Fréttablaðið - 20.07.2021, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 20.07.2021, Blaðsíða 16
Þegar dvalið er á Spáni er nauðsynlegt að fá sér paellu og tapasrétti. Veljið góðan veitingastað eða prófið að gera réttina heima. Það skapar skemmtilega stemm- ingu að sitja yfir paellu eða rækjum í hvítlauk. elin@frettabladid.is Réttir eins og paella eða tapas hafa fylgt mannkyninu í spænsku- mælandi löndum lengi. Paella á uppruna sinn í Valencia-héraði á Spáni og er sagður hafa komið þangað með márum sem voru að uppruna berbar eða hirðingjar frá Vestur- og Norður-Afríku. Það var síðan á tímum Franco sem paellan varð þjóðartákn en það mun vera vegna þess að þetta var uppáhaldsréttur einræðisherr- ans. Franco sameinaði ýmsa siði einstakra héraða á Spáni og setti þá undir einn hatt, þar á meðal er f lamenco-dansinn sem er ættaður frá Andalúsíu. Paellan er orðin klassík og f lestir sem koma til Spánar smakka á þessum þjóðarrétti. Hann er gerður á mismunandi hátt þótt alltaf séu notuð hrísgrjón ekki ólík þeim sem notuð eru í risotto á Ítalíu. Paella er alltaf löguð fyrir nokkra í einu enda elduð á stórri pönnu sem rétturinn ber nafn sitt af. Það er mjög skemmtilegt að bjóða gestum upp á heima- gerða paellu og hér er uppskrift sem inniheldur spænska chorizo pylsu, smokkfisk og bláskel. Oft er kjúklingur í uppskriftunum með sjávarfangi, allt eftir smekk hvers og eins. Paella er gjarnan borin fram með hvítlauksmajónesi og brauði.n Paella fyrir fjóra 500 g paella-hrísgrjón 1-2 kg bláskel 2 dl hvítvín 200 g chorizo-pylsur 2 tómatar 1 laukur, smátt skorinn 4 hvítlauksrif 1,5 l kjúklinga- eða sjávarréttasoð 0,5 tsk. saffran 1 tsk. paprikuduft 2 dl grænar baunir, ferskar 1 paprika, grilluð og húðin fjar- lægð ásamt kjarna 200 g smokkfiskur skorinn í skífur (má sleppa) 1 sítróna Fersk steinselja, smátt skorin Ólífuolía Salt og nýmalaður pipar Skolið bláskelina undir köldu rennandi vatni og fjarlægið það sem er kallað „skegg“. Hendið þeim skeljum sem virðast skaddaðar. Setjið í stóran pott ásamt hvítvíni. Leggið lok á pottinn og látið sjóða í 5 mínútur eða þangað til skelin opnast. Hendið þeim sem ekki opnast. Sigtið soðið frá og geymið. Losið kjötið úr skelinni en skiljið nokkrar eftir til skrauts. Skerið chorizo í bita, takið kjarnann úr tómötunum og gróf- hakkið þá. Hitið olíu á víðri pönnu, best að nota paella-pönnu. Bætið við lauk og hvítlauk og steikið smástund. Hrærið á meðan. Bætið helmingn- um af pylsubitunum út í, saffran og paprikuduftinu. Látið malla smá stund og hrærið. Setjið tómatana út á pönnuna ásamt hrísgrjónum og hrærið allt saman í nokkrar mínútur. Þá er krafturinn af bláskelinni settur út í og 1/3 af kjúklingakraftinum. Hrærið og látið suðuna koma upp. Bætið krafti eftir þörfum og látið hrísgrjónin malla rólega í 15-18 mínútur. Hrærið af og til. Saltið ef með þarf. Þá er bláskelin sett saman við ásamt baunum og papriku. Bætið við kjúklingakrafti eftir þörfum. Hitið upp aðra pönnu og setjið ólífuolíu á hana. Steikið afganginn af pylsubitunum á meðalhita. Bætið smokkfiskinum á pönnuna og kryddið með salti og pipar. Þegar paellan er borin fram er skreytt með bláskel, smokkfisk og chorizo ásamt olíunni sem þetta var steikt upp úr. Dreifið sítrónu- safa yfir, steinselju og nýmöluðum pipar. Hvítlauksrækjur með chilli fyrir fjóra 500 g rækjur 2 dl ólífuolía, mild 7 hvítlauksrif 2 tsk. þurrkaðar chilliflögur 4 msk. blaðsteinselja, söxuð Bragðmiklar rækjur með miklum hvítlauk eru hluti af spænska tapas- hlaðborðinu. Skerið hvítlaukinn í þunnar sneiðar. Blandið olíu, hvítlauk og chilli á litla steikarpönnu. Hitið upp yfir meðalhita þar sem hvítlaukur- inn fer að taka á sig lit. Lækkið hitann og setjið rækjurnar út í og steikið í örlitla stund. Berið strax fram vel heitt. Dreifið steinselju yfir og berið fram með góðu brauði. Uppáhald Spánverja Paella með bláskel og smokkfiski. Sannkallaður veislumatur að spænskum sið. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Hvítlauksrækjur eru tapasréttur sem flestir fá sér þegar Spánn er heimsóttur. Actinica® sólarvörn með UVA og UVB vörn rakagefandi og með SPF 50+ án ilmefna og PEG-ýruefna skammtari aðstoðar þig við að nota hæfilegt magn Actinica sólarvörn er fyrsta og eina sólarvörnin sem sýnt hefur verið fram á með klínískum rannsóknum að hafi fyrirbyggjandi áhrif gegn húðkrabbameini, öðru en sortuæxli (NMSC, Non-melanoma skin cancer) hjá ónæmisbældum sjúklingum.1 Actinica fæst í öllum apótekum og á H verslun, hverslun.is. Vinsamlegast lesið notkunarleiðbeiningar sem fylgja í pakkningunni fyrir notkun. Dreifingaraðili: Icepharma Lyngháls 13 110 Reykjavík S: 540 8000 Heimild 1: Ulrich C ofl. Prevention of NMSC in OTR, BJD (S3)2009 GAL210401, Apríl 2021 4 kynningarblað 20. júlí 2021 ÞRIÐJUDAGURFASTEIGNAK AUP ERLENDIS

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.