Fréttablaðið - 20.07.2021, Blaðsíða 38
stod2.is
Óttar Guðmundsson geð-
læknir fer fyrir Þingvalla-
göngu þar sem hann mun
geðgreina Snorra Sturluson,
rekja þingævintýri hans úr
Sturlungu og ítreka kröfu sína
um að stjórnmálasambandi
við Noreg verði slitið þar til
Norðmenn gangist við og
biðjist afsökunar á morðinu á
Snorra 1241.
toti@frettabladid.is
„Við byrjum hjá Hakinu klukkan
átta og göngum niður að kirkjunni,“
segir Óttar Guðmundsson geðlækn-
ir um Þingvallagönguna sem hann
leiðir á fimmtudagskvöld á meðan
hann ræðir meðal annars tengingar
Snorra Sturlusonar við þingstaðinn
forna.
„Efnið er Snorri Sturluson, ævi
hans og hvernig hann tengist Þing-
völlum. Það eru nokkrar sögur úr
Sturlungu þar sem Snorri er á Þing-
völlum og lendir þar í ýmsum ævin-
týrum og ég segi frá því,“ segir Óttar
sem mun að einhverju leyti styðjast
við bók sína Sturlunga geðlæknis-
ins. Ekki síst við upphaf göngunnar
þar sem hann rýnir í persónuleika
skáldsins.
„Við Hakið mun ég tala um og
geðgreina Snorra og ræða hvaða
greiningar henti honum og hans
fjölskyldu best. Ég fer ansi
mikið í fjölskyldumálin
og a fdr if bar nanna
hans, eiginkvenna og
ástkvenna. Þannig að
þetta fer svona um víðan
völl,“ segir Óttar sem gerir
ráð fyrir að gangan taki um
það bil eina og hálfa klukku-
stund.
Frá Hakinu er stefnan
tekin niður Almannagjá
og að Lögbergi þar sem
Óttar fer yfir tengingar
Snorra við Þing velli.
„Og við kirkjuna ræði
ég um hörmuleg enda-
lok skáldsins. Þetta er nú
náfrændi minn svo mér er
málið skylt.“
Sturlunguþráhyggjan
Sturlungar hafa lengi verið
Óttari ofarlega í huga og
koma meðal annars ítrek-
að við sögu í Bakþönkum hans í
Fréttablaðinu. Svo mjög reyndar að
spyrja má hvort Sturlunga sé orðin
að einhvers konar þráhyggju hjá
honum.
„Þetta er náttúrlega orðið að
ákveðinni þráhyggju en maður
verður náttúrlega að halda frænd-
um sínum á lofti,“ segir Óttar og
bendir á að sá siður sé mjög til
heilla.
„Þetta er fyrst og fremst um
Snorra Sturluson og Snorra og
Alþingi og síðan rek ég svona sögu
Snorra og enda síðan með þessi
hörmulega andláti Snorra þegar
Noregskonungur lætur drepa hann
1241,“ segir Óttar sem ætlar að nota
tækifærið til þess að ítreka kröfu
sína um að drápið á Snorra verði
gert upp við Norðmenn.
Opinberar hefndaraðgerðir
„Ég mun viðra þessa kröfu mína
að Íslendingar slíti öllu stjórn-
málasambandi við Noreg
þangað til að Norðmenn
haf i opinberlega beðist
afsökunar á þess-
um gjörningi.
Krafan er
að seg ja
upp öllu
s t j ó r n -
málasam-
bandi við
N o r e g ,
r e k a
sendiherr-
ann heim og
skila aftur forljótri styttu af Snorra
sem Norðmenn gáfu Íslendingum í
háðungarskyni og stendur í Reyk-
holti.
Ég er búinn að halda þessu á lofti
nokkuð lengi en það hefur enginn
hlustað á þetta. Það hefur ekki
verið neinn hljómgrunnur fyrir því
að slíta öllu stjórnmálasambandi
og öllum samskiptum við Noreg
þangað til þeir biðjast opinber-
lega afsökunar á morðinu á Snorra
Sturlusyni.“
Skemmtilegar göngur
Þingvallagöngurnar eru farnar
reglulega á fimmtudagskvöldum
og segja má að fyrir þremur vikum
hafi Óttar og Guðni Ágústsson gefið
ákveðið fordæmi fyrir því að hlutur
þekktra einstaklinga sé réttur í leið-
inni þegar Jónas frá Hriflu fékk upp-
reist æru í meðförum þeirra.
„Við Guðni Ágústsson vorum
þarna fyrir þremur vikum og vorum
að tala um Jónas frá Hriflu og fórum
um hann mjög fögrum orðum, sem
er dálítið merkilegt,“ segir Óttar og
bætir við að Þingvallagöngurnar
séu almennt mjög skemmtilegar en
þar nálgist þeir sem leiði gönguna
viðfangsefnið út frá sjálfum sér og
sínum áhugamálum.
„Þetta var mjög vel sótt hjá okkur
Guðna og núna verða með mér í för
tvær söngkonur. Signý Sæmunds-
dóttir og Jóhanna Þórhallsdóttir,
konan mín, og þær munu stjórna
fjöldasöng. Þannig að þetta verður
mjög þjóðlegt og allt í anda Snorra
Sturlusonar.“
Engin veðurgeðlægð
Þegar talið berst að veðrinu, sem
hefur einna helst legið nokkuð
þungt á fólki sunnanlands, er Óttar
pollrólegur og bjartsýnn. „Veður er
bara veður. Ég heiti á Þorlák helga að
verðrið verði gott. Það þykir mjög
gott að heita á hann því hann lastaði
aldrei veðrið,“ segir geðlæknirinn
sem hefur ekki þurft að hjálpa fólki
í veðurgeðlægð það sem af er sumri.
„Ekki ennþá en það getur verið að
það komi að því,“ segir Óttar og hlær.
Þetta tilheyrir bara þessu íslenska
sumri. Það er mismunandi og ég læt
þetta lítið á mig fá. Það hlýtur nú að
lagast og það hlýtur að fara að birta
til. Við treystum því að Þorlákur
helgi breyti veðrinu.“ n
Óttar krefst aðgerða
vegna morðsins
á Snorra Sturlusyni
Óttar Guðmundsson ásamt Norðmanninum Leifi Eiríkssyni sem verður víðs-
fjarri góðu gamni í Þingvallagöngunni á fimmtudagskvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Óttar, Guðrún Eggertsdóttir, barnabarn Jónasar frá Hriflu, og Guðni Ágústs-
son á Þingvöllum þar sem fögrum orðum var farið um Jónas. MYND/AÐSEND
Óttar telur
réttast að
skila forljótri
styttunni af
Snorra til
Noregs.
Krafan er að segja upp
öllu stjórnmálasam-
bandi við Noreg, reka
sendiherrann heim og
skila aftur forljótri
styttu af Snorra.
18 Lífið 20. júlí 2021 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