Fréttablaðið - 29.06.2021, Blaðsíða 2
Búast má við mestum
fjölda í lok júlí og
byrjun ágúst.
Friðsæld í hjarta borgarinnar
Fyrir þá sem vilja njóta sumarblíðunnar úti við en kjósa frekar næði og ró í stað þeirra ærsla sem búast má við á flestum útivistarsvæðum borgarinnar geta
kíkt við í Hólavallakirkjugarði. Þótt starfsmenn sinni garðslætti og öðru viðhaldi og fjölmenni heimsæki garðinn daglega, er hann alltaf jafn friðsæll. Þar er
líka skjólbetra en á flestum öðrum útivistarsvæðum borgarinnar. Svo er hann eins og minjasafn undir berum himni og ekkert kostar inn. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Djammþyrstir Íslendingar
fjölmenntu í miðbæ Reykja-
víkur og skemmtu sér vel.
Sprittuðu sig og það var bros
á hverjum gesti – jafnvel þó
það þyrfti að bíða í smástund
í röð. Akureyringar glöddust
einnig í blíðunni fyrir norðan.
benediktboas@frettabladid.is
SAMFÉLAG „Við áttum nóg brenni-
vín og bjór en það mátti ekki tæpara
standa. Ég hef ekki heyrt annað en
að helgin hafi gengið vel og gleðin
hafi verið mikil og gestir alveg
svakalega kurteisir,“ segir Arnar Þór
Gíslason, einn eigenda Lebowski
bars, Kalda bars, Enska barsins, The
Irishman Pub og Dönsku kráarinn-
ar í miðbæ Reykjavíkur.
Dagbók lögreglunnar telur aðeins
fjögur atvik úr miðbænum á laugar-
dag. Þá var bongóblíða og þeir sem
voru þyrstir settust út í sólina og
fengu sér drykk. Öllum samkomu-
takmörkunum var aflétt á föstudag
nokkuð óvænt og gátu skemmti-
staðir og barir haft opið án nokk-
urra takmarkana í fyrsta sinn í 15
mánuði.
Arnar segir að það hafi verið góð
mæting í miðbæ borgarinnar og
gleðin svo sannarlega við völd. „Fólk
mætti með bros á vör á krár og bari
og hélt áfram að spritta sig nánast
án undantekninga, sem er gott.
Við erum með gott starfsfólk og
það var hægt að kalla út aukafólk
án vandkvæða. Sumt var jafnvel til í
að vinna lengur enda langt síðan að
það var svona gaman,“ segir hann.
Arnar bætir við að hann hrósi
ríkisstjórninni fyrir að af létta
á föstudag enda reyndist þessi
helgi vera risastór, þökk sé veðr-
inu. „Það hefði verið gríðarlegt
tjón að missa þessa helgi og mér
dettur ekki í hug að væla yfir
stuttum fyrirvara á af léttingum.
Í raun skipti sköpum að við fengum
þessa risahelgi rétt fyrir mánaða-
mót, annars hefðu þau orðið mun
erfiðari. Mér heyrist að fólk hafi
verið extra ánægt að fá sér bjór hjá
okkur til að styðja okkur – enda
vita allir hvað þetta er búið að vera
erfitt,“ segir hann.
Ívar Sigurbjörnsson, einn af eig-
endum Götubarsins á Akureyri,
tekur í svipaðan streng. Segir að
það hafi komið sér í opna skjöldu
að öllu hafi verið aflétt á föstudag.
„Það var samt nóg til hjá okkur.
Veðrið var gott, eins og alltaf hér
fyrir norðan, og fólk fjölmennti.
Gestir voru kurteisir og glaðir að
vera komnir út á lífið og ég held að
þetta hafi gengið vonum framar,“
segir Ívar. ■
Drukku bikarinn í botn
fyrstu haftalausu helgina
Það var mikið fjör víða um bæ alla helgina. Hér fyrir utan skemmtistaðinn
Röntgen. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Fólk mætti með bros á
vör á krár og bari og
hélt áfram að spritta
sig nánast án undan-
tekninga, sem er gott
Arnar Þór
Gíslason
Beint morgunflug
Tenerife í sumar
Marylanza
10. júlí í 7 nætur
2 fullorðnir
og 2 börn
Frá 114.900 kr
www.aventura.is
Sundagarðar 2 - 104 Reykjavík
Sími: 556 2000
kristinnhaukur@frettabladid.is
LÍFRÍKI Náttúrufræðistofnun hafa
borist nokkrar tilkynningar um bit
lúsmýs í sumar. Matthías Alfreðs-
son skordýrafræðingur segir grannt
fylgst með þróuninni. Júní hefur
verið kaldur en Matthías segir að
það eigi eftir að koma í ljós hversu
mikil áhrif það hafi á lúsmý, sum-
arið og flugutíminn sé rétt að byrja.
„Flugtíminn er frá júní og til loka
ágúst. Það er ekki vitað hvort um er
að ræða eina eða tvær kynslóðir en
langur flugtími gæti bent til tveggja
kynslóða,“ segir hann. „Talin voru
eintök sem veidd voru í gildru eitt
árið og þá var fjöldinn mestur í lok
júlí og byrjun ágúst.“
Fólk er farið að birta myndir af
sér á samfélagsmiðlum, útsteypt af
biti. Samkvæmt óformlegri könnun
blaðsins virðist Suðurlandið mesta
hættusvæðið um þessar mundir.
Matthías segist ekki geta fullyrt
að einstaka staðir séu verri en aðrir
en útbreiðslan sé að aukast og gera
megi ráð fyrir að lúsmýið leggi allt
Ísland undir sig. „Skráðum fundar-
stöðum hefur fjölgað og já, ég held
að það megi gera ráð fyrir því,“ segir
hann. ■
Lúsmýið er byrjað að bíta landsmenn
Ekki varð aukning í sölu hjá Vínbúð-
inni þrátt fyrir þjóðhátíðarstemn-
inguna í landinu fyrir helgina.
thorgrimur@frettabladid.is
VERSLUN Íslendingar þyrptust á
skemmtanalífið og léku við hvern
sinn fingur þegar sóttvarnarreglum
var aflétt í byrjun helgarinnar. Þrátt
fyrir þetta nýfengna frelsi varð hins
vegar ekki aukning í sölu áfengis hjá
Vínbúð ríkisins. Raunar dróst salan
lítillega saman, bæði miðað við
síðustu viku og sömu viku árið 2020.
„Það sést engin hrópandi breyt-
ing,“ sagði Sigrún Ósk Sigurðar-
dóttir, aðstoðarforstjóri ÁTVR. „Í
þessari viku seldust 555.000 lítrar
af áfengi. Í síðustu viku seldust
582.000 lítrar, en þá var reyndar líka
rosalega mikið af útskriftarveislum.
Salan á föstudaginn var ögn minni
en vikuna á undan og heilt yfir
er júnímánuður aðeins minni en
í fyrra, en hann er auðvitað ekki
búinn.“ ■
Engin aukning í
vínsölu þrátt fyrir
endurheimt frelsi
2 Fréttir 29. júní 2021 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