Fréttablaðið - 20.07.2021, Side 9
Fjöldi barna á biðlistum Þroska- og
hegðunarstöðvar, Greiningar- og
ráðgjafarstöðvar ríkisins og Barna-
og unglingageðdeildar (BUGL)
hefur margfaldast síðastliðin ár.
Um er að ræða grunngeðheil-
brigðisþjónustu og bráðageðheil-
brigðisþjónustu, þjónustu við börn
sem eru alvarlega veik. Núverandi
ríkisstjórn hefur brugðist þessum
börnum og fjölskyldum þeirra.
Þungbærar og
langvarandi afleiðingar
Ef grunngeðheilbrigðisþjónusta
er ekki tryggð þá eykst vandinn,
börnin verða alvarlega veik og
þurfa þá eðli málsins samkvæmt á
brýnni, meiri og mörg hver á lang-
varandi þjónustu að halda. Börn
sem ekki njóta þjónustu strax eiga
meiri hættu á að lenda í vanvirkni
sem getur fylgt þeim inn í unglings-
árin, jafnvel fullorðinsárin og getur
leitt til örorku. Það er því gríðarlega
mikilvægt að heilbrigðiskerf ið
grípi þau sem fyrst og veiti við-
eigandi þjónustu. Samkvæmt 24.
grein Barnasáttmála Sameinuðu
þjóðanna segir að viðurkenna
eigi „… rétt barns til að njóta besta
heilsufars sem hægt er að tryggja,
og aðstöðu til læknismeðferðar og
endurhæfingar. Aðildarríki skuli
kappkosta að tryggja að ekkert
barn fari á mis við rétt sinn til að
njóta slíkrar heilbrigðisþjónustu.“
Sú er því miður ekki raunin á
Íslandi í dag.
Foreldrar og forsjáraðilar fara
heldur ekki varhluta af ástand-
inu. Ef geðheilbrigðisþjónusta við
börn er ekki tryggð á fyrri stigum
eykst andlegt álag á foreldra og
forsjáraðila á meðan beðið er eftir
þjónustu. Langvarandi andlegt álag
getur einnig valdið líkamlegum
einkennum sem svo getur þróast
í alvarlegan heilsubrest. Í sumum
tilvikum dregur svo úr virkni ein-
staklingsins að hann getur jafnvel
ekki sinnt starfi á vinnumarkaði og
í erfiðustu tilvikunum er þekkt að
sumir foreldrar hljóta örorku í kjöl-
far slíks álags.
Samkvæmt skýrslu Ríkisendur-
skoðunar frá árinu 2015 voru rúm-
lega 390 börn á biðlista Þroska-
og hegðunarstöðvar, 120 börn á
biðlista göngudeildar Barna- og
Ríkisstjórnin stefnir velferð barna í tvísýnu
Ellen Calmon
borgarfulltrúi
Samfylkingar-
innar og
frambjóðandi
á lista
Samfylkingar-
innar í
Reykjavíkur-
kjördæmi suður.
unglingageðdeildar Landspítala
(BUGL) og 208 börn á biðlista
hjá Greiningar- og ráðgjafarstöð
ríkisins. Í skýrslunni stendur: „Að
mati Ríkisendurskoðunar er sá
langi biðtími sem einkennt hefur
geðheilbrigðisþjónustu barna og
unglinga óviðunandi. Auk þess að
ganga gegn lögbundnum skyldum
ríkisins stefnir þessi bið bæði lang-
tímahagsmunum þess og velferð
einstaklinga í tvísýnu.“
Biðlistastjórn barnanna 2021
Árið er 2021 og biðlistinn hefur
bara lengst þrátt fyrir alvarlegar
athugasemdir Ríkisendurskoðunar.
Núna í júlí eru um 750 börn á bið-
lista hjá Þroska- og hegðunarstöð,
í mars var 131 barn á biðlista hjá
BUGL, í janúar voru 343 börn á bið-
lista hjá Greiningar- og ráðgjafar-
stöð ríkisins og allt að tveggja ára
bið eftir þjónustu.
Samkvæmt þeim upplýsingum
sem ég hef fengið í samtölum við
fagfólk þá má gera ráð fyrir að bið-
listar hjá bæði BUGL og Greiningar-
og ráðgjafarstöðinni telji nú f leiri
börn um miðsumar en þau voru á
fyrsta ársfjórðungi þessa árs.
Því ætti öllum að vera ljóst að
núverandi ríkisstjórn er hvorki að
fara eftir lögum í landinu, Barna-
sáttmálanum, né hefur hún brugð-
ist við alvarlegum athugasemdum
Ríkisendurskoðunar frá árinu 2015.
Fjárfestum í börnunum
Það er rándýrt fyrir samfélagið að
hafa börn á biðlistum. Það kostar
okkur fjárhagslega, tilfinninga-
lega, félagslega, samfélagslega, það
kostar okkur lífsgæði og vinnu-
af l. Ríkið ber höfuðábyrgð á heil-
brigðisþjónustu við börn. Biðlista-
stjórn barnanna þarf burt. Ég vil
forgangsraða f járfestingartæki-
færunum og tryggja fjárfestingu í
börnunum. n
Það er rándýrt fyrir
samfélagið að hafa
börn á biðlistum. Það
kostar okkur fjárhags-
lega, tilfinningalega,
félagslega, samfélags-
lega, það kostar okkur
lífsgæði og vinnuafl.
ÞRIÐJUDAGUR 20. júlí 2021 Skoðun 9FRÉTTABLAÐIÐ