Fréttablaðið - 29.06.2021, Side 16

Fréttablaðið - 29.06.2021, Side 16
fara þangað og sennilega fljót- legra en að fara milli hverfa innan Reykjavíkur. Okkur finnst við bara vera eins og úthverfi frá Akureyri. Það tekur 10 mínútur að keyra að flugvellinum, það er örstutt til Akureyrar og engin umferðarljós að stoppa mann á leiðinni.“ Opið og bjart umhverfi Björg segir sveitarfélagið víðlent. Þar er fullt af gönguleiðum og fjöl- breyttir möguleikar til útivistar og fjörðurinn ævintýraheimur kajakræðara. „Svalbarðseyri er frábær kostur fyrir fólk sem vill f lytja í rólegt umhverfi sem er samt stutt frá allri þjónustu. Það er auðvitað líka gott að búa á Akureyri, Grindavík, í Reykjavík eða annars staðar. Allir staðir hafa eitthvað gott fram að færa. Það sem við höfum er rólegt samfélag og nándina við nátt- úruna um leið og stutt er í alla þjónustu og fjölbreytt menningar- líf,“ útskýrir Björg. „Auk nýrra lóða er sveitarfélagið að byggja tvö parhús sem verða seld. Við erum reyndar nú þegar búin að selja eina íbúð. Sveitar- félagið hefur byggt fleiri parhús og einkaaðilar hafa verið að byggja myndarleg einbýlishús. Gatan sem verið er að klára núna stendur hátt og þar eru stórar einbýlishúsalóðir með fallegu útsýni yfir fjörðinn. Fallegt útsýni er yfir Eyjafjörðinn, út fjörðinn eða í suður til Akur- eyrar. Skip og bátar sigla reglulega fram hjá og fyrir neðan nýja hverfið eru fallegar tjarnir og mikið fuglalíf. Þetta er mjög fallegt svæði.“ Björg útskýrir að gert sé ráð fyrir því að allar lóðirnar hafi eina hlið sem snýr að óbyggðu svæði og lóðirnar rúmgóðar. „Það er frekar rúmt á milli húsanna og verið er að búa til göngustíga svo krakkarnir geti gengið í skólann. Það verður aldrei meira en fimm mínútna ganga milli heimilis og skóla. Við erum að byggja þetta upp sem opið og bjart hverfi og brekkan tryggir fal- legt útsýni yfir fjörðinn okkar.“ n Svalbarðsstrandarhreppur er sveitarfélag í austanverð- um Eyjafirði. Þar er skóli, leikskóli og örstutt að sækja menningu og þjónustu á Akureyri. Náttúran skartar sínu fegursta og fjölbreyttir möguleikar eru til útivistar. Þessa dagana er verið að byggja nýtt hverfi á Svalbarðseyri og þar eru til sölu lóðir þaðan sem fal- legt útsýni er yfir fjörðinn. Björg Erlingsdóttir, sveitarstjóri í Sval- barðsstrandarhreppi, segist vonast til að fá þangað fólk sem sér kosti þess að búa á þessum fallega stað. „Hér er þétt og gott samfélag. Við erum beint á móti Akureyri, austan megin við Eyjafjörðinn. Hér er leikskóli sem tekur við börnum frá 9 mánaða aldri og góður grunn- skóli,“ segir Björg. „Eldri krakkar fara til Akureyrar í Menntaskólann eða Verkmennta- skólann. Það tekur enga stund að Nýjar lóðir á Svalbarðseyri Björg Erlingsdóttir, sveitarstjóri í Svalbarðs- strandarhreppi. Mikil nátt- úrufegurð er í sveitarfélaginu. MYNDIR/AÐSENDAR Allir þekkja norðlensku sjónvarpsstöðina N4 en færri vita að N4 er líka öflugt framleiðslufyrirtæki sem tekur að sér gerð auglýsinga, kynningarmyndbanda og alls sem þarf til góðrar markaðssetningar. „Við vinnum fyrir alla, getum leyst öll verkefni og um allt land. Við látum verkin tala, vinnum þau bæði hratt og vel, og á góðu verði,“ segir Stefán Friðrik Friðriksson, framleiðslu- og markaðsstjóri hjá N4. Framleiðsludeild N4 var stofnuð árið 2013, við góðar undirtektir alls staðar að á landinu. „Okkar stærsti kúnnahópur er í Reykjavík, þar af fyrirtæki og stofnanir sem eru með höfuð- stöðvar og starfsemi um land allt. Það er óneitanlega kostur að vera með framleiðslufyrirtæki á landsbyggðinni, því frá okkur eru vegalengdirnar styttri að fara í verkefni út í náttúruna. Fæstar auglýsingar eru enda teknar upp í Reykjavík; f lestir vilja nýta sér einstaka náttúrufegurð landsins og því erum við með útibú og fólk í öllum landsfjórðungum. Stað- setningin skiptir því engu máli. Við látum til okkar taka hvar sem er,“ segir Stefán. Góð verk spyrjast út N4 er með höfuðstöðvar á Akur- eyri. Þar starfa tíu manns í föstu starfi en auk þess eru verktakar og fagfólk á höfuðborgarsvæðinu og um gjörvallt landið. „Framleiðsludeild N4 hefur vaxið hratt undanfarin fjögur ár og það hefur aldrei verið eins