Fréttablaðið - 20.07.2021, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 20.07.2021, Blaðsíða 8
Við verðum að horfast í augu við að glæpa- maðurinn Breivik spratt úr samfélagi eins og okkar. ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is n Halldór n Frá degi til dags Breytingar standa gegn íhalds- sömum gildum, enda er þægilegra að rugga ekki bátn- um heldur tryggja frekar stöðug- leika með kyrrstöðu. Björk Eiðsdóttir bjork @frettabladid.is HVAÐ ER PLANIÐ? Kíktu á blaðsíðu 13! Á fimmtudaginn kemur, þann 21. júlí, eru liðin tíu ár frá því að öfgamaðurinn Anders Behring Breivik myrti með köldu blóði sjötíu og sjö manns í miðbæ Oslóar og á sumardvalarstað ungliðahreyfingar norska Verkamannaflokksins á eyjunni Útey. Á eyjunni skaut hann til bana sextíu og níu ungmenni sem þar skemmtu sér áhyggjulaus og særði hundrað fimmtíu og átta til viðbótar. Í viðtali í helgarblaði Fréttablaðsins um liðna helgi var rætt við Aud Lise Norheim, sendiherra Noregs á Íslandi, um tímamótin og hvernig þjóðin hafi unnið úr þeim gríðarlegu sárum sem hryðjuverkin ollu. Jens Stoltenberg, þáverandi formaður Verkamanna- flokksins og forsætisráðherra landsins, lagði í kjölfar voðaverkanna mikla áherslu á að hatrið fengi ekki að sigra og segir Aud Lise ástina hafa verið allsráðandi dagana og vikurnar eftir árásirnar. En svo hafi tónn- inn því miður breyst og jafnvel mátt heyra ásakanir um að Verkamannaflokkurinn, og sérlega ungliða- hreyfingin, væri að nota harmleikinn sér til pólitísks framdráttar, til að afla sér stuðnings. Hún segir að nú, að áratugi liðnum, eigi sér stað nauðsynlegt uppgjör, samtal sem fyrst nú sé hægt að eiga. Norðmenn tóku aðdáunarlega vel á þessum harmleik og gáfu Breivik enga rödd eða pláss og mættu hatrinu með ást. En nú tíu árum síðar getum við kannski leyft okkur að reyna að skilja þennan hryllilega glæp. Breivik er hægri kristinn öfgamaður og það var hatur hans á fjölmenningu sem rak hann áfram. Fjölmenning!? Við, rétt eins og aðrir íbúar heimsins, búum við fjölmenningu og hún er enginn valkostur. Hver væri annars sá valkostur? Fámenning, einmenn- ing eða ómenning? Og hvernig getur það gerst að ein- hver komist að þeirri niðurstöðu að með því að fremja jafnhryllilegan glæp og morðin í Útey voru, færist samfélag hans nær því undarlega markmiði að færast fjær fjölmenningunni? Við verðum að horfast í augu við að glæpamaðurinn Breivik spratt úr samfélagi eins og okkar. Við verðum að horfast í augu við það að hér í okkar samfélagi þrífst líka hatur í garð þeirra sem ekki falla inn í þrönga skilgreiningu sumra á einsleitu samfélagi. Öfgarnar þrífast hér líka. Yfirgnæfandi meirihluti Íslendinga vill þó opið og frjálst samfélag. Og flestum okkar finnst sjálfsagt að okkur sé tekið vel hvert sem við ferðumst eða flytjum. Þessi lífsgæði og þetta frelsi sem við teljum sjálfsögð verða ekki fengin nema með opnu samfélagi. Frelsið er ekki einhliða. Fjölmenn- ingin er þess vegna bein afleiðing af þessu frelsi. Þó svo að það hafi klárlega verið rétt afstaða að veita hryðjuverkamanninum og fjöldamorðingjanum sem minnsta mögulega athygli þá megum við ekki gleyma hvaðan hann kom og hvaða hugmyndir drifu hann áfram. Við verðum að halda samtalinu lifandi og við verðum að halda augunum opnum og gæta þess að slíkar hugmyndir fái sem allra minnsta næringu. Fögnum fjölmenningu! n Fögnum fjölmenningu