar hafa lengi verið Óttari ofarlega í huga og koma meðal annars ítrek- að við sögu í Bakþönkum hans í Fréttablaðinu. Svo mjög reyndar að spyrja má hvort Sturlunga sé orðin að einhvers konar þráhyggju hjá honum. „Þetta er náttúrlega orðið að ákveðinni þráhyggju en maður verður náttúrlega að halda frænd- um sínum á lofti,“ segir Óttar og bendir á að sá siður sé mjög til heilla. „Þetta er fyrst og fremst um Snorra Sturluson og Snorra og Alþingi og síðan rek ég svona sögu Snorra og enda síðan með þessi hörmulega andláti Snorra þegar Noregskonungur lætur drepa hann 1241,“ segir Óttar sem ætlar að nota tækifærið til þess að ítreka kröfu sína um að drápið á Snorra verði gert upp við Norðmenn. Opinberar hefndaraðgerðir „Ég mun viðra þessa kröfu mína að Íslendingar slíti öllu stjórn- málasambandi við Noreg þangað til að Norðmenn haf i opinberlega beðist afsökunar á þess- um gjörningi. Krafan er að seg ja upp öllu s t j ó r n - málasam- bandi við N o r e g , r e k a sendiherr- ann heim og skila aftur forljótri styttu af Snorra sem Norðmenn gáfu Íslendingum í háðungarskyni og stendur í Reyk- holti. Ég er búinn að halda þessu á lofti nokkuð lengi en það hefur enginn hlustað á þetta. Það hefur ekki verið neinn hljómgrunnur fyrir því að slíta öllu stjórnmálasambandi og öllum samskiptum við Noreg þangað til þeir biðjast opinber- lega afsökunar á morðinu á Snorra Sturlusyni.“ Skemmtilegar göngur Þingvallagöngurnar eru farnar reglulega á fimmtudagskvöldum og segja má að fyrir þremur vikum hafi Óttar og Guðni Ágústsson gefið ákveðið fordæmi fyrir því að hlutur þekktra einstaklinga sé réttur í leið- inni þegar Jónas frá Hriflu fékk upp- reist æru í meðförum þeirra. „Við Guðni Ágústsson vorum þarna fyrir þremur vikum og vorum að tala um Jónas frá Hriflu og fórum um hann mjög fögrum orðum, sem er dálítið merkilegt,“ segir Óttar og bætir við að Þingvallagöngurnar séu almennt mjög skemmtilegar en þar nálgist þeir sem leiði gönguna viðfangsefnið út frá sjálfum sér og sínum áhugamálum. „Þetta var mjög vel sótt hjá okkur Guðna og núna verða með mér í för tvær söngkonur. Signý Sæmunds- dóttir og Jóhanna Þórhallsdóttir, konan mín, og þær munu stjórna fjöldasöng. Þannig að þetta verður mjög þjóðlegt og allt í anda Snorra Sturlusonar.“ Engin veðurgeðlægð Þegar talið berst að veðrinu, sem hefur einna helst legið nokkuð þungt á fólki sunnanlands, er Óttar pollrólegur og bjartsýnn. „Veður er bara veður. Ég heiti á Þorlák helga að verðrið verði gott. Það þykir mjög gott að heita á hann því hann lastaði aldrei veðrið,“ segir geðlæknirinn sem hefur ekki þurft að hjálpa fólki í veðurgeðlægð það sem af er sumri. „Ekki ennþá en það getur verið að það komi að því,“ segir Óttar og hlær. Þetta tilheyrir bara þessu íslenska sumri. Það er mismunandi og ég læt þetta lítið á mig fá. Það hlýtur nú að lagast og það hlýtur að fara að birta til. Við treystum því að Þorlákur helgi breyti veðrinu.“ n Óttar krefst aðgerða vegna morðsins á Snorra Sturlusyni Óttar Guðmundsson ásamt Norðmanninum Leifi Eiríkssyni sem verður víðs- fjarri góðu gamni í Þingvallagöngunni á fimmtudagskvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Óttar, Guðrún Eggertsdóttir, barnabarn Jónasar frá Hriflu, og Guðni Ágústs- son á Þingvöllum þar sem fögrum orðum var farið um Jónas. MYND/AÐSEND Óttar telur réttast að skila forljótri styttunni af Snorra til Noregs. Krafan er að segja upp öllu stjórnmálasam- bandi við Noreg, reka sendiherrann heim og skila aftur forljótri styttu af Snorra. 18 Lífið 20. júlí 2021 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.