Starfsmannablaðið (B.S.R.B.) - 01.12.1950, Blaðsíða 4
4
STARFSMANNABLAÐIÐ
Þingtíðindi 13. þings B.S.R.B.
Þingið var sett í Flugvallahótelinu í
Reykjavík föstudaginn 27. okt., 1950 kl.
16,15 af formanni bandalagsins Ólafi
Björnssyni prófessor.
Bauð hann velkomna til þings full-
trúa og gesti.
Forseti Alþýðusambands Islands,
Helgi Hannesson bæjarstjóri í Hafnar-
firði flutti kveðjur og árnaðaróskir Al-
þýðusambandsins og lýsti ánægju sinni
yfir samstarfi þessara samtaka á sl.
ári.
Formaður Sambands íslenzkra banka-
manna Einvarður Hallvarðsson bar
að hægt sé að lifa mannsæmandi lífi.
Á hinn bóginn má svo ekki loka aug-
unum fyrir því, að allar almennar kaup-
hækkanir eru gagnslausar, ef ekki er séð
fyrir auknu vöruframboði. Kauphækk-
anirnar koma þá aðeins fram í aukinni
dýrtíð og vöruskorti, án þess að laun-
þegarnir séu nokkru bættari. Má í þessu
efni vísa til niðurstaðna álitsgerðar
samstarfsnefndar A.S.I og B.S.R.B. frá
s.l sumri. Það viðbragð af hálfu laun-
þegasamtakanna að krefjast hækkunar
til samræmis hækkunar vísitölu, er því
óyndisúrræði að því leyti, að með því
verður ekki þeim tilgangi náð að tryggja
kaupmátt launanna og þar með lífskjör-
in, nema litið sé yfir mjög skamman
tíma. En þess má vænta, að stjórnar-
völdin sýni kröfum almennings í þess-
um efnum þann skilning, að ekki komi
til átaka í því formi.
Ólafur Björnsson.
þinginu kveðjur sambandsins og ósk-
aði þinginu allra heilla í starfi þess.
Formaður bandalagsins þakkaði hlýj-
ar kveðjur og árnaðarorð þessara gesta
þingsins og skýrði síðan frá því að hann
hefði skipað í kjörbréfanefnd þá Guð-
jón B. Baldvinsson, Karl Á. Torfason
og Magnús Eggertsson.
Formaður og frsm. kjörbréfanefndar
lýsti síðan áliti nefndarinnar og tillögu
hennar um að tekin yrðu gild kjörbréf
fyrir 80 aðalfulltrúa frá öllum-23-félög-
um bandalagsins, og höfðu þá öll félög-
in sent fulla tölu samkv. lögum B.S.R.B.
nema Starfsmannafélag Siglufjarðar-
bæjar, er átti rétt til tveggja fulltrúa
en sendi aðeins einn. 73 fulltrúar voru
þá mættir til þings, og voru tillögur
nefndarinnar samþykktar einróma.
Starfsmenn þingsins voru síðan kjörn-
ir einróma samkv. tillögu stjórnarinnar.
1. forseti Helgi Hallgrímsson (Stm.fél.
Rvíkurbæjar), 2. forseti Björn L. Jóns-
son (ftr.Stmfél. ríkisstofn.), 3. forseti
Maríus Helgason (ftr. F.I.S). Ritarar
voru kjörnir: Guðjón Gunnarsson, ftr.,
Magnús Eggertsson varðstj., Karl Hall-
dórsson tollv. og Jónas Eysteinss kenn-
ari. (varaftr. frá S.I.B.)
/ nefndanefnd voru kjörin einróma:
Hjálmar Blöndal ftr., Valborg Bentsd.,
aðalritari, Ingibjörg Ögmundsd., sím-
stjóri, Jónas Jósteinsson kennari, Stef-
án Árnason yfirlögrþj., Steingrímur
Pálsson símritari og Matthías Guð-
mundss. póstm.
Fjölgun þingnefnda: Þeir Guðjón B.
Baldvinsson og Ólafur Björnsson gerðu