Starfsmannablaðið (B.S.R.B.) - 01.12.1950, Qupperneq 18
18
STARFSMANNABLAÐIÐ
bænda og launþega um sanngjarnt hlut-
fall milli kaupgjalds og afurðaverðs,
sem síðan sé haldið föstu.
6. Að fjárfestingu þjóðarinnar sé
fyrSt og fremst beint í þau fyrirtæki,
sem öruggt má telja að skapi útflutn-
ingsverðmæti eða spari gjaldeyri til
stórra muna. Verði gerðar þjóðhags-
áætlanir um þessi efni með líku sniði
og í nágrannalöndum vorum.
7. Fjárfesting til bygginga í bæjum sé
fyrst og fremst miðuð við þarfir bygg-
ingasamvinnufélaga og verði þeim veitt
tæknileg aðstoð til þess að byggt verði
sem ódýrast og hagkvæmast.
8. Skattheimtu verði breytt þannig
að tekið verði upp hliðstætt staðgreiðslu
kerfi og tíðkast í ýmsum löndum t. d.
Svíþjóð.
9. Við endurskoðun skattalaga verði
persónufrádráttur stórhækkaður frá því
sem nú er.
13. þing B.S.R.B., ítrekar mjög ákveð-
ið samþykktir fyrri Bandalagsþinga um
það, að ekki séu gerðar mikilvægar
ráðstafanir í efnahagsmálum, er hag
launþega snertir, án þess að haft sé sam-
ráð við samtök þeirra.
13. þing B.S.R.B., væntir þess, að
ríkisstjórn og Alþingi geri nauðsynlegar
ráðstafanir til heftingar verðbólgunni
eftir öllum hugsanlegum leiðum. Séu
slíkar ráðstafanir ekki gerðar lýsir 13.
þing B.S.R.B. yfir því, að það krefst
mánaðarlegra launahækkana til handa
opinberum starfsmönnum til samræmis
við hækkun á vísitölu framfærslukostn-
aðar.
Ýmsar tillögur varðandi k jara- og
Iaunamál.
13. þing B.S.R.B. felur stjórn banda-
lagsins að afla gagna nú þegar frá ein-
stökum félögum innan vébanda B.S.R.B.
hvernig greiðslu til starfsmanna ríkis og
bæja ér háttað í einstökum stofnunum
þeirra, til starfsmanna, er vegna atvinnu
sinnar þurfa að vinna um lengri eða
skemmri tíma utan síns fasta vinnu-
staðar. Meðal annars með því að fá
upplýst um: 1. Hve mikinn þátt stofn-
anirnar taka í kostnaði þeim, er af
þessum ferðalögum leiðir fyrir hvern
einstakan á hverjum stað. 2. í hverju
þær greiðslur eru fólgnar.
Að fengnum þessum upplýsingum
leggi stjórn B.S.R.B. tillögur til sam-
ræmingar á kjörum þessara starfsmanna
fyrir næsta reglulegt bandalagsþing.
B. 13. þing B.S.R.B. felur bandalags-
félögum að kjósa nú þegar einn fulltrúa
hvert í milliþinganefnd, er verði stjórn
bandalagsins, starfskjara og launamála-
nefndum til aðstoðar til næsta banda-
lagsþings.
Jafnhliða felur þingið stjórn og laga-
nefnd að gera tillögu til lagabreytinga
fyrir næsta reglulegt þing um fasta
skipun slíks félagsráðs og hlutverk
þess.
Um endurskoðim framfærsluvísitölu.
13. þing B.S.R.B. skorar á alþingi og
ríkisstjórn að beita sér fyrir því að
hafist verði nú þegar handa um endur-
skoðun vísitölu framfærslukostnaðar,
þannig að hún sýni framvegis sem rétt-
asta mynd af þeim breytingum, sem á
raunverulegum framfærslukostnaði
verða.
Ýmsar tillögur
(frá menningarmálanefnd).
1. 13. þing B.S.R.B. beinir því til
stjórnar Bandalagsins að athugaðir
verði möguleikar á árlegri berkla-