Fréttablaðið - 29.06.2021, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 29.06.2021, Blaðsíða 14
„Stóra málið er að unga fólkið geti sótt það nám sem það kýs héðan úr heimabyggð og þurfi ekki að f lytja í burtu til þess að mennta sig. Með fjarvinnu aukast atvinnumöguleikarnir líka enn frekar,“ segir Björn. Í Múlaþingi eru einnig öflugir framhaldsskólar. „Við erum með menntaskóla í sveitarfélaginu, Menntaskólann á Egilsstöðum. Á Seyðisfirði er LungA-skólinn, sem er nýbúinn að fá stað- festingu sem fyrsti listalýðskóli á Íslandi. LungA er alþjóðlegur skóli með nemendur alls staðar að úr heiminum með áherslu á allt sem tengist list og listsköpun. Þá er Hallormsstaðaskóli kominn með viðurkenningu sem skóli á háskólastigi. Það þýðir að nem- endur fá einingar sem gilda á háskólastigi. Hallormsstaðaskóli býður upp á fjölbreytt og hagnýtt nám,“ bætir Björn við. Eins árs börn fá leikskólapláss Til að koma til móts við barna- fjölskyldur er stefna Múlaþings að börn sem hafa náð eins árs aldri fái pláss á leikskóla. „Við tökum inn eins árs börn á haustin, en miðað er við að þau séu orðin eins árs í ágúst. Það er ljóst að við verðum að auka við þessa þjónustu. Við erum að fara í framkvæmdir við að byggja nýjan leikskóla í Fella- bæ, sem verður tekinn í notkun árið 2022, og fleiri leikskólar eru á teikniborðinu.“ Atvinnulífið í fullum gangi Einn af kostunum við að búa í Múlaþingi er að atvinnulífið er margbreytilegt. „Mörg störf hafa til dæmis skapast í kringum fisk- vinnslu Búlandstinds og fiskeldi Austfjarða í Berufirði, en það hefur vaxið mikið á undanförnum árum. Fiskeldið gefur af sér afleidd störf innan sveitarfélagsins alls. Sem dæmi hefur það jákvæð áhrif á starfsemi Egilsstaðaflugvallar þegar kemur að fraktflutningum. Hér er Síldarvinnslan með öfluga starfsemi í sveitarfélaginu. Á Fljótsdalshéraði eru starfandi verkfræðistofur, lögfræðistofur, arkitektastofur, enduskoðunar- fyrirtæki og öflug verktakafyrir- tæki,“ segir Björn. Ferðaþjónustan er í miklum vexti í sveitarfélaginu og fjöldi veitingastaða, gistihúsa og hótela hefur aldrei verið meiri. „Íslenskir ferðalangar voru duglegir að heimsækja okkur í fyrrasumar og ég á fastlega von á að margir leggi leið sína til okkar aftur í sumar, enda náttúrufegurðin óviðjafnanleg og veðurspáin góð. Hér er fjöldi tjaldsvæða með góðri aðstöðu. Erlendir ferðamenn eru farnir að koma aftur til landsins. Ég reikna með að ferðaþjónustan verði komin á fulla ferð upp úr miðju sumri,“ segir Björn. Í sveitarfélaginu er einnig öfl- ugur landbúnaður. „Hér er bæði mikill kúabúskapur og sauðfjár- rækt. Skógræktin hefur líka sótt í sig veðrið og hafin er vinnsla í kringum hana, en það er lang- tímaverkefni. Við erum ekki með öll eggin í sömu körfunni, sem þýðir að við búum ekki við eins miklar sveif lur í atvinnulífinu og þau svæði sem byggjast upp í kringum stórfyrirtæki,“ greinir Björn frá. Hugur í fólki Múlaþing nær yfir stórt landsvæði og að mörgu er að huga við að sam- eina rótgróin sveitarfélög. Björn segir það vissulega áskorun, en það hafi gengið vonum framar og hann er bjartsýnn á framtíðina. „Þessi sveitarfélög hafa verið í nánu samstarfi undanfarin ár, til dæmis voru þau með sameigin- legar brunavarnir og félagsþjón- ustu. Skriðuföllin á Seyðisfirði hafa óneitanlega sett mikinn svip á starfið þetta ár en hreinsunarstarf hefur gengið vel og fram undan er mikil uppbygging,“ segir Björn. Planið er að færa byggðina á Seyðisfirði og er undirbúningur fyrir það þegar hafinn. „Við ætlum að byggja hluta af bænum upp á nýjum stað, þar sem íþróttavöllur- inn er núna, og erum að vinna í að finna vellinum nýjan stað. Á Borgarfirði er búið að byggja tvö parhús sem verið er að taka í notkun og búið að úthluta fleiri lóðum. Íbúðabygging er í farvatn- inu á Djúpavogi og á Egilsstöðum og í Fellabæ er uppbygging á fullri ferð. Það er hugur í fólki hér fyrir austan,“ segir Björn að lokum. n „Fjölbreytileikinn og tæki- færin í atvinnulífi, menntun og menningarmálum er gífurlegur í Múlaþingi, sem gerir svæðið að eftirsóttum stað til að búa á. Við höfum lagt mikla áherslu á að byggja upp góða grunnþjónustu, skóla og leikskóla, íþróttaaðstöðu og menningarlíf. Eitt aðalmálið er að koma upp góðum möguleikum til menntunar. Múlaþing er því alvöru valkostur fyrir ungt fólk sem vill mennta sig og /eða stofna fjölskyldu,“ segir Björn Ingimars- son, en hann er fyrsti sveitarstjóri Múlaþings. Sveitarfélagið varð til á síðasta ári við sameiningu Borgarfjarðar- hrepps, Djúpavogshrepps, Fljóts- dalshéraðs og Seyðisfjarðarkaup- staðar. Samningur við háskóla Múlaþing er, ásamt fleiri sveitar- félögum á Austurlandi, í góðu sam- starfi við Háskólann á Akureyri og Háskólann í Reykjavík, sem íbúar sveitarfélagsins munu njóta góðs af. Í haust bætist við nýr og spenn- andi valkostur. „Nýlega var gerður samningur við UHI, eða University of the Highlands and Islands í Skot- landi, til að íbúar sveitarfélags- ins hafi möguleika á enn fleiri leiðum til náms. Skoski háskólinn notar spennandi aðferðafræði í sinni kennslu og er með margar starfsstöðvar, ekki endilega svo stórar heldur allt niður í þriggja til fjögurra manna stöðvar sem hafa gengið vel. Við viljum gjarnan reyna þetta líka og vonumst til að þetta samstarf geti farið af stað með haustinu,“ segir Björn og bætir við að fjarkennsla og -vinna hafi sýnt sig og sannað síðustu misserin. Regnbogagatan vekur ávallt mikla athygli. MYND/AÐSEND Frá Seyðisfirði. Mikil uppbygging er fram undan í bænum. MYND/AÐSEND Björn Ingimars- son sveitar- stjóri. KOMDU AUSTUR www.visitegilsstadir.is www.borgarfjordureystri.is www.visitseydisfjordur.is www.visitdjupivogur.is . i it il t i .i . fj t i.i . i it i fj .i . i it j i .i Mulathing A4 KOMDU AUSTUR augl.indd 1 27/05/2021 18:15 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Björn Víglundsson Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um- fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Sigríður Inga Sigurðardóttir sigriduringa@frettabladid. is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergs- dóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. 2 kynningarblað A L LT 29. júní 2021 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.