mikið að gera og einmitt nú. Ástæðan er sú að við höfum skilað mjög góðu verki og það spyrst út,“ segir Stefán. Framleiðsludeildin er mest- megnis í framleiðslu kynningar- myndbanda fyrir fyrirtæki, stofn- anir og á öllum skalanum. „Nú er mikill vöxtur í mynd- bandagerð. Í Covid varð sprengja í gerð lifandi myndefnis þegar fólk vildi nota tímann sem það hafði fyrir sér til að gera sig sýnilegt í markaðsefni og myndbandagerð. Við búum líka til lógó, vinnum grafíska vinnu og sinnum mjög fjölbreyttum verkefnum, auk þess að gefa út N4-blaðið með greinum og lesefni og reka fréttasíðuna N4.is,“ upplýsir Stefán um fjöl- þætta starfsemina. „Fólk velur N4 í samstarf við sig vegna þess að við erum fagleg og höfum mikla reynslu og þekk- ingu, ekki síst á öllu sem viðkemur landsbyggðinni. Hjá okkur starfar dagskrárgerðarfólk með víð- tæka þekkingu á samfélaginu og atvinnulífinu, það spyr viðmæl- endur réttu spurninganna og ljær myndefninu þægilega nærveru. Það er mikill kostur og enn einn þátturinn sem skapar okkur sér- stöðu, auk framúrskarandi töku- manna sem ná óviðjafnanlegum myndum af landi og þjóð, og leikstjóra sem hafa sannað sig svo um munar,“ segir Stefán og heldur áfram: „Við höfum unnið efni í hverjum krók og kima Íslands og erum með mikil og góð sambönd um allt land. Þá búum við yfir gríðar- legri landfræðilegri þekkingu, og vitum um margar faldar perlur sem tökustaði sem og einstaka við- mælendur.“ N4 gefur hugmyndir í ferðalagið Sjónvarpsstöðin N4 er rómuð fyrir vandaða ferða- og viðtalsþætti. „Það er staðreynd að helsta áhugamál 70 prósent Íslend- inga eru ferðalög og landið okkar er að sönnu ótrúlegt. Í sumar- leyfinu ferðast landsmenn vítt og breitt um landið en áður en þeir leggja af stað hafa margir orðið margs vísari og fengið hugmyndir með því að horfa á ferðaþætti N4. Í Covid sendum við út mikið af ferðaþáttum, til að næra ferðaþrá landans og gefa honum kost á að ferðast í huganum heiman frá sér og nú vinnum við að þáttum undir yfirskriftinni Uppskrift að góðum degi á Austurlandi og höfum þegar gert Uppskrift að góðum degi á Norðurlandi eystra og vestra, við góðar undirtektir,“ greinir Stefán frá. Hann segir aðalsmerki sjón- varpsþáttagerðar N4 vera lands- byggðaraugun. Þau sjái land og þjóð öðrum augum en gestsins sem sér það frekar framandi augum. „Við gefum landsbyggðarfólki pláss, hittum fólk og fáum sögur þess þar sem það er og allt annan vinkil en fæst ella. Okkur finnst það eðlilegra en hin framandi sýn sem stundum er sýnd því við erum jú öll Íslendingar og í þessu saman, rétt rúmlega 360 þúsund manna þjóð. Því má segja að við höfum sérhæft okkur í landsbyggðinni og náttúru Íslands, ekki bara á Norðurlandi heldur um land allt, til dæmis með þáttunum Að norðan, Að vestan, Að austan og Að sunnan.“ Reynsla og gæði frá A til Ö hjá N4 Á síðustu þremur árum hefur áhorf á sjónvarpsstöðina N4 aukist um 200 prósent. „Við finnum vel fyrir með- byrnum og áhuga fólks á N4. Allar mælingar sýna sífellda aukningu og það er ekkert stopp á því. Við ákváðum því að takmarka efnið okkar ekki við ákveðnar veitur heldur viljum við að fólk sjái N4 þegar það vill, þar sem það vill. Efnið okkar er alltaf opið og aðgengilegt, til dæmis í N4-safninu í Sjónvarpi Símans þar sem sjá má alla þættina okkar, líka á Nova TV, og auðvitað heimasíðunni okkar og Facebook,“ upplýsir Stefán. „Markmið okkar er að vinna með fólki og finna lendingu sem virkar best fyrir hvern og einn. Það er einfalt og gott að fá N4 í lið með sér, enda gerum við allt frá A til Ö og komum með heildarpakkann í verkið. Við einfaldlega tökum verk- efnin og klárum þau, getum unnið tiltölulega hratt og án þess að það komi niður á gæðum, vel tækjum búin og með afburða þekkingu og reynslu í farteskinu.“ N4 er á Hvannavöllum 14 á Akur- eyri. Sími 412 4400. Sjá nánar n4.is og N4 á Facebook. Látum góðu verkin tala Stefán Friðrik Friðriksson er framleiðslu- og markaðsstjóri hjá N4, sem er ekki einungis sjónvarpsstöð heldur líka stór framleiðandi á sviði auglýsinga og kynningar- myndbanda. FRÉTTABLAÐIÐ/ AUÐUNN 4 kynningarblað A L LT 29. júní 2021 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.