Fréttablaðið - 20.07.2021, Síða 24
Ef ég hitti á eldra
fólk spurði ég oft
hvaða leiðir það sjálft
færi á milli þorpa og
þannig kynntist ég
gömlum þjóðleiðum.
Sólskinið, Mið
jarðarhafsmatar
æðið og afslappaður
lífsstíll eru allt ástæður
fyrir því að Spánverjar
lifa lengur en flestar
aðrar þjóðir.
Spánn er líklega vinsælasti
sumardvalarstaður Íslend-
inga og það er engin furða
að marga Frónbúa dreymi
um að vera þar allan ársins
hring. En hvernig ætli það sé
í raun og veru að búa á Spáni
og hvers vegna flytja svo
margir þangað?
oddurfreyr@frettabladid.is
Spánn er fjölbreytt og fjölmenn-
ingarlegt land þar sem siðir, venjur
og tungumál eru ólík milli svæða.
Í suðrinu er lífsstíllinn almennt
afslappaðri og síestan í hávegum
höfð, á meðan lífið gerist hraðar
í norðrinu. En það eru nokkrir
þættir sem eiga almennt við um
allt landið.
Bongóblíða og fegurð
Á Spáni skín sólin næstum alla
daga og veturnir eru ekki kaldir.
En Spánn er ekki bara sandur
og sól, heldur er landslagið mjög
fjölbreytt og veðurfarið ólíkt
milli svæða, þannig að hver getur
fundið eitthvað við sitt hæfi.
Plöntulífið á Spáni er líka fjöl-
skrúðugt allan ársins hring, sem
fegrar umhverfið.
Menning og saga
Saga Spánar er viðburðarík og fjöl-
breytt, en ýmsir ólíkir hópar fólks
hafa stjórnað landinu í gegnum
árþúsundin. Fyrir vikið hefur hvert
svæði sína ólíku sögu og menningu
og því er hægt að sjá ótrúlega mikið
af alls kyns fornminjum, gömlum
listaverkum, söfnum, sögulegum
stöðum og mögnuðum arkitektúr
á Spáni.
Frábær heilbrigðisþjónusta
Allir íbúar Spánar fá góða ókeypis
heilbrigðisþjónustu. Þegar þarf
að leita til sérfræðinga er það líka
almennt ódýrara en á öðrum
Vesturlöndum.
Mikil lífsgæði
Það er mikið talað um lífsgæðin
á Spáni. Sólskinið, Miðjarðar-
hafsmataræðið og afslappaður
lífsstíll eru allt ástæður fyrir því
að Spánverjar lifa lengur en flestar
aðrar þjóðir. Mjög víða er síestan
höfð í heiðri, sem þýðir að tíminn
milli tvö og fjögur er hvíldartími,
líka á virkum dögum. Fólk byrjar
almennt að vinna klukkan 10 á
morgnana og hættir klukkan 20,
en það er líka algengt að Spán-
verjar vinni bara 35 stundir á viku.
Spánverjar vilja njóta lífsins, taka
því rólega og forðast streitu. Það er
yfirleitt kostur, en getur samt orðið
ókostur þegar liggur á.
Ódýrt að lifa
Það er ekki dýrt að vera til á
Spáni. Matur, skemmtun og hús-
næði er allt mun ódýrara en í
öðrum Evrópulöndum. Þetta er
stór hluti af ástæðunni fyrir því
að landið er svo vinsælt hjá þeim
sem vilja flytja frá heimalandinu.
Það er líka ekki þörf á að vera á
bíl í borgunum, því þar eru góðar
almenningssamgöngur.
Nóg af húsnæði
Það er mikið framboð af húsnæði á
Spáni þannig að það er úr nægu að
velja, sama í hvaða verðflokki fólk
er að leita. Það er bæði mikið af
ódýrum húsum og íbúðum og líka
fínum. Fasteignamarkaðurinn á
Spáni er fjölbreyttur og býður upp
á mikið af tækifærum.
