Fréttablaðið - 29.06.2021, Blaðsíða 1
f r e t t a b l a d i d . i sf r e t t a b l a d i d . i s
1 2 5 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R Þ R I Ð J U D A G U R 2 9 . J Ú N Í 2 0 2 1
HVAR & HVENÆR SEM ER
Vefsýningarsalurinn okkar er alltaf opinn!
www.hekla.is
HEKLA · Laugavegur 170 · Sími 590 5000 · www.hekla.is Í sumar er opið alla virka daga hjá HEKLU á Laugavegi og Kletthálsi.
Þótt sumarblíðan sé hvergi betri á landinu en fyrir norðan og austan, nýttu borgarbörnin sumarveðrið í borginni vel. Þessir piltar kunnu vel að meta hjólabrettasvæðið á Miðbakkanum og léku þar
listir sínar. Hjólabrettasvæðið var opnað snemma í fyrrasumar og hefur vakið mikla lukku. Góð veðurspá er um allt land næstu daga og aldrei að vita nema hitamet falli í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
HS Orka telur Hvalárvirkjun
enn góðan virkjanakost þó
framkvæmdir hafi verið
stöðvaðar í fyrra. Samningar
við landeigendur hafa verið
framlengdir.
kristinnhaukur@frettabladid.is
STRANDIR HS Orka hefur fram-
lengt samninga við landeigendur í
Árneshreppi vegna fyrirhugaðrar
uppbyggingar Hvalárvirkjunar.
Verkefnið er í bið og ekkert verður
framkvæmt í sumar, hvorki vega-
gerð né annað. Gerðar verða vatna-
og rennslismælingar á Ófeigsheiði.
„Hvalárvirkjun en enn þá áhuga-
verður kostur sem við erum með á
teikniborðinu,“ segir Jóhann Snorri
Sigurbergsson, upplýsingafulltrúi
HS Orku. „Þetta myndi veita HS
Orku möguleika á sveigjanlegu raf-
magni til að framleiða í takti við
þarfir markaðarins.“
Hvalárvirkjun er annar tveggja
vatnsaf lskosta í nýtingarf lokki
rammaáætlunar, ásamt Blöndu-
veitu. Jóhann segir það gera
kostinn fýsilegan. Eftir að vega-
framkvæmdir stöðvuðust og fram-
kvæmdaaðilinn VesturVerk sagði
upp öllu starfsfólki sínu á Ísafirði
fyrir rúmu ári hefur HS Orka ein-
beitt sér að öðrum verkefnum. Það
er 30 megawatta stækkun á Reykja-
nesi og endurgerðir í Svartsengi til
að auka framleiðslu.
Jóhann bendir hins vegar á að
HS Orka sé með virkjanaleyfi og
megi ekki sitja auðum höndum.
Með mælingunum haldi verkefnið
áfram og einnig hafi verið sótt um
endurnýjun rannsóknarleyfis hjá
Orkustofnun.
Fyrirhuguð Hvalárvirkjun er ein
umdeildasta virkjanaframkvæmd
undanfarins áratugar. Hafa gengið
mörg kærumál til að reyna að
stöðva hana, meðal annars af hálfu
Landverndar á framkvæmdaleyfi
VesturVerks. Sú kæra var dregin til
baka að ósk úrskurðarnefndar um
umhverfis- og auðlindamál þegar
framkvæmdirnar stöðvuðust.
Auður Önnu Magnúsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Landverndar, segir
málið nú í biðstöðu. „Það sem liggur
á að gera núna er að friðlýsa svæð-
ið,“ segir hún. En árið 2018 sendi
Náttúrufræðistofnun erindi til
Umhverfisstofnunar um að svæðið
verði sett á Náttúruminjaskrá. Þar
liggur það enn. „Umhverfisstofnun
er ekki að sinna þessu eins og hún á
að gera,“ segir Auður.
Aðspurð segist Auður ekki eiga
von á því að HS Orka fari aftur af
stað með verkefnið. Hvalárvirkjun
sé einstaklega óhagkvæm virkjun
og aðrir kostir mun vænlegri, sem
þar að auki spilli ekki verðmætum
náttúruminjum.
Fari svo að verkefnið fari á fullt
skrið aftur muni samtökin að sjálf-
sögðu beita sér til að stöðva það. „Þá
tökum við upp þráðinn þar sem frá
var horfið, bæði með kærunni á
framkvæmdaleyfið og með því að
þrýsta á friðlýsingu.“ ■
Virkjanaleyfi fyrir Hvalárvirkjun haldið við
Umhverfisstofnun er
ekki að sinna þessu
eins og hún á að gera
Auður Önnu
Magnúsdóttir,
framkvæmda-
stjóri Land-
verndar.