Fréttablaðið - 18.06.2021, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 18.06.2021, Blaðsíða 22
Dögg Guðmundsdóttir er í námi í næringarfræði í Háskóla Íslands og að sögn hefur hún sérstaka unun af því að elda. „Ég elska að prófa nýjar uppskriftir, eitthvað sem ég hef aldrei prófað áður, og það þarf alls ekki að vera flókið,“ segir Dögg. johannamaria@torg.is Dögg hefur sniðgengið kjöt og flestar dýraafurðir í nokkur ár og deilir með lesendum uppskrift að meinhollum en sérlega ljúffengum tófúrétti. „Tófú vafðist lengi fyrir mér og ég var búin að reyna oft að elda það en það varð alltaf svo vont hjá mér. Svo ég fór eiginlega bara í fýlu út í tófú. Seinna fór ég að kynna mér tófú betur og las endalaust af ráðleggingum um hvernig væri best að elda það, sem varð til þess að ég tók það aftur í sátt. Tófúið var ekki vandamálið heldur ég, sem var ekki búin að kynna mér það nægilega vel. Núna er ég alveg hætt að vera í fýlu út í tófú,“ segir Dögg. Fylgjandi uppskrift segir Dögg að sé hrærigrautur af mörgum uppskriftum sem hún hefur prófað. „Ég datt niður á þessa samsetningu fyrir stuttu og fannst hún koma rosalega vel út. Mér finnst þetta algert helgarnammi en þetta er líka ótrúlega hollur, góður og nær- ingarríkur réttur. Þetta er virkilega bragðgott og djúsí, alls ekki flókin uppskrift og einfalt að útfæra hana eins og hver vill.“ segir Dögg. „Núna nota ég tófú reglulega í súpur og svo hef ég verið að prófa að nota það í staðinn fyrir kjúkling í uppskriftum sem ég notaði þegar ég borðaði kjöt. Núna er ég mjög spennt að prufa mig áfram með tófú á grillið í sumar.“ Brakandi tófú 1 kubbur firm tófú pressað 3-4 msk. sojasósa Safi úr hálfri sítrónu 1 tsk. sæta (síróp/hunang/púður- sykur …) 1 msk. Sriracha sósa 1 tsk. hvítlauksduft ½ tsk. engiferduft smá klípa af chilidufti (ef vill) 5 msk. maíssterkja Sesamfræ eftir smekk Olía Til að pressa tófúkubbinn er hann vafinn inn í viskastykki eða tau- bleyju og eitthvað þungt og stabílt sett ofan á. Leyfið að pressast í um 45-60 mínútur. