Fréttablaðið - 20.07.2021, Qupperneq 2
Enn í fullu fjöri eftir fjóra mánuði
Ferskur fiskur og fiskréttir,
lax á grillið og humarsúpan í hádeginu.
Sjávarhornið - fiskverslun, Bergstaðarstræti 14
Elísabet Margeirsdóttir
afrekshlaupari kom sjálfri sér
á óvart með góðum árangri
í Laugavegshlaupinu aðeins
fimm mánuðum eftir að hafa
eignast barn.
svavamarin@frettabladid.is
ÍÞRÓTTIR „Allan tíma sem ég fæ
fyrir sjálfa mig er ég búin að nota
síðustu fjóra eða fimm mánuði í
æfingar,“ segir Elísabet Margeirs-
dóttir sem tók þátt í Laugavegs-
hlaupinu um helgina, aðeins fimm
mánuðum eftir barnsburð.
Laugavegshlaupið er 55 kílómetr-
ar og Elísabet kom fjórða í mark í
kvennaf lokki á f imm klukku-
stundum og 48 mínútum. „Að fara
í þetta hlaup var gríðarleg áskorun
svona stuttu eftir fæðingu,“ segir
hún. Sigurvegari í hlaupinu varð
Andrea Kolbeinsdóttir sem hljóp á
fjórum klukkustundum og tæpum
56 mínútum.
Elísabet er þrautreynd afreks-
kona í hlaupum og hefur stundað
utanvegahlaup í meira en áratug.
Hún og kærasti hennar Páll Ólafs-
son eignuðust dreng í febrúar sem
er nú orðinn fimm mánaða. Það
er ekki algengt að konur með lítið
barn á brjósti taki þátt í svona
löngu hlaupi en Elísabet hélt sér í
góðu formi á meðgöngunni sem
hún segir hafa vera dásamlega.
Sjálf segir Elísabet engan hetju-
skap á bak við þennan árangur.
„Ég er búin að stunda þetta lengi
en það var mögnuð tilfinning að
koma í mark á þessum tíma og
kom mér og mörgum á óvart,“ segir
hlauparinn og undirstrikar að hún
hafi notið góðrar aðstoðar þjálfara
og sjúkraþjálfara við undirbúning-
inn. „Dómgreind manns er ekki
alltaf sú besta þegar það kemur að
manni sjálfum og þá er gott að hafa
þjálfara.“
Elísabet segist hafa hlaupið
Laugaveginn í alls kyns aðstæðum.
Var þetta tólfta skiptið sem hún tók
þátt. Hún kveðst nú stefna á þátt-
töku í OCC-keppninni í Frakklandi
í lok ágúst þar sem hlaupið er við
Mont Blanc. Þá hyggst hún einn-
ig verða á heimsmeistaramótinu í
Taílandi í nóvember. Covid setji þó
líklega strik í þann reikning.
„Það er frekar ólíklegt að sú
keppni verði haldin og svo er ég
náttúrulega með ungbarn. Þetta
verður örugglega ekkert voðalega
auðvelt ferðalag fyrir mig,“ játar
Elísabet varðandi hugsanlega Taí-
landsför.
Síðustu fimm ár hefur Elísabet,
sem einn af eigendum Náttúru-
hlaupa, leiðbeint og þjálfað aðra
hlaupara. Hún segir hugarfarið
skipta miklu máli. „Áskorunin
núna fólst til dæmis í því að nýta
lausu stundirnar í hlaupin frekar
en annað. Maður þarf að velja og
hafna.
Þú getur verið lengi að ná þér
eftir fæðingu þrátt fyrir að vera
góður hlaupari. Það getur tekið
grindarbotninn sex til tólf mán-
uði að jafna sig og ég þurfti að æfa
með það í huga,“ segir Elísabet sem
kveðst hafa farið rólega af stað og
hlustað á líkamann.
