Fréttablaðið - 20.07.2021, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 20.07.2021, Blaðsíða 17
Novus Habitat á Spáni og Stakfell fasteignasala á Íslandi hafa tekið höndum saman og bjóða Íslendingum einstaka þjónustu beggja vegna hafsins. Margar góðar ástæður eru fyrir því að Íslendingar kjósa að eiga heimili á báðum stöðum. Novus Habitat og Stakfell bjóða upp á heildarlausn fyrir fólk sem er að hugsa um að kaupa fasteign á Spáni. „Fasteignasalan Novus Habitat er með höfuðstöðvar sínar í Benijofar, skammt frá Torrevieja í Alicante- héraðinu á Spáni, sem margir Íslendingar þekkja,“ segir Kristján Sveinsson. Hann hefur starfað hjá Novus Habitat um nokkurt skeið og er öllum hnútum kunnugur á þessu svæði. Novus Habitat er sérhæfð fasteignasala í sölu nýbygginga á öllu Costa Blanca og Costa Cálida svæðinu og Stakfell er rótgróin fast- eignasala á Íslandi sem hefur verið starfrækt á Íslandi frá árinu 1984. „Matthildur Sunna Þorláksdóttir hjá Stakfelli er okkar aðaltengiliður á Íslandi og er kletturinn okkar þeim megin hafsins og ég sé svo um allt sem við kemur fasteigna- viðskiptum Spánarmegin,“ segir Kristján. „Ég tek á móti fólkinu á flugvellinum, stilli upp skoðunar- ferðum og sé um allt frá A til Ö,“ segir hann. Hvers vegna sækja Íslendingar sérstaklega á þetta svæði? „Það eru margar góðar ástæður fyrir því. Fyrir utan hagstætt verðlag og frábært veður þá eru skólar góðir og heilbrigðiskerfi ákaflega gott á svæðinu. Þarna er öll þjónusta til fyrirmyndar, lifandi verslunarlíf og veitingahúsa- menningin er fjölbreytt. Svæðið í kringum Torrevieja er Íslendingum einnig flestum vel kunnugt og er svæðið einstaklega veðursælt með að meðaltali 320 daga sól á ári,“ segir Kristján en veðurfarið á Spáni á stóran þátt í því hversu vel fólki líkar að búa þar. Aðstoðið þið fólk sem er að hug- leiða kaup? „Já, og miklu meira en það. Við aðstoðum fólk í öllu ferlinu og ekki síður þegar það er búið að kaupa fasteign. Þá hefst svokallað eftir- söluferli þar sem við erum fólki til halds og trausts við hvað eina sem þarf. Við höfum lagt okkur fram við að velja eignir á skrá hjá okkur frá byggingaraðilum sem við þekkjum til og treystum að eru með allt sitt í lagi,“ segir Matthildur Sunna. „Við bjóðum upp á alla aðstoð við að innrétta og fullbúa eignina húsgögnum og öllu því sem þarf. Við getum einnig boðið þjónustu frá íslenskum innanhússhönnuði ef kaupandi kýs það. Við leggjum öll gögn fram þannig að viðskipta- vinurinn veit nákvæmlega hver kostnaðurinn við kaupin eru frá upphafi, enginn óvæntur kostn- aður eða gjöld. Einnig sýnum við fram á hver útgjöldin verða árlega eftir kaupin,“ segir Matthildur Sunna. Og hvernig er svo ferlið ef fólk hefur áhuga á að koma til Spánar í skoðunarferð? „Fólk byrjar á að hafa samband Splunkunýtt heimili í sólinni á Spáni Stakfell og Nov- us Habitat hafa tekið höndum saman við sölu nýbygginga á öllu Costa Blanca og Costa Cálida svæðinu á Spáni. Svæðið í kringum Torrevieja er Íslendingum vel kunnugt. Þar er einstök veðursæld, með að meðaltali 320 daga í sól á ári hverju. Novus Habitat býður upp á alla aðstoð við að innrétta og fullbúa eignina húsgögnum og öllu sem til þarf. Kristján að- stoðar fólk við að kaupa réttu fasteignina á Spáni. Hann vinnur hjá Novus Habitat, sem er með höfuðstöðvar í Benij ofar, skammt frá Torrevieja í Ali- cante-héraðinu. Matthildur Sunna hjá Stakfelli er aðaltengiliður Novus Habitat á Íslandi. MYNDIR/AÐSENDAR við okkur hjá Stakfelli og við skipu- leggjum saman skoðunarferðina. Kristján tekur svo á móti fólki á Alicante-flugvellinum og fylgir því á hótel eða í íbúð þar sem það gistir í þrjár til sjö nætur í boði okkar,“ segir Matthildur. „Fyrsta daginn förum við saman í höfuðstöðvar Novus Habitat og förum yfir hvaða eignir eru í boði og hverju fólk er að leita að. Við förum svo og skoðum þær eignir og mismunandi hverfi. Ef fólk finnur draumaeignina aðstoðum við það við að opna bankareikning, sækja um N.I.E.-númer, sem er spænsk kennitala, og fylgjum því í gegnum ferlið alla leið,“ segir Kristján en mikið öryggi er fólgið í því að fá fagfólk til að aðstoða við þessa hluti. Áður en nýir eigendur fá fast- eignina afhenta skoðar gæðastjóri frá Novus Habitat hana og fer yfir öll frágangsmál með byggingar- aðilanum og sér þannig til þess að eignin sé gallalaus og uppfylli ströngustu gæðakröfur. „Okkar viðskiptavinir fara svo sjálfkrafa í hollustuklúbbinn Novus Habitat og njóta sérstakra tilboða í hús- gagna- og tækjabúðum, og á ýmsu öðru sem þarf til heimilisins, svo sem nettengingu, tryggingum og öryggisskerfi, svo eitthvað sé nefnt,“ segir Kristján. Að lokum, hvernig getur fólk nálgast ykkur? „Það er alltaf hægt að ná í okkur í síma eða panta tíma með okkur á skrifstofu Stakfells í Borgartúni 30,“ segir Matthildur. Beint númer hjá henni er 690 4966 og netfang matt- hildur@stakfell.is. n Nánari upplýsingar má fá á vef- síðunum novushabitat.es og stakfell.is Ef fólk finnur draumaeignina fylgjum við því í gegnum ferlið alla leið. Það er mikið öryggi fólgið í því að fá fagfólk til aðstoðar. kynningarblað 5ÞRIÐJUDAGUR 20. júlí 2021 FASTEIGNAK AUP ERLENDIS

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.