Starfsmannablaðið (B.S.R.B.) - 01.12.1951, Síða 2
SigurtSur
Thorlacius,
skólastjóri,
fyrsti form.
B. S. R. B
auka, og til áhrifa um úrlausn þýðingarmikilla
vandamála í efnahagsmálum þjóðarinnar.
Fyrstu sporin stigin.
A fundi félaga opinberra starfsmanna, sem
haldinn var í húsakynnum Utvegsbankans h.f.
2. desember 1940, var kosin undirbúningsnefnd
til þess að annast nánari athugun á stofnun
fastra samtaka milli félaga opinberra starfs-
manna.
A fundi þessum mættu fulltrúar frá ýmsum
félögum ríkisstarfsmanna, félögum bankamanna,
og Starfsmannafélagi Reykjavíkurbæjar. Til-
efni fundarins var vaxandi dýrtíð, óstjórn á
kolaverzlun í bænum, og ófullnægjandi dýr-
tíðaruppbót. Um áraskeið, eða nánar tiltekið um
12 ára bil, 'hafði ekki verið starfandi félagasam-
band opinberra starfsmanna. Ný vakningaralda
var risin, þeir sem að fundi þessum stóðu vissu
að nú varð að duga.
Aratugabarátta verkalýðsfélaganna hafði ótví-
rætt sannað að samtök er máttur.
A fundinum var kjörin undirbúningsnefnd,
sem í áttu sæti: Sigurður Thorlacius fulltrúi
barnakennara, Lárus Sigurbjörnsson fyrir bæja-
starfsmenn, Guðjón B. Baldvinsson fyrir starfs-
menn ríkisstofnana, Guðmundur Pétursson fyrir
póst-, síma og tollmenn og Þorgils Ingvarsson
fyrir bankamenn.
Nœsia skrefið. — Myndun samtaka.
Undirbúningsnefndin ákvað á fundi þ. 15.
jan. 1941 að boða stofnfund fulltrúaráðs félaga
starfsmanna ríkis og bæja þ. 28. s. m., og var
hann haldinn í skriístofu F. í. S. þann dag.
Þorgils Ingvarsson bankafulltrúi, formaður
nefndarinnar setti fundinn, og eftirfarandi dag-
skrá var lögð fram:
1. að setja reglur um starfstilhögun og kjósa
framkvæmdastjórn.
2. að rökstyðja kröfur um fulla verðlagsupp-
bót til handa starfsmönnum ríkis, bæja og
banka.
3. að ræða frv. til laga fyrir bandalag starfs-
manna ríkis, bæja og banka.
Fundinn sátu 29 fulltrúar frá 18 félögum, auk
eins áheyrnarfulltrúa frá starfsmönnum Háskól-
ans og þriggja frá félögum bankastarfsmanna,
en þeir óskuðu ekki eftir þátttöku í stofnun
væntanlegs bandalags, og var að gefnu því til-
efrd gerð sérstök samþykkt.
Eftir að samþykkt hafði verið svofelld álykt-
un: „Fundurinn ályktar að stofna Fulltrúaráð
opinberra starfsmanna“, var rædd og samþykkt
reglugerð fyrir það.
Hlutverk þess var ákveðið svo í 2. grein reglu-
gerðarinnar:
1. að bera fram við hlutaðeigandi stjórnar-
völd sameiginlegar óskir og kröfur félaga
sinna.
2. að athuga möguleika á stofnmi bandalags
félaga opinberra starfsmanna".
Framkvæmdastjórn skyldi skipuð fimm mönn-
mn, og voru kjömir í hana á fundinum sömu
Lárus
Sigurbjörns-
son formaS-
ur frá 1945
til 1947.
1 STARFSMANNABLAÐIÐ