Fréttablaðið - 20.07.2021, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 20.07.2021, Blaðsíða 18
Að ýmsu er að huga þegar fasteign er keypt á Spáni. Félag húseigenda á Spáni var stofnað árið 1989 og hefur aðstoðað fjölda Íslendinga á þeim tíma. Það var fyrir algjöra tilviljun að Jón Hólm Stefánsson og eigin- kona hans, Rósa Signý Finnsdóttir, eignuðust einbýlishús í grónu og öruggu einbýlishúsahverfi á Spáni, nánar tiltekið í Los Altos-hverfinu nærri Torrevieja en húsið eiga þau með dóttur sinni og tengdasyni. Jón er formaður stjórnar Félags húseigenda á Spáni (FHS) sem stofnað var árið 1989 en félagið leggur áherslu á að félagsmenn kynnist Spáni, menningu og fegurð landsins. „Félagið vinnur auk þess að því að koma upp gæða- vottunarkerfi þar sem viðkomandi þjónustuaðilar fá sérstaka viður- kenningu frá FHS fyrir góða og trausta þjónustu við félagsmenn ásamt því að veita félagsmönnum ýmsa afslætti. Það má segja að aðaláhersla félagsins snúist um öryggis- og þjónustumál fyrir félagsmenn enda er mottó félags- ins: FHS, öryggisins vegna.“ Hann segir þau hjónin hafa notið öryggis nágranna sem búa allt árið í húsum sínum, þar á meðal Spánverja, Þjóðverja og Rússa. „Við höfum notað húsið fyrir fjölskylduna eingöngu og notið þess mjög að dvelja þarna. Við eigum stóran fjölskyldubíl sem við geymum í sérstakri bílageymslu rétt við flugvöllinn á Alicante. Þegar við komum á flugvöllinn erum við sótt og ekið að okkar bíl. Svipað fyrirkomulag er þegar við förum heim til Íslands, þá ökum við að bílageymslunni og erum keyrð á flugvöllinn. Þetta gera mjög margir Íslendingar sem búa hér hluta árs og er afar gott fyrirkomulag.“ Mikill áhugi Tilurð félagsins má rekja til ársins 1987 en þá höfðu nokkrir Íslendingar keypt sér húseignir á suðurströnd Spánar. „Fleiri landsmenn höfðu áhuga en helsta áhyggjuefnið var hversu erfiðar samgöngur til Spánar voru. Reynt var að gera samninga við ferða- skrifstofur um flug en erfiðlega gekk og hópurinn var ekki nægi- lega samstilltur til átaka. Það var því ákveðið að stofna félag til að gera samningsstöðu betri og var ákveðið að nefna félagið Félag hús- eigenda á Spáni. Nokkur óvissa var um hversu margir myndu mæta til slíks stofnfundar en þegar til fundarins kom mætti mikill fjöldi fólks, sem sýndi hversu áhugi var mikill. Félagið var stofnað þann 12. nóvember árið 1989 og er því rúmlega 30 ára gamalt.“ Fjölbreytt verkefni Hann segir helstu verkefni félags- ins í dag vera ýmiss konar þjónustu við félagsmenn. „Félagið hefur meðal annars í sinni þjónustu öryggis- og þjónustufulltrúa. Núverandi fulltrúi hefur stundað nám við spænskan háskóla, talar spænsku og þekkir vel opinbert regluverk og menningu Spánar. Starf öryggis- og þjónustufulltrúa hefur meðal annars falist í aðstoð vegna samskipta við fjármála- stofnanir, samskipta við hið opin- bera varðandi ýmis mál, að setja fólk inn í heilbrigðiskerfi Spánar og aðstoða við almenn skattamál. Drjúgur tími fer einnig í samskipti við lögfræðistofur vegna erfða- skrármála, eigendaskiptingu fast- eigna og samskipti við lögregluna vegna til dæmis tjóna, innbrota, þjófnaðar og glataðra skilríkja.