Fréttablaðið - 20.07.2021, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 20.07.2021, Blaðsíða 40
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg ehf. DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is 550 5000 Hauks Arnar Birgissonar n Bakþankar GERÐU FRÁBÆR KAUP Afsláttur af skiptidýnum, eldri gerðum, sófum, hvíldarstólum, mjúkvöru og fl. Ve rð b irt m eð fy rir va ra u m in ns lá tta rv ill ur o g/ eð a br ey tin ga r. STILLANLEG HJÓNARÚM MEÐ BODYPRINT DÝNU – EIN ALLRA BESTA HEILSUDÝNA Í HEIMI Verð frá kr. 439.900.- VANDAÐAR SÆNGUR OG KODDAR Í ÚRVALI SUMARLEG SÆNGURVERASETTSÆNGURVER OG NÁTTSLOPPAR HANDGERT ILMKERTI MEÐ SUMAR- LEGUM BERJAILMI GERIÐ GÆÐA & VERÐSAMANBURÐ HÖFUM ÞAÐ GOTT HEIMAí sumar Allt fyrir góðan svefn og betri heilsu LISTHÚSINU LAUGARDAL s. 581 2233 BALDURSNESI 6, AKUREYRI s. 461 1150 OPIÐ virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga frá kl. 12-16 UMBOÐSAÐILAR Húsgagnaval, Höfn í Hornafirði og Bara snilld, Egilsstöðum | svefnogheilsa.isBALDURSNES 6 – AKUREYRI VERSLUN & OUTLET – LISTHÚSIÐ – REYKJAVÍK UM FJÓRÐUNGUR LANDS- MANNA SEFUR Á DÝNU FRÁ SVEFN & HEILSU* *Samkvæmt könnun frá Gallup. MIKIÐ ÚRVAL Í STÆRRI GERÐUM FLEIRI STÆRÐIR, OG GERÐIR Í BOÐI FRÉTTIR, FÓLK & MENNING á Hringbraut Til stóð að ég myndi ferðast heil ósköp til útlanda síðustu tvö ár. Úr því varð ekki. Flensan skemmdi plönin og hef ég meira og minna haldið mig heima við. Útilegur leystu útlönd af hólmi. Ég þoli ekki útilegur. Þær eru eitthvert hræðilegasta form afþrey- ingar sem ég veit um. Óskiljanlegar. Þegar ekki rignir, neyðist maður til að sitja á taustól klæddur dúnúlpu, húfu og vettlingum, með teppi utan um axlirnar þar sem maður berst við að halda kvöldmatnum kyrrum í vindinum. Í logni laumar maður matarbita eða vínglasi úr plasti undir netið sem hylur andlitið svo nýjasti landneminn, lúsmýið, éti ekki úr manni augun. Eftir að hafa vaskað upp plast- diska við innganginn á stífluðu karlaklósettinu sofnar maður hríð- skjálfandi í fjögurra gráðu kulda, einungis til að vakna nokkrum tímum síðar í 40 gráðu heitu tjaldi, kófsveittur og hlandsprunginn. Þvílíkur lúxus. Lengi hafði ég beðið fyrstu utanlandsferðarinnar. Til hvaða hitabeltisparadísar skyldu vegir mínir liggja, hugsaði ég með mér í allan vetur. Þótt Norður-Írland hafi ekki beinlínis ofsótt drauma mína þá endaði ég þar. Enginn ferða- bæklingsáfangastaður en samt skrambi gott. Eftir eilífa Íslands- dvöl í núll til tíu gráðum, var þetta eins og að koma til Karíba- hafsins. Átján stiga hitinn ögraði líkamanum og á augabragði urðu ljósbláar skyrtur dökkbláar. Þar sem ekki gafst tími til að sauma skyrtu úr dömubindum þurfti ég að þola niðurlæginguna sem fylgdi því að sitja kófsveittur fund eftir fund. En mikið var gott að sleppa við útileguna. n Biðin á enda

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.