Starfsmannablaðið (B.S.R.B.) - 01.12.1951, Blaðsíða 11
Svar Björns L. Jónssonar:
1. Bein og óbein viðurkenning ríkisvaldsins á
B. S. R. B. sem samningsaðila í hagsmunamálum
félagsmanna, og vaxandi skilningur þeirra sjálfra
á áhrifamætti samtakanna.
2. Lagasetning um réttindi og skyldur opin-
berra starfsmanna, sem tryggi B. S. R. B. samn-
ingsrétt gagnvart þvi opinbera. Slík lagasetn-
ing er lykillinn að órangursríkri hagsmunabar-
áttu félaganna og ætti að skapa þeim það at-
vinnuöryggi og efnahagslegt sjálfstæði, sem geri
þeim kleift, bæði sem einstaklingum og sem
félagsheild, að beita sér fyrir þýðingarmiklum
menningar- og þjóðhagsmálum, landi og þjóð
til heilla.
Svar Lórusar Sigurbjörnssonar:
1. Viðurkenning á samningsaðild um laun og
kjör.
2. Ákvörðun afstöðu opinberra starfsmanna
ti'l annarra stétta þj óðfélagsins með lögum um
rétt og skyldur þeirra.
1. Þeir, sem muna lengra en fram fyrir síðustu
heimsstyrjöld, vita, að í raun og veru voru laun
og kjör opinberra starfsmanna ákveðin einhliða
áður en B. S. R. B. kom til sögunnar. Takmörk-
uð viðurkenning á samningsrétti fékkst fyrst í
launadeilu Starfsmannafélags Reykjavíkurbæjar
við bæjarstjórn Reykjavíkur 1939, en af því að
viðurkenningin var takmörkuð og óvíst um hana
í framhaldssamningum, tóku starfsmenn bæjar-
ins forystuna urn stofnun heildarsamtaka opin-
berra starfsmanna. Viðurkenning á samnings-
rétti fékkst svo að ekki orkaði lengur tvímælis
upp úr starfi samninganefndanna 1945 bæði hjá
bæ og ríki.
í beinu framhaldi af viðurkenningu á samn-
ingsrétti er það viðfangsefni, sem lögum um rétt
og skyldur er ætlað að leysa. Meðan réttur opin-
berra starfsmanna til að semja um laun og kjör
er viðurkenndur, en aðstaða til samningsumleit-
ana önnur en hjá öðrum vinnandi stéttum þjóð-
félagsins, hlýtur það að vera þýðingarmesta við-
fangsefni samtakanna að koma þessum málum
í viðunandi horf með því að ákveða með lögum,
hver sé réttur opinberra starfsmanna og hverjar
skyldur lagðar þeim á herðar.
Svar Pólma Jósefssonar:
1. Þau 10 ár, sem B. S. R. B. hefur starfað hafa
margir sigrar unnist til hagsbóta fyrir opinbera
starfsmenn, en ég tel það mikilvægast, að nú
er bandalagið viðurkennt af ríkisstjórn og bæjar-
stjórnum sem fulltrúi meðlima bandalagsins. í
þeirri viðurkenningu felst mjög rnikið öryggi
fyrir einstaklinga og starfshópa að ná rétti sín-
um.
2. Samkvæmt lögum og eðli bandalagsins hljóta
viðfangsefni þess að vera barátta fyrir bættum
launa- og starfskjörum meðlima sinna. En
bandalagið má þó aldrei missa sjónar á því, að
sterkustu rök fyrir bættum launum er trú-
mennska, hæfni og manndómur hvers einstakl-
ings í starf sínu.
STARFSMANNABLAÐIÐ 1 1