“ Vikulega er haldnir fundir með öryggisfulltrúa FHS fyrir félagsmenn auk þess sem hann miðlar einnig upplýsingum og fræðslupistlum á Facebook-síðu og vef félagsins. „Öryggis- og þjón- ustufulltrúi er með öryggissíma opinn allan sólarhringinn, ef um neyðartilfelli er að ræða, og einnig almennan síma og netfang. Þá eru náin og mikilvæg samskipti milli FHS og ræðismanns Íslands á svæðinu þegar kemur til dæmis að því að útvega ný skilríki og að leysa ýmis persónuleg mál sem koma upp.“ Hagstætt verðlag Það eru ýmsir kostir við að kaupa fasteign á Spáni að sögn Jóns þótt erfitt sé að mæla með einu svæði umfram annað. „Hér er verð- lagið hagstætt og meira verður úr framfærslulífeyrinum en á Íslandi. Þá er veðurfar afar gott, einkan- lega á svæði Orihuela Costa eða Torrevieja-svæðinu, en þar bæta saltvötnin andrúmsloftið sem er að mati Alþjóðaheilbrigðismála- stofnunarinnar eitt það heilsusam- legasta í heiminum. Þessi land- svæði sem ég minntist á eru syðst á Spáni en innar í landinu og norðar er veðurfar og umhverfi nokkuð annað en þó heillandi fyrir marga. Ef fólk þarf næði og slökun, þá er gott að kynnast mannlífi á Spáni, sem er afslappað og róandi. Þar gildir að draga andann djúpt og bíða afgreiðslu, þangað til að þér kemur í röðinni. Engan æsing, bara slökun og njóta.“ Staðsetning skiptir máli Þegar fólk hefur í hyggju að kaupa húseign á Spáni þarf að liggja fyrir hvar á Spáni fólk vill vera, segir Jón. Síðan þarf að velja traustan fasteignasala og ákveða hvort kaupa eigi fasteign til útleigu, þegar eigendur eru ekki að nota fasteignina, eða hvort um er að ræða bústað fyrir fjölskylduna eingöngu. „Þetta atriði er mikilvægt varðandi stað- setningu fasteignarinnar. Ef leigja á fasteignina, er betra að hún sé í fjölbýlishúsi með góðri sameign, til dæmis sundlaug, leiktækjum, líkamsrækt og bílakjallara ásamt góðri staðsetningu upp á verslanir og matsölustaði. Sé húsið hugsað eingöngu fyrir fjölskylduna er hægt að skoða eign á rólegum og öruggum stað, innan um heima- fólk.“ Skoða þarf vel lánamöguleika lánastofnana og athuga að aldur lántakenda takmarkar lánstíma. „Svo þarf að huga vel að því hvern- ig fasteignin snýr við sól. Ekki er gott að lenda snemma dags í skugga frá öðrum húsum en sumir flaska á þessu atriði. Svo er einnig nauðsynlegt að fá skoðunarvott- orð frá viðurkenndum matsmanni á ástandi fasteignar, ef fasteignin er ekki ný.“ Bíða spennt eftir haustinu Vegna heimsfaraldursins hafa hjónin ekki getað dvalið í húsinu sínu í langan tíma en hafa í staðinn nýtt tímann til að láta vinna viðhaldsverkefni í húsinu. „Við semjum við Spánverja varðandi viðhaldsvinnu og breytingar. Okkar reynsla er sú, að þessir innfæddu séu hvort tveggja í senn vandvirkir og ábyggilegir. Á næstu mánuðum vonumst við til að geta glaðst með afmælisbörnum haustsins í stóra húsinu okkar þar sem allir komast fyrir.“ n Enginn æsingur í sólinni á Spáni Jón og Rósa eignuðust einbýlishús í grónu og öruggu einbýlishúsahverfi á Spáni, nánar tiltekið í Los Altos-hverfinu nærri Torrevieja. MYNDIR/AÐSENDAR Jón Hólm Stefánsson, formaður stjórnar Félags húseigenda á Spáni. Hjónin Jón Hólm og Rósa Signý á góðri stundu á spænskum veitingastað. Hér er verðlagið hagstætt og meira verður úr framfærslu­ lífeyrinum en á Íslandi. Þá er veðurfar afar gott, einkanlega á svæði Orihuela Costa eða Torrevieja­svæðinu. 6 kynningarblað 20. júlí 2021 ÞRIÐJUDAGURFASTEIGNAK AUP ERLENDIS

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.