Gott næturlíf
Næturlífið á Spáni er frægt. Spán-
verjum finnst gaman að djamma
og frægustu plötusnúðarnir heim-
sækja spænskar borgir reglulega.
En auk næturklúbbanna er líka
alltaf mikið líf á veitingastöðum og
það skemmir ekki fyrir að matur-
inn á Spáni er almennt frábær og
spænsk vín eru talin meðal þeirra
bestu í heimi.
Gott skólakerfi
Grunn- og framhaldsskóli eru
skylda á Spáni og það eru ókeypis
ríkisskólar í boði fyrir alla íbúa, en
þar er einungis kennt á spænsku.
Þeir sem vilja senda börn í skóla á
öðru tungumáli eða njóta annarra
fríðinda geta nýtt sér einkaskóla,
sem eru vinsælir á Spáni, en þá
er aðallega að finna í stórborg-
unum. Á Spáni eru líka mjög góðir
háskólar, en líkt og hér á Íslandi er
háskólamenntun ekki ókeypis. n
Ástæður til að búa á Spáni
Það eru margar
góðar ástæður
fyrir því að kjósa
að búa á Spáni.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
Steinunn Harðardóttir er
frumkvöðull á sviði göngu-
ferða erlendis. Hún hefur
farið með fjölmarga hópa til
Spánar í göngur um Maj-
orka, Pýreneafjöllin, Tener-
ife, Andalúsíu og Kanaríeyjar
og segir það mikla upplifun.
sis@frettabladid.is
Steinunn fór í fyrstu ferðina með
gönguhóp til Majorka árið 1993
og eftir það varð ekki aftur snúið.
„Ég er leiðsögumaður að mennt og
var mikið með hópa af sænskum
líffræðingum sem voru á ferða-
lagi hér á landi. Þeir komu hingað
eftir ferðalag til Majorka og töluðu
mikið um hvað það væri fallegt
þar. Ég hélt að þessi eyja væri bara
einn stór sandkassi, en þetta varð
til þess að vekja áhuga minn á
henni,“ segir Steinunn, en hún á og
rekur Göngu-Hrólf, sem skipulegg-
ur göngur hér heima og erlendis.
Steinunn og fyrrverandi eigin-
maður hennar höfðu samband
við sænsku ferðaskrifstofuna sem
skipulagði bæði ferðirnar til Maj-
orka og Íslands og fengu að hoppa
með í eina ferð. „Sonur okkar
fór með og við vorum aðallega í
fjöllunum í norður- og vesturhluta
Majorka. Við heilluðumst alveg
af þessu svæði og vildum leyfa
fleirum að njóta þess með okkur.
Við fórum út með vinum og fjöl-
skyldu og í kjölfarið á því hófum
við samstarf við Úrval Útsýn. Á
tímabili fórum við í fjórar til sex
ferðir með hópa á ári, bæði á vorin
og haustin en á þessum tíma voru
ekki aðrir sem buðu upp á svona
gönguferðir,“ segir hún.
Kæla sig niður á fjöllum
Síðar bættust við gönguferðir um
Pýreneafjöllin, sem skilja Íberíu-
skagann frá meginlandinu og
mynda náttúrleg landamæri á
milli Spánar og Frakklands, og
einnig um Tenerife, Andalúsíu og
Kanaríeyjar, en Steinunn segist
mest hafa verið á Majorka og í
Pýreneafjöllunum. Árið 2018 fór
hún svo í Montserratfjöllin í Kata-
lóníu, sem hún segir frábært svæði
rétt hjá Barcelóna.
„Í Pýreneafjöllunum hef ég
farið í einstakar göngur um tvo
þjóðgarða, sem eru í Katalóníu
og Aragóníu. Umhverfið er sér-
lega fjölbreytt og kemur sífellt á
óvart. Fjöllin eru há með hvassar
eggjar yfir fagurbláum vötnum og
djúpum dölum, og gróðurfarið er
einstakt,“ segir Steinunn.
