Fréttablaðið - 29.06.2021, Side 9

Fréttablaðið - 29.06.2021, Side 9
Ekki er um það deilt að stafrænar lausnir eru af hinu góða. Nauð- synlegt er að einfalda ákveðna ferla til að flýta afgreiðslu sem dæmi Loks er meirihlutinn í borgarstjórn að taka við sér þegar kemur að því að ráðast til atlögu gegn löngum biðlistum. Meirihlutinn lagði fram á dögunum pakka af tillögum um að taka á biðlistum barna til fag- fólks skólaþjónustu og færa jafn- framt fagfólk nær börnunum í skól- unum. Sálfræðingar eiga þó ekki að hafa fullt aðsetur innan skólanna eins og fulltrúi Flokks fólksins hefði viljað sjá og hefur ítrekað lagt til. Það er auk þess vilji margra skólastjórnenda enda þjónar slíkt fyrirkomulag best börnum og starfsfólki. Hér talar fulltrúi Flokks fólksins af 10 ára reynslu sinni sem skólasálfræðingur. Nú bíða 1.056 börn eftir þjón- ustu fagfólks skóla. Biðlistinn hefur verið að lengjast jafnt og þétt síðustu árin. Covid-ástandið bætti ekki úr en nú bíða sem dæmi 434 börn eftir þjónustu talmeina- fræðings. Fulltrúi Flokks fólksins hefur frá upphafi kjörtímabils barist fyrir því að fagfólki verði fjölgað og að farið verði markvisst og kerfisbundið í að stytta biðlista barnanna. Talað hefur verið fyrir daufum eyrum allt kjörtímabilið. Segir í nýlegum pistli formanna skóla- og frístundaráðs og vel- ferðarráðs „að sérstakt átak verður gert í að styðja við börn sem leitað hafa eftir þjónustu sálfræðinga og talmeinafræðinga skólaþjónust- unnar í vetur en umsóknum um skólaþjónustu hefur fjölgað hratt undanfarið í tengslum við Covid- faraldurinn“. Hugsanlega má reikna með að eitthvað af umbótatillögum meirihlutans á skóla- og velferðar- sviði verði orðnar að veruleika rétt fyrir borgarstjórnarkosningar sem verða í maí á næsta ári. Er það ekki dæmigert að efna eigi loforð rétt fyrir kosningar sem gefin voru fyrir síðustu kosningar? Nái þessi meirihluti aftur kjöri má ætla að sama gerist og síðast, hin fögru lof- orð fara í skúffu og þegar líður aftur að kosningum verði aftur dustað af þeim rykið? Fulltrúi Flokks fólksins fagnar vissulega að stíga eigi þetta skref og samþykkti allar þessar tillögur. Segja má „betra seint en aldrei“. Allt sem er gott fyrir börnin þótt skrefin séu lítil styður fulltrúi Flokks fólks- ins í borgarstjórn. Hins vegar hefur dýrmætur tími tapast. Fyrir tugi barna sem hafa verið á biðlistum er ansi seint í rassinn gripið. Þau hafa mátt bíða mánuðum saman og jafn- vel árum með vandamál sín óleyst í þeirri von að brátt komi nú röðin að þeim og þau fái fullnægjandi þjónustu í formi einstaklingsmið- aðrar faglegrar aðstoðar. Mörg hafa útskrifast úr grunnskóla án þess að hafa fengið aðstoð ýmist að hluta til eða öllu leyti. Stafræn umbreyting sett ofar en aðstoð við börn í vanda Á meðan börnin hafa beðið hefur hins vegar ekki f lækst fyrir meiri- hluta borgarstjórnar að ákveða að ráðstafa 10 ma.kr. í stafræna umbreytingu eða öllu heldur staf- ræna umbyltingu. Fyrir brot af þessum tíu milljörðum mætti gera mikið fyrir börnin í borginni og aðra viðkvæma hópa. Ekki er um það deilt að stafrænar lausnir eru af hinu góða. Nauðsynlegt er að einfalda ákveðna ferla til að f lýta afgreiðslu sem dæmi. En meðhöndla þarf fjármuni borgarinnar af skyn- semi og ábyrgð. Fulltrúa Flokks Dýrmætur tími fyrir börnin hefur glatast fólksins finnst að það hafi ekki verið gert þegar kemur að innleið- ingarferli stafrænnar umbreytingar í borginni. Um þau mál hafa verið lagðar fram fjöldi bókana og fyrir- spurna. Eitt er víst að engin stafræn umbreyting mun verða til þess að grynnka á biðlistum á meðan ekki er nægt fagfólk ráðið til verksins, hvorki talmeinafræðingar né sál- fræðingar. Þess utan þarf enga 10 ma.kr. til að taka nauðsynleg skref í einföldun rafrænna ferla. Hluti þessa fjármagns hefði átt að ráð- stafa til að styrkja skólaþjónustu grunnskólanna og ráða f leira fag- fólk, sálfræðinga og talmeinafræð- inga. Þær eru ófáar tillögurnar sem fulltrúi Flokks fólksins hefur lagt fram á kjörtímabilinu sem lúta að lausnum á biðlistavanda borgar- innar. Biðlistar í borginni eru eins og illkynja mein sem vaxið hefur hratt síðustu árin. Allar tillögur Flokks fólksins hafa verið felldar eða þeim vísað frá meira og minna. Vaxandi vanlíðan barna hefur verið staðfest af Landlæknisembættinu, í könnunum Velferðarvaktarinnar og nú síðast í nýrri íslenskri rannsókn sálfræðideildar HR og Rannsóknar og greiningar. Niðurstöður bera að sama brunni þ.e. að börn og ung- menni sýna aukin þunglyndisein- kenni og segja andlega líðan sína verri en áður. Áhrif og afleiðingar Covid hefur bæst ofan á þá slæmu stöðu sem fyrir var. n Kolbrún Baldursdóttir, oddviti Flokks fólksins í borgarstjórn Reykjavíkur. ÞINN STUÐNINGUR ER OKKAR ENDURHÆFING Ljósavinir hafa snert líf mitt án þess að vita það. Komdu í hópinn! Í Ljósið leita hundruðir einstaklinga í endurhæfingu í hverjum mánuði en einnig fá þar aðstandendur stuðning og fræðslu. Greiningum á krabbameini fjölgar en á sama tíma verða lífslíkur betri. Því er aukin þörf á faglegri endurhæfingu fyrir líkama og sál. Við þurfum fleiri ljósavini. Vertu mánaðarlegur styrktaraðili á www.ljosid.is ÞRIÐJUDAGUR 29. júní 2021 Skoðun 9FRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.