Starfsmannablaðið (B.S.R.B.) - 01.12.1951, Page 7
í tilefni 10 ára starfs B. S. R. B.
Ritnefnd blaðsins lagði eftirfarandi tvær
spumingar fyrir nokkra bandalagsfélaga og ósk-
aði eftir svari í fáum orðum:
1. spuming: Hver er að þínum dómi þýðing-
ar mesti árangur af 10 ára starfi banda-
lagsins?
2. spuming: Hvaða viðfangsefni bandalagsins
telur þú þýðingarmest og hversvegna?
Svörin eru á þessa leið:
Svar Andrésar G. Þormar:
1. Þýðingarmesti árangurinn af 10 ára starfi
bandalagsins er, að mínum dómi, sú hefð sem
nú er á komin, að ríkisstjórnin hefur samstarf
við opinbera starfsmenn við lagasetningar um
launa- og starfskjör þeirra.
2. Afnám laga um verkfall opinberra starfs-
manna og framtíðarskipan þeirra mála, svo að
jafnt sé borgið hag þjóðfélagsins sem starfsmanna
þess. Þar til svo er málum skipað, verður að-
staða opinberra starfsmanna til áhrifa á launa-
og starfskjör sín, lík aðstöðu beiningarmannsins.
Svar Bjarna Halldórssonar:
I.
1. Stuðningur bandalagsins við bandalagsfélög-
in til að ná hagkvæmari kjarasamningum í
launakröfum sínum, og aðstoð til að fá viður-
kendann rétt sinn sem beinan samningsaðila í
öllum launadeilum félaganna.
2. Sá árangur sem þegar hefur náðst í félaga-
fjölda innan bandalagsins, og góð þátttaka félag-
anna í störfum bandalagsþinganna.
3. Aukinn skilningur fólaganna innan banda-
lagsins á mætti samtakanna.
n.
Svar mitt við síðari spxrrningunni: „Hvaða við-
fangsefni bandalagsins telur þú þýðingarmest og
hversvegna?“ verður á þessa 'leið:
1. Að fjölga félögum í bandalaginu með því
að vinna að stofnun nýrra félaga hvar sem skil-
yrði eru fyrir hendi, og styðja eldri félög til að
fjölga meðlimum sínum.
Með því móti eflist bandalagið með eðlilegum
hætti og eykur um leið áhrifavald sitt út á við.
STARFSMANNABLAÐIÐ 7