„Ég var ekki að setja miklar
kröfur á mig fyrir þetta hlaup enda
byrjaði ég aðeins að æfa reglulega
fyrir tveimur mánuðum. Það kom
mér því á óvart að að ná þessu á
undir sex klukkustundum.“ n
Elísabet hljóp Laugaveginn
enn með barn sitt á brjósti
„Að fara í þetta hlaup var gríðarleg áskorun svona stuttu eftir fæðingu,“ segir
Elísabet Margeirsdóttir, sem er hér með Margeir litla. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Laugavegshlaupið 2021
– úrslit í kvennaflokki
1. Andrea Kolbeinsdóttir
04:55:49
2. Rannveig Oddsdóttir
05:09:55
3. Íris Anna Skúladóttir
05:20:20
4. Elísabet Margeirsdóttir
05:48:16
hjorvaro@frettabladid.is
AKRANES Bæjarráð Akraness sam-
þykkti á fundi sínum í síðustu viku
að heimila veitingu vínveitingaleyfis
til Knattspyrnufélagsins ÍA en Skaga-
menn hyggjast opna lítið og settlegt
kaffihús við Aggapall.
Aggapallur er rólegur og þægi-
legur staður við Langasand en þar er
leikstaður fyrir krakka og sólbaðs-
staður. Bæjarráð leggur áherslu á að
ÍA gæti vel að því að tryggja ásættan-
lega umgjörð rekstrarins með tilliti
til þeirrar starfsemi sem fer fram í
íþróttamannvirkjum Akraness.
Til þess að kaffihúsið geti orðið að
veruleika þarf Sýslumaðurinn á Vest-
urlandi að veita heimild til reksturs
veitingastaðar á svæðinu en umsókn
þess efnis liggur fyrir hjá embættinu.
„Planið er að vera með kaffihús
með ýmiss konar veitingum og hafa
opið yfir sumartímann. Við höfum
verið með veitingasölu þarna í
kringum leiki ÍA og viljum fá að
hafa opið lengur en bara í kringum
leikina,“ segir Geir Þorsteinsson,
framkvæmdastjóri KFÍA.
„Við erum með afmarkaðan opn-
unartíma og ætlum bara að selja
það helsta sem gestir og gangandi
við Aggapall geta gætt sér á þegar
þeir njóta útiverunnar þar. Þetta er
vinsæll staður sem Skagamenn nota
í kringum starfsemi ÍA og bara á góð-
viðrisdögum,“ segir Geir enn fremur.
Í umsókn Skagamanna til Sýslu-
manns er þess óskað að kaffihúsið
megi vera opið frá 12.00 til 22.00
virka daga og 09.00 til 23.00 aðfara-
nótt frídaga og að heimilt verði að
taka við 50 gestum í sæti. n
ÍA fær vínveitingaleyfi fyrir Aggapall
Geir Þorsteinsson,
framkvæmdastjóri
KFÍA.
Fjórir mánuðir er liðnir frá því að eldgos hófst í Geldingadölum. Virkni gossins hefur verið kaflaskipt síðustu daga. Vísindamenn mæla nú kvikustrókavirkni
gossins og eðli og vöxt hraunsins. Skyggni hefur verið lélegt undanfarið en hægt var að fara í þyrluflug í fyrsta skipti í þrjár vikur í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
mhj@frettabladid.is
COVID-19 Arnar Þór Stefánsson
hæstaréttarlögmaður telur það ekki
rétt metið hjá ríkisstjórninni að það
hefði brotið gegn jafnræðisreglu
að skikka alla sem eru búsettir á
Íslandi í skimun á landamærunum,
eins og sóttvarnalæknir mælti með.
Það hefði jafnvel verið meira meðal-
hóf í því að skima bara þá sem eru
búsettir á Íslandi fremur en alla sem
koma til landsins.
„Það er grunnþáttur í þessari jafn-
ræðisreglu að það má „mismuna“
ef það styðst við málefnaleg rök.
Mér finnst það alveg styðjast við
málefnaleg rök að Íslendingar, eða
réttara sagt þeir sem eru búsettir á
Íslandi, þurfi að sæta skimun í Leifs-
stöð eða framvísa PCR-prófi,“ segir
Arnar Þór.
Hann segir greinarmun leyfi-
legan ef hann er málefnalegur: „Það
má alveg gera greinarmun á hópum
fólks ef það byggir á málefnalegum
rökum og málefnalegu rökin eru að
Íslendingar eru líklegri til að fara inn
í tengslanetið sitt.“ n
Gagnrýnir túlkun
á jafnræðisreglu
Arnar Þór Stefáns-
son hæstaréttar-
lögmaður.
2 Fréttir 20. júlí 2021 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