Fréttablaðið - 29.06.2021, Page 9
Ekki er um það deilt að
stafrænar lausnir eru
af hinu góða. Nauð-
synlegt er að einfalda
ákveðna ferla til að
flýta afgreiðslu sem
dæmi
Loks er meirihlutinn í borgarstjórn
að taka við sér þegar kemur að því
að ráðast til atlögu gegn löngum
biðlistum. Meirihlutinn lagði fram
á dögunum pakka af tillögum um
að taka á biðlistum barna til fag-
fólks skólaþjónustu og færa jafn-
framt fagfólk nær börnunum í skól-
unum. Sálfræðingar eiga þó ekki að
hafa fullt aðsetur innan skólanna
eins og fulltrúi Flokks fólksins
hefði viljað sjá og hefur ítrekað
lagt til. Það er auk þess vilji margra
skólastjórnenda enda þjónar slíkt
fyrirkomulag best börnum og
starfsfólki. Hér talar fulltrúi Flokks
fólksins af 10 ára reynslu sinni sem
skólasálfræðingur.
Nú bíða 1.056 börn eftir þjón-
ustu fagfólks skóla. Biðlistinn
hefur verið að lengjast jafnt og
þétt síðustu árin. Covid-ástandið
bætti ekki úr en nú bíða sem dæmi
434 börn eftir þjónustu talmeina-
fræðings. Fulltrúi Flokks fólksins
hefur frá upphafi kjörtímabils
barist fyrir því að fagfólki verði
fjölgað og að farið verði markvisst
og kerfisbundið í að stytta biðlista
barnanna. Talað hefur verið fyrir
daufum eyrum allt kjörtímabilið.
Segir í nýlegum pistli formanna
skóla- og frístundaráðs og vel-
ferðarráðs „að sérstakt átak verður
gert í að styðja við börn sem leitað
hafa eftir þjónustu sálfræðinga og
talmeinafræðinga skólaþjónust-
unnar í vetur en umsóknum um
skólaþjónustu hefur fjölgað hratt
undanfarið í tengslum við Covid-
faraldurinn“.
Hugsanlega má reikna með
að eitthvað af umbótatillögum
meirihlutans á skóla- og velferðar-
sviði verði orðnar að veruleika rétt
fyrir borgarstjórnarkosningar sem
verða í maí á næsta ári. Er það ekki
dæmigert að efna eigi loforð rétt
fyrir kosningar sem gefin voru
fyrir síðustu kosningar? Nái þessi
meirihluti aftur kjöri má ætla að
sama gerist og síðast, hin fögru lof-
orð fara í skúffu og þegar líður aftur
að kosningum verði aftur dustað af
þeim rykið?
Fulltrúi Flokks fólksins fagnar
vissulega að stíga eigi þetta skref
og samþykkti allar þessar tillögur.
Segja má „betra seint en aldrei“. Allt
sem er gott fyrir börnin þótt skrefin
séu lítil styður fulltrúi Flokks fólks-
ins í borgarstjórn. Hins vegar hefur
dýrmætur tími tapast. Fyrir tugi
barna sem hafa verið á biðlistum er
ansi seint í rassinn gripið. Þau hafa
mátt bíða mánuðum saman og jafn-
vel árum með vandamál sín óleyst
í þeirri von að brátt komi nú röðin
að þeim og þau fái fullnægjandi
þjónustu í formi einstaklingsmið-
aðrar faglegrar aðstoðar. Mörg hafa
útskrifast úr grunnskóla án þess að
hafa fengið aðstoð ýmist að hluta til
eða öllu leyti.
Stafræn umbreyting sett ofar en
aðstoð við börn í vanda
Á meðan börnin hafa beðið hefur
hins vegar ekki f lækst fyrir meiri-
hluta borgarstjórnar að ákveða
að ráðstafa 10 ma.kr. í stafræna
umbreytingu eða öllu heldur staf-
ræna umbyltingu. Fyrir brot af
þessum tíu milljörðum mætti gera
mikið fyrir börnin í borginni og
aðra viðkvæma hópa. Ekki er um
það deilt að stafrænar lausnir eru
af hinu góða. Nauðsynlegt er að
einfalda ákveðna ferla til að f lýta
afgreiðslu sem dæmi. En meðhöndla
þarf fjármuni borgarinnar af skyn-
semi og ábyrgð. Fulltrúa Flokks
Dýrmætur tími fyrir börnin hefur glatast
fólksins finnst að það hafi ekki
verið gert þegar kemur að innleið-
ingarferli stafrænnar umbreytingar
í borginni. Um þau mál hafa verið
lagðar fram fjöldi bókana og fyrir-
spurna. Eitt er víst að engin stafræn
umbreyting mun verða til þess að
grynnka á biðlistum á meðan ekki
er nægt fagfólk ráðið til verksins,
hvorki talmeinafræðingar né sál-
fræðingar. Þess utan þarf enga 10
ma.kr. til að taka nauðsynleg skref
í einföldun rafrænna ferla. Hluti
þessa fjármagns hefði átt að ráð-
stafa til að styrkja skólaþjónustu
grunnskólanna og ráða f leira fag-
fólk, sálfræðinga og talmeinafræð-
inga.
Þær eru ófáar tillögurnar sem
fulltrúi Flokks fólksins hefur lagt
fram á kjörtímabilinu sem lúta að
lausnum á biðlistavanda borgar-
innar. Biðlistar í borginni eru eins
og illkynja mein sem vaxið hefur
hratt síðustu árin. Allar tillögur
Flokks fólksins hafa verið felldar
eða þeim vísað frá meira og minna.
Vaxandi vanlíðan barna hefur verið
staðfest af Landlæknisembættinu, í
könnunum Velferðarvaktarinnar og
nú síðast í nýrri íslenskri rannsókn
sálfræðideildar HR og Rannsóknar
og greiningar. Niðurstöður bera að
sama brunni þ.e. að börn og ung-
menni sýna aukin þunglyndisein-
kenni og segja andlega líðan sína
verri en áður. Áhrif og afleiðingar
Covid hefur bæst ofan á þá slæmu
stöðu sem fyrir var. n
Kolbrún
Baldursdóttir,
oddviti Flokks
fólksins í
borgarstjórn
Reykjavíkur.
ÞINN STUÐNINGUR ER
OKKAR ENDURHÆFING
Ljósavinir hafa snert líf mitt án þess að vita það. Komdu í hópinn!
Í Ljósið leita hundruðir einstaklinga í endurhæfingu í hverjum mánuði en einnig fá þar
aðstandendur stuðning og fræðslu. Greiningum á krabbameini fjölgar en á sama tíma
verða lífslíkur betri. Því er aukin þörf á faglegri endurhæfingu fyrir líkama og sál.
Við þurfum fleiri ljósavini. Vertu mánaðarlegur styrktaraðili á www.ljosid.is
ÞRIÐJUDAGUR 29. júní 2021 Skoðun 9FRÉTTABLAÐIÐ