Fréttablaðið - 20.07.2021, Page 14
Útgefandi: Torg ehf. Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumaður auglýsinga: Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103
Spánarheimili hafa starfað í
ellefu ár og eru með skrifstofur
bæði á Íslandi og á Spáni en hjá
fyrirtækinu starfa átta manns. Allt
Íslendingar sem búa meðal annars
á Spáni og þekkja til á staðnum.
„Við seljum fasteignir á Spáni
og höfum gert í mörg ár. Við erum
með skrifstofu á Alicante-svæðinu
og erum aðallega að selja fasteignir
við suðausturströnd Spánar, um
það bil frá Valencia til Almeria.
En fólk hefur alveg haft samband
við okkur sem er að kaupa annars
staðar og við höfum aðstoðað það
við pappírsferlið þó það sé ekki
alveg á okkar svæði,“ segir Bjarni
Sigurðsson framkvæmdastjóri hjá
Spánarheimilum.
„Við höfum gengið mun lengra
en aðrir við að aðstoða fólk bara
við fasteignakaup. Við förum
ekki frá borði þegar lyklarnir eru
afhentir heldur bjóðum upp á
þjónustu í kjölfar kaupanna. Þjón-
ustan sem við höfum boðið upp á
er fasteignaumsjón sem felst í eftir-
litsferðum í eignirnar. Við sendum
eigendum svo stöðupóst um hvort
allt sé í lagi. Við mætum líka á hús-
félagsfundi og höfum boðið upp á
þrifaþjónustu sem hefur nýst fólki
vel í Covid þegar ferðatakmarkanir
eru á milli landa.“
Heildstæð þjónusta
Bjarni segir að Spánarheimili bjóði
líka upp á leiguumsjón ef fólk vill
leigja út fasteignir sínar á Spáni.
„Við höfum leigt eignirnar út í
gegnum Airbnb eða aðra vefi, bæði
erlenda og íslenska. Við bjóðum
einnig upp á flugvallarakstur
og erum með deilibíla í gegnum
síðu sem heitir spanarbilar.is.
Svo rekum við upplýsingasíðuna
Spann.is. Þar getur fólk fundið
alla þjónustu sem við kemur
Spáni, eins og lögfræðiþjónustu,
til dæmis til að gera erfðaskrá eða
þjónustu sem hjálpar fólki með
öll mál tengd því að eiga fasteign á
Spáni,“ útskýrir hann.
Allir sem kaupa fasteign í
gegnum Spánarheimili fara sjálf-
krafa í vildarklúbb sem býður
meðlimum upp á ýmsa þjónustu
á Spáni á hagstæðari kjörum. Það
er til dæmis hægt að fá góð kjör á
bílaleigubíl, f lugi og golfi svo dæmi
séu nefnd.
„Við leggjum áherslu á að veita
heildstæða þjónustu við allt sem
tengist því að eiga fasteign á Spáni.
Viðskiptavinir okkar hafa alltaf
aðgang að Spánarheimilum bæði
á Spáni og á Íslandi ef einhverjar
spurningar vakna eða ef eitthvað
kemur upp sem fólk þarf aðstoð
við varðandi skemmri eða lengri
tíma búsetu á Spáni. Við getum
sagt að við erum með þjónustu í
tengslum við alla snertifleti þess
að vera kaupandi eða eigandi fast-
eignar á Spáni,“ segir Bjarni.
„Við erum bæði fasteignasala og
þjónustufyrirtæki. Við seljum fast-
eignir fyrir alla, bæði byggingar-
aðila sem eru að byggja fasteignir
á suðurströnd Spánar og fyrir eig-
endur sem vilja selja sínar eignir.
Við markaðsetjum eignir okkar
á íslenskum markaði gegnum
Spánarheimili en við erum ekki
bara að selja fyrir Íslendinga. Við
höfum aðgang að gagnagrunni
fasteignasala á svæðinu og höfum
aðgang þar að öllum eignum fyrir
kaupendur okkar.“
Bjarni segir að fólk sé oft ekki
tilbúið að kaupa fasteign strax og
vilji kannski prófa að byrja á að
leigja í nokkra mánuði til að vita
hvort svæði henti því.
