Fréttablaðið - 18.06.2021, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 18.06.2021, Blaðsíða 36
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is Siggi Stormur segir sumarið byrja illa. Síðan má búast við bongóblíðu eftir miðjan júlí og fram í ágúst, sérstaklega fyrir norðan. arib@frettabladid.is „Seinni hluti sumarsins verður góður og Norðurlandið kemur mjög vel inn, sérstaklega eftir miðjan júlí,“ segir Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur, best þekktur sem Siggi Stormur. Fréttablaðið fékk hann til að fara yfir veðrið í sumar þar sem fjölmargir Íslendingar koma til með að ferðast innanlands. Siggi viðurkennir að sumarið hafi byrjað illa. „Byrjunin á þessu sumri hefur gjörsamlega mislukkast. Enda þótt það séu fordæmi fyrir því að það snjói í byggð eftir miðjan júní þá sker þetta sumar sig mjög mikið úr miðað við sumrin á undan sem hafa verið prýðisgóð,“ segir Siggi. Kalt sumar fram í miðjan júlí Spár hans eru ekki gripnar úr lausu lofti, þvert á móti byggi þær á fjöl- mörgum langtímaspám frá veður- stofum beggja vegna Atlantshafsins. „Það eru reiknaðar svokallaðar tíð- arfarsspár, sem ná yfir mánuð eða þrjá mánuði, þær eru ekki mjög full- komnar þó að þær hafi tekið mikl- um framförum frá því fyrir sautján árum þegar ég fór að fylgjast með þeim vandlega. Þær gáfu til kynna að byrjunin á þessu sumri yrði í kaldari kantinum. Þessar sömu spár gera ráð fyrir nokkuð köldu sumri alveg fram í miðjan júlí.“ Spárnar gera ráð fyrir að veðrið verði gott um allt land eftir miðjan júlí og fram í ágúst. „Þetta er ekki fullkomið reiknikerfi en þær gefa tilefni til að ætla að veðrið muni batna. Tíðarfarsspár frá Bandaríkj- unum eru jákvæðari en þær evr- ópsku, þær benda til að júlí verði í meðallagi. Það kom leiðindakafli með mikilli úrkomu í lok júlí í fyrra sem stóð fram í ágúst, það má búast við að það verði einhverjar sveiflur í ár.“ Bongó fyrir norðan „Þegar horft er inn í ágúst þá eru horfur á að það verði gott veður, sérstaklega á Norðurlandi. Bæði verður hann hlýrri en í meðalári og þurrari. Ef þú leggur þetta saman þá eru góðar líkur á að bongóblíða verði á Norðurlandi og Austurlandi í lok júlí og fram í ágúst. Það verður töff sumarveður þar sem menn geta leyft sér að kæla sig í kaldri á eða henda sér út í Eyvindará eins og menn gera gjarnan á Egilsstöðum.“ Siggi segir að það sé erfitt að spá fyrir um einstaka helgar, sérstak- lega verslunarmannahelgina. „Það er ekkert hægt að fullyrða neitt um það. Það geta komið tuttugu góðir dagar, svo nokkrir leiðinlegir sem hitta beint á verslunarmannahelg- ina.“ Veðursæld fyrir austan Siggi segir að sumir staðir séu veðursælli en aðrir. „Það er tilfellið. Almennt er mikil veðursæld á slétt- lendinu í uppsveitum Suðurlands, þar er gott skjól fyrir norðanáttinni. Það er líka veðursæld í Húsafelli, það kemur þó fyrir að það sé skýjað þar á meðan það er bjart utar í Borg- arfirði. Ásbyrgi að sjálfsögðu. Það er veðursæld á Akureyri, vandinn þar er að þegar hafgola leitar inn og breytist í þoku þá snarkólnar,“ segir Siggi. „Þessi veðursældarsvæði eru frekar fyrir norðan og austan, sólin þar er oftast í suðlægum áttum. Þá fá þeir hlýja sól úr suðri og heita vinda af fjöllum.“ ■ Spáir að sumarið muni koma eftir miðjan júlí Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Það er fimm metra hátt fall ofan í Eyvindará. Siggi Stormur segir að það viðri vel til stökks eftir miðjan júlí. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA ÞRIÐJUDAGA KL. 20.00 MATUR OG HEIMILI MEÐ SJÖFN ÞÓRÐAR Lifandi þáttur um matargerð í bland við innanhússarkitektúr, hönnun og fjölbreyttan lífsstíl. Þátturinn er á dagskrá alla þriðjudaga kl. 19.00 Seinni hluti sumarsins verður góður og Norð- urlandið kemur mjög vel inn, sérstaklega eftir miðjan júlí, 22 Lífið 18. júní 2021 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.