Starfsmannablaðið (B.S.R.B.) - 01.12.1950, Blaðsíða 19
starfsmannablaðið
19
skoðun á starfsfólki opinberra stofn-
ana.
2. 13. þing B.S.R.B. átelur harðlega
þann menningarskort, að nauðsyn-
legar hreinlætisvörur, svo sem um-
búðir utan um matvæli, salernis-
pappír o. fl. skuli vera ófáanlegar
yfir lengri tíma.
Telur þingið slíkt ástand stór-
hættulegt og geta leitt til útbreiðslu
alvarlegra sjúkdóma og skorar á
ríkisstjórnina að sjá um, að hér
verði þegar úr bætt.
3. 13. þing B.S.R.B. beinir þeirri á-
skorun til hlutaðeigandi aðila að hið
bráðasta verði veitt nauðsynleg leyfi
og fjárveitingar til þess að fullgera
þau sjúkrahús og þær heilbrigðis-
stofnanir, sem nú eru í byggingu í
landinu, þar sem hin brýnastta nauð-
syn er á þeim, auk þess sem sumar
þessara hálfgerðu bygginga liggja
undir skemmdum.
Frá Birni L. Jónssyni o. fl.
( allsherjarnefnd ).
4. 13. þing B.S.R.B. beinir því til stjórn-
ar bandálagsins, að hún sjái um, að
á næsta reglulega bandalagsþingi
verði flutt erindi um manneldi.
Lagabreytingar.
Á 12. þingi bandalagsins var kosin
þriggja manna nefnd til að endurskoða
lög þess. Skilaði hún tillögum til breyt-
inga á lögunum og fylgdi útdráttur úr
lögum norrænna samtaka, er skrifstof-
an hafði gert. Þar sem eigi hafði unnist
tími til að senda álit þetta út til banda-
lagsfélaganna, — smbi'. 33. gr. gildandi
laga — voru allir aðilar á einu máli
um að réttast væri að fresta breyting-
unum til þess að fullnægt yrði þessu
ákvæði.
Nefnd sú, er um mál þetta fjallaði á
þinginu, lagði því til að kosin yrði fimm
— 5 — manna mþn. er fengi málið í
hendur og legði tillögur sínar fyrir
næsta reglulegt bandalagsþing. Stjórn
bandalagsins yrði hinsvegar falið að
senda tillögurnar til félaganna og leita
umsagna þeirra. Þessi tillaga nefndar-
innar var samþykkt.
1 samræmi við þessa ákvörðun sendir
bandalagsstjórnin tillögurnar með sér-
stöku bréfi til félaganna, og þingið kaus
fimm manna mþn. og er hún þannig
skipuð.
Þórhallur Pálsson ftr. Stmfél. ríkis-
stofn.
Haukur Jóhannesson ftr. F.I.S.
Karl Hjálmarsson ftr. Póstm.fél. ísl.
Þórður Á. Þórðarson ftr. St.m.fél.
R.-víkurb. og
Árni Þórðarson ftr. S.I.B.
I sambandi við mál þetta kom fram
og var samþykkt svofelld tillaga frá
Einari Magnússyni ftr. F.M.K.
„13 þing B.S.R.B. felur stjórn banda-
lagsins að láta endurskoða fundasköp
bandalagsins og breyta þeim á þá lund,
að unnt sé þegar í upphafi þinghalds
að takmarka ræðutíma meira en nú er
gert, svo að umræður dragist ekki úr
hófi fram.“
Verður það því einnig verkefni téðrar
nefndar að athuga gildandi þingsköp
bandalagsins.
KoKiiingar til t ninaðarstarla.
Auk mþn. í lagamál bandalagsins
voru kjörnir þessar mþn. smb. sam-
þykktir þingsins.
I launamálanefnd: Aðalsteinn Hall-
dórsson tollv., Lárus Sigurbjörnsson ftr.