„Þá bjóðum við upp á að fólk
geti leigt eignir í gegnum okkur og
fengið tilfinningu fyrir svæðinu.
Við köllum þetta að máta sig við
svæðið.“
Sérsniðnar skoðunarferðir
Á vefsíðu Spánarheimila, spanar-
heimili.is, má finna yfirlit yfir
fasteignir til sölu, en Bjarni segir
að listinn sé ekki tæmandi yfir þær
eignir sem eru í boði.
„Við leggjum mikla áherslu
á að fólk komi í skoðunarferð
ef það hefur áhuga á að kaupa
fasteign á Spáni. Við bjóðum upp
á skoðunarferðir í fimm til sjö
daga, jafnvel lengur. Innifalið í
skoðunarferð er flug og gisting. Við
reynum að bjóða upp á gistingu
í sambærilegri eign og fólk er að
spá í að kaupa til að fólk geti upp-
lifað hvernig er að dvelja í slíkri
eign,“ segir Bjarni. Hann útskýrir
að skoðunarferðirnar séu ekki
hópferðir heldur sérsniðnar að
væntanlegum kaupanda, hvort
sem það er einstaklingur eða par.
„Við förum með fólkið í skoðun-
arferð svo það fái innsýn í svæðið
og sjái hvað það býður upp á. Hvort
sem fólk vill vera nálægt strönd,
golfvelli eða öðru. Við sýnum
viðskiptavininum allar tegundir
eigna sem eru í boði miðað við
hans leitarskilyrði. Við höfum líka
oft samband við aðrar fasteigna-
sölur sem eru með svipaðar eignir
og viðskiptavinurinn leitar eftir.
Það gerum við til að finna bestu
eignina fyrir okkar viðskiptavini.“
Bjarni segir að verðið á einnar
viku skoðunarferð sé 89.000
krónur, bæði fyrir flug og gistingu
en skoðunarferðargjaldið er svo
endurgreitt ef af kaupum verður.
Viðskiptavinir pakkaðir
í bómull
Ef af kaupum verður leiðir starfs-
fólk Spánarheimila viðskiptavin-
ina í gegnum allt ferlið á íslensku.
„Kaupferlið á Spáni er annað en
á Íslandi. Það þarf að gera ýmis-
legt sem við aðstoðum fólk við.
Það þarf til dæmis að fá spænska
kennitölu til að komast inn í
kerfið á Spáni. Einnig þarf að opna
bankareikning þar til að geta
beintengt alla framtíðarreikninga
vegna eignarinnar í greiðslu-
þjónustu. Ef fólk ætlar að sækja um
lán þá höfum við milligöngu um
það að fá tilboð í lán í spænskum
bönkum,“ útskýrir Bjarni
„Fólk þarf þá að leggja fram
helstu gögn sem við þekkjum
hér, eins og afrit af skattaskýrslu,
launaseðlum, greiðsluseðlum af
lánum og svo framvegis. Þetta er
svo allt þýtt af okkar hálfu. Innan
okkar raða starfar íslenskur lög-
giltur skjalaþýðandi. Við vinnum
málið alveg frá a-ö fyrir okkar
kúnna, útskýrum þá lánamögu-
leika sem eru í boði og sjáum um
að þýða og túlka þegar kemur að
því að skrifa undir afsal. Ef við-
skiptavinurinn fær svo bréf eða
tölvupóst á spænsku þá er alltaf
hægt að koma á skrifstofuna til
okkar og við aðstoðum. Við erum
með okkar samlanda pakkaða í
bómull í gegnum allt ferlið.“ n
Bjarni Sigurðsson segir eigendur alltaf geta leitað til skrifstofu Spánarheimila eftir aðstoð.
Spánarheimili
bjóða kaup-
endum upp
á ókeypis
skoðunarferð
til Spánar til að
skoða fasteignir.
Við getum sagt að
við erum með
þjónustu í tengslum við
alla snertifleti þess að
vera kaupandi eða eig-
andi fasteignar á Spáni.
Bjarni Sigurðsson
2 kynningarblað 20. júlí 2021 ÞRIÐJUDAGURFASTEIGNAK AUP ERLENDIS