Alþingiskosningar eru handan við hornið. Skoðana- kannanir benda til þess að enginn hafi skýrt umboð kjósenda til þess að taka við stjórnartaumunum. Því skiptir hver einasta prósenta öllu máli upp á það hverjir mynda meirihluta og móta þannig farveg Íslands næstu fjögur árin. Undanfarin kjörtímabil hafa gert það að verkum að hugmyndin um vinstri og hægri skiptir minna máli en nokkru sinni fyrr. Þess í stað má greina f lokka í sundur eftir því hversu frjálslyndir þeir eru annars vegar og svo hversu íhaldssamir þeir eru hins vegar. Frjálslyndið virðist vera eftirsóknarvert í ljósi þess að nær allir f lokkar reyna að eigna sér þann stimpil. Engu að síður treysta ekki allir f lokkar neytendum til að velja sjálfir hvað þeir kaupa í mat- vöruverslunum, hvernig þeir ferðast á milli staða eða einfaldlega hvernig og hversu lengi þeir skemmta sér. Þá eru allnokkrir f lokkar sem kjósa frekar áfram- haldandi stríð við fíkniefni þrátt fyrir að það stríð sé ósigrandi. Í raun uppfylla ekki margir f lokkar skilyrði frjálslyndis. Breytingar standa gegn íhaldssömum gildum, enda er þægilegra að rugga ekki bátnum heldur tryggja frekar stöðugleika með kyrrstöðu. Það var á þessum forsendum sem núverandi ríkisstjórn var mynduð. Þótt ríkisstjórnarflokkarnir séu á önd- verðum meiði á mælikvarða hægri og vinstri hefur það skipt sáralitlu því þeir ná allir saman um íhalds- semi: Að hrófla ekki við kerfinu að neinu leyti. Slík hefur verið raunin í bráðum fjögur ár. Kyrrstaðan hefur ekkert gert til að gera lífið frjálsara, réttlátara og einfaldara. Einn f lokkur hefur mælst hæstur allra í kosninga- vitum þegar kemur að frjálslyndi og auk þess talað fyrir margvíslegum frelsismálum á yfirstandandi kjörtímabili. Sá f lokkur er Viðreisn. Miðað við skoð- anakannanir skiptir hvert einasta atkvæði máli upp á það hvort Viðreisn takist að mynda meirihluta um frjálslyndi, framfarir og mannúð án forræðishyggju frekar en áframhaldandi stöðnun. Í haust getur þú haft áhrif á það með atkvæði þínu. n Ekkert gerist í íhaldi Geir Finnsson varaborgarfull- trúi og for- maður innan- ríkismálanefndar Viðreisnar. toti@frettabladid.is Hákarl í lóninu Eigendur Sky Lagoon tróðu marvaðann með nokkuð fyrir- sjáanlegum bægslagangi um helgina en römbuðu loks á réttu björgunarsundtökin með yfirlýsingu um að ekki verði lengur gerður greinarmunur á sundfötum karla og kvenna. Konur megi því vera berar að ofan í lóninu. Varla þarf mjög sterk sundgleraugu til þess að sjá hversu augljósa mismunun hitt felur í sér og hjá þjóð sem tekur á móti erlendu ferðafólki með því að reyna að troða ofan í það úldnum hákarli með slurk af brennivíni heldur auðvitað engu vatni að banna ber bjóst af tillitssemi við gesti frá öðrum menningarheimum. Kúbudeila Sósíalista Ástandið á Kúbu hefur verið í brennidepli í Facebook-hópi Sósíalistaflokksins þar sem málshefjandinn, Gunnar Smári Egilsson, lýsti því yfir að Sósíalistar hlytu að styðja kröfur almennings um lækkun matarverðs og betri heilbrigðis- þjónustu. Deildar meiningar eru innan hópsins og í samtali við Fréttablaðið.is í gær sagðist Gunnar Smári ekki „kalla þetta gáfulegustu umræðuna um Kúbu sem hefur verið til í heim- inum en fólk bregst bara við með ýmsum hætti, eins og oft gerist í f lóknum málum.“ n SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 20. júlí 2021 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.