Veðursældin er mikil á Spáni og
Steinunn segir gott að fara upp í
fjöllin yfir hásumarið til að kæla
sig aðeins niður.
„Ég fór til dæmis með hópa
upp í Pýreneafjöllin í byrjun júlí.
Margir héldu að þá væri of heitt,
en svo er ekki. Þorpin þarna eru
í fimmtán hundruð metra hæð
og þar er ekki eins heitt og við
ströndina. Göngurnar voru ýmist
um fjalllendi eða á milli þorpa,“
segir Steinunn, sem var ófeimin
við að fá ráðleggingar frá heima-
mönnum varðandi göngurnar.
„Ef ég hitti á eldra fólk spurði ég
oft hvaða leiðir það sjálft færi á
milli þorpa og þannig kynntist ég
gömlum þjóðleiðum,“ segir hún.
Göngurnar um Spán leiddu
Steinunni til f leiri staða með
ferðalanga, svo sem Krítar, Tosk-
ana á Ítalíu og til Tyrklands, en
ferðir þangað voru mjög vinsælar.
Þegar Steinunn er spurð hvað sé
heillandi við gönguferðir á Spáni
stendur ekki á svari: „Upphaflega
var það hitinn sem heillaði. Það
er svo frábært að geta farið í fjall-
göngur á stuttbuxum. Ég veit fátt
skemmtilegra en göngur, og mér
finnst forréttindi að fara og kynn-
ast litlu svæði vel, vita hvenær
komið er í næsta þorp og fylgjast
með náttúrunni og hvernig hún
tekur breytingum eftir árstíðum.
Það færir manni miklu dýpri
upplifun að kynnast landinu með
því að ganga um það. Ég hef lagt
mikið upp úr því að finna litlar
og persónulegar ferðaskrifstofur
sem ég hef unnið með í gegnum
tíðina,“ segir hún. Undanfarin ár
hefur Steinunn átt gott samstarf
við ferðaskrifstofuna Vita.
Ekki lenda í ógöngum
Á Spáni eru fjölmargar göngu-
leiðir sem vert er að kynna sér
nánar. Steinunn segir einfalt að
finna þær á netinu og mælir með
að lesa leiðarlýsingar vel og skoða
sérstaklega lengd og erfiðleika-
stig. „Það er gott að fara í göngur
sem eru í hring, það er sem byrja
á sama stað og gangan endar. Með
því að kynna sér leiðarlýsingar
er minni hætta á að lenda í ein-
hverjum ógöngum,“ segir hún.
Þessa dagana hefur Steinunn
einbeitt sér að gönguferðum
innanlands. „Ég fer gjarnan
með hópa í léttar göngur á
höfuðborgarsvæðinu, svo sem um
Búrfellsgjá og meðfram strand-
lengjunni. Einnig fer ég með hópa
að gosinu. Svo er ég nýkomin úr
pílagrímagöngu frá Þingvöllum
yfir í Skálholt, sem var stórkost-
legt. Gangan sú er í tengslum við
Skálholtshátíð. Um næstu helgi
ætla ég að ganga í kringum Bæ
í Borgarfirði á vegum Göngu-
Hrólfs,“ segir Steinunn. n
Í fjallgöngu á stuttbuxum
Steinunn segir forréttindi að kynn-
ast litlu svæði vel og fylgjast með
náttúrunni og hvernig hún breytist
eftir árstíðum. MYND/AÐSEND
Á Spáni eru fjölmargar skemmtilegar gönguleiðir sem vert er að kynna sér nánar, að sögn Steinunnar. Hún mælir með
að skoða vel leiðarlýsingar til að átta sig á vegalengdum og erfiðleikastigi göngunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
8 kynningarblað 20. júlí 2021 ÞRIÐJUDAGURFASTEIGNAK AUP ERLENDIS