Starfsmannablaðið (B.S.R.B.) - 01.12.1951, Qupperneq 16
Alvarlegastir þeirra er mál starfsmanna Lóran-
stöðvarinnar, sem nán'ar verður skýrt frá í fram-
sögu. Hefir bandalagið gert ráðstafanir til máls-
höfðunar á hendur símamálastjórnar út af því
máh.
Launamál starfsmanna ísafjarðarkaupstaðar.
Skömmu eftir síðasta bandalagsþing leitaði
starfsmannafélag Isafjarðarkaupstaðar ásjár
bandalagsstjórnarinnar vegna vanskila _ bæjar-
sjóðs ísafjarðar við starfsmenn sína. Attu þá
margir þeirra vangreitt margra mánaða kaup.
Formaður og varaformaður bandalagsins hófu
þá viðræður við skrifstofustjóra félagsmálaráðu-
neytisins um ráðstafanir til úrbóta, og náðist þá
sá árangur að nokkur úrlausn var veitt í bili.
Bárust þó öðru hvoru kvartanir um vanskil á
launagreiðslum frá starfsmannafélaginu fram til
sumarmála og var þeim jafnóðum komið á
framfæri við ráðuneytið. Síðustu mánuði virðist
þó sem tekizt hafi að kippa málum þessum í
lag í bili að minnsta kosti.
Verðgæzlunefnd.
Samkvæmt lögum frá Alþingi á B. S. R. B
einn fulltrúa í verðgæzlunefnd, er það Þor-
valdur Arnason, féhirðir bandalagsins.
Lagabreytingar.
Á 12. þingi bandalagsins Var kosin nefnd til
að endurskoða lög þess. Skilaði hún tillögum
til breytinga á lögunum, en á 13. þingi var sam-
þykkt að fresta breytingum til að fullnægja 33.
gr. laganna. Þar var íkosin 5 manna milhþinga-
nefnd, er falið var að leita umsagna bandalags-
félaganna á tillögimum. Þetta var gert, og hefur
laganefndin nú lokið störfum og skilað áliti
sínu, sem lagt verður fyrir þetta þing.
Þáttaka í 1. maí hátíðahöldum.
B. S. R. B. var boðin þátttaka í 1. maí hátíða-
höldunum í Reykjavík, ritari þess, Sigurður Ingi-
mundarson var skipaður í undirbúningsnefndina,
en varaformaður, Arngrímur Kristjánsson, var
ræðumaður á útifundinum og formaður banda-
lagsins, Olafur Björnsson, flutti ræðu í ríkisút-
varpið um kvöldið.
Félagatalið.
Á kjörtímabilinu hefur bætzt eitt félag í
bandalagið, er það „Lögreglufélag Suðurnesja",
var það tekið inn á stjómarfundi 18. júní s. 1.,
eru því nú alls 24 félög í bandalaginu, og sam-
kvæmt síðustu ársskýrslum, telja þau innan
sinna vébanda 702 konur og 2344 karla, eða sam-
tals 3046 félaga.
Þar sem bandalagsstjóminni var kunnugt um
að nokkur hluti starfsmanna ríkis og bæjar var
ófélagsbundinn, þá var í febrúar mánuði s. L,
send út áskomn til allra stjóma bandalagsfélag-
arrna, þar sem þau vom hvött til að gera aha
starfsmenn félagsbundna, og þess jafnframt ósk-
að að þau sendu skrifstofunni félagatal sitt,
samkvæmt 6. gr. bandalagslaganna.
Því miður sendu ekki öll félögin félagaskrá
sína, og þær sem bárust voru ófullnægjandi,
aðeins með nöfnum félaganna, en engar aðrar
upplýsingar gefnar, þannig að hugmyndin um
fullkomna spjaldskrá í bandalagsskrifstofunni
yfir alla bandalagsfélagana er ennþá ófram-
kvæmanleg.
Þá var unnið að því í skrifstofunni að athuga
starfsmannaskrá ríkisins, sem fylgdi fjárlaga-
frumvarpinu árið 1951, og með samanburði við
félagatal ýmsra félaganna 'kom glöggt í ljós, að
töluvert vantar á að a'lhr starfsmenn ríkisins
séu félagsbundnir, ekki var unnt að vinna end-
anlega úr þessu, því mikið af félagaskrám vant-
aði, en þetta er nauðsynlegt að gera sem fyrst,
og verður að vera eitt af áhugamálum væntan-
legrar bandalagsstjórnar ,að koma þessu í rétt
horf, því það er óneitanlega veikleikamerki á
samtökunum, meðan hópur ríkis- og bæjarstarfs-
manna stendur utan félaganna og heildarsam-
takanna.
Skrifstofa bandalagsins.
Svo sem kunnugt er, hefur skrifstofa banda-
lagsins í Edduhúsinu, verið opin á þriðjudögum
og föstudögum frá kl. 16 til 19.
Sum félög höfðu lítið samband við skrifstof-
una á stjómarárinu, og fá hafa sent skýrslur
urn það, er gerst hefur innan vébanda þeirra í
ýmsum málum, sem þó nauðsynlegt hefði verið
að fá, til að geta veitt öðrum félögum upplýs-
ingar og leiðbeiningar. Stjómir félaganna ættu
að hafa nánara samband við skrifstofuna, til að
leita eða láta í té upplýsingar í málum, slíkt er
afar gagnlegt einstökum félögum og samtökun-
um í heild.
Þá ætti það að vera föst venja hjá stjórnum
félaganna, að gefa stjórn bandalagsins kost á,
að senda fuhtrúa sinn á aðalfundi eða aðra
fundi, þar sem rædd em ýms mál, með slíku
mætti skapa meiri og betri þekkingu til allra
mála.
Ýmislegt.
Urn það leyti sem bandalagsstjórnin bar fram
þá kröfu, að opinberum starfsmönnum yrði
greidd launauppbót samsvarandi þeirri, er stétt-
arfélög innan Alþýðusambandsins sömdu um við
atvinnurekendur, þá bárust margar áskoranir
16 STARFSMANNABLAÐIÐ