Starfsmannablaðið (B.S.R.B.) - 01.12.1950, Page 10
10
STARFSMANNABLAÐIÐ
Stmíél. S.R. sendi skýrslur.
F.Í.S. sendi tillögur um launaflokkun.
Fél. ísl. símstj. á I. fl. B-stöðvum ósk-
aði eftir að símastjórarnir yrðu teknir
inn á launalög.
L.S.F.K. óskaði hækkunar á byrjun-
arlaunum framhaldsskólakennara og
launahækkunar eftir 12 ára starf, enn-
fremur gerði það tillögu um að laun
skólastjóra yrðu a. m. k. :,/,2 hlutum
hærri en kennara og að 31. gr. breyt-
ist þannig, að árslaun kennara skv. 16.
og 29. gr. miðist við 8—9 mánaða
kennslutíma og hækki um ,/,2 hluta
heildarlauna fyrir hvern mánuð, sem
kennslutíminn er skemmri.
F.Í.H. gerði tillögu um að skólastjóri
og kennsluhjúkrunarkonur við Hjúkr-
unarkvennaskóla íslands verði teknar
inn á launalög, aðstoðarhjúkrunarkonur
hækki, og að aldurshækkanir verði á
3 árum í stað 6.
Stmfél. ríkisstofnana safnaði skýrsl-
um og sendi erindi um þessa starfs-
hópa. Veðurfræðinga og aðstoðarfólk í
Veðudstofunni, starfsfólk rannsóknar-
stofu Háskólans og Atvinnudeildar Há-
skólans, starfsfólk við Landsspítalann,
starfsmenn löggildingarstofu, bifreiða-
eftirlitsmenn, aðalgjaldkera og aðalbók-
ara, sölumenn o. fl. auk nokkurra fleiri
atriða.
B. Frá félögum bæjarstarfsmanna,.
Stmfél. V estmannaey jabæjar gerði
nýjan samning við bæjarstjórnina og
hækkuðu launin úm 5—15%, en sérstök
launauppbót er þar ekki greidd.
I Hafnarfirði og Reykjavík er greidd
sama launauppbót og hjá ríkinu.
Á ísafirði var samþykkt að greiða 15
til 17 % uppbót, en hún hefur ekki verið
greidd síðan í marz á þessu ári. Hjá
því bæjarfélagi hefur gengið mjög erf-
iðlega að fá greidd laun og eiga starfs-
menn bæjarins inni 4 mánaða laun nú
um næstu mánaðamót.
C. Útbreiðslustarf.
Varaformaður bandalagsins sat fund
með stjórn Stmfél. Akureyrarbæjar í
sumar, er hann var þar á ferð, og enn-
fremur átti hann tal við menn á Sauð-
árkróki um stofnun félags þar. Skrif-
stofan hefur átt bréfaskipti við mann
á Norðfirði vegna ráðagerða þar í bæn-
um um félagsstofnun. Annað hefur ekki
verið unnið beint að útbreiðslustarfi af
hálfu bandalagsins.
D. Norrænt samstarf.
Stjórninni barst bréf frá Nordiska
sekretariatet för kommunale tjánste-
mannaorganisationer, þar sem vakið var
máls á því, hvort bandalagið myndi vilja
gerast aðili, og jafnframt boðið að senda
allt að 5 fulltrúa á fund, sem haldinn
var í Oslo dagana 15.—17. maí síðastl.
Stjórninni heppnaðist að fá Hjálmar
Blöndal form. Stmfél. Reykjavíkurbæj-
ar til þess að mæta á fundi þessum,
og mun hann skýra frá honum og starfi
þessarar samvinnunefndar.
Tillaga frá stjórninni um þátttöku í
samstarfi þessu liggur fyrir þinginu.
E. Samstarf við önnur launþegasamtök.
Bandalagsstjórnin átti frumkvæðið að
því, að skipuð var samstarfsnefnd A.S.Í.
og B.S.R.B. til þess að athuga um áhrif
gengislækkunarlaganna á kjör launþega
og fleira. Skilaði hún áliti, sem var prent-
að og liggur fyrir þingfulltrúum.
Auk þess starfaði önnur samstarfs-
nefnd þessara aðila að lausn vísitöiu-
málsins í sumar. Væri óskandi, að sam-