Fréttablaðið - 29.06.2021, Side 13

Fréttablaðið - 29.06.2021, Side 13
KYNN INGARBLAÐ ALLT ÞRIÐJUDAGUR 29. júní 2021 Stuðlagil á Héraði dregur að ferðamenn hvaðanæva að úr heiminum enda með fallegri stöðum á landinu. MYND/AÐSEND Bjartsýnn á framtíðina Björn Ingimarsson, sveitarstjóri Múlaþings, segir sveitarfélagið einkennast af fjölbreytileika og góðum möguleika til menntunar og atvinnu. Múlaþing er alvöru valkostur. 2 Ed Sheeran þegar hann mætti í Magic Radio studio í síðustu viku. elin@frettabladid.is Það hefur verið heldur hljótt um poppstjörnuna Ed Sheeran í lang- an tíma en aðdáendur hans fengu nýjan smell fyrir nokkrum dögum, Bad Habits, en það er fyrsta lagið sem hann gefur út síðan 2017. Nú þegar hafa yfir sextán milljónir hlustað á lagið á Youtube. Mynd- bandið þykir frumlegt og vamp- írur koma mikið við sögu. Ed Sheeran var í einlægu viðtali við BBC radio 1 nýlega þar sem hann lýsti óhóflegri drykkju sinni en segist hafa tekið á því vanda- máli þegar hann eignaðist sitt fyrsta barn fyrir 10 mánuðum. Dóttirin, Lyra Antarctica, og eigin- konan, Cherry Seaborn, hafa haft hann út af fyrir sig. „Ég hef einbeitt mér að föðurhlutverkinu og það er stórkostlegt. Ég las allar bækur um börn sem ég komst yfir en stærsta uppgötvun mín var að maður vissi ekkert um það hvernig er að eignast barn,“ segir hann. „Um leið og dóttir mín fæddist fann ég fyrir einhverra sérstakri tegund af ást. Það opnaði nýjar víddir fyrir mér. Ed viðurkennir að hafa barist við fíkn frá unglingsaldri. „Ég hafði aldrei neina afsökun til að hætta að drekka fyrir fullt og allt fyrr en ég varð faðir. Ed, sem er þrítugur, hefur keypt fjölda fasteigna í Suf- fork þar sem hann ólst upp og er nú með fyrirtæki í kringum eigurnar. Hann hefur notið einstakra vin- sælda síðustu tíu árin og átt í samstarfi við stórstjörnur á borð við Beyoncé, Justin Bieber og The Weeknd. „Núna er ég ábyrgur faðir og drekk vatn,“ sagði hann á BBC. Auk þess hefur hann verið að þjálfa líkamann og huga að heilsunni. ■ Ed kominn aftur NÝTT C-vítamín munnúði KOMIN AFTUR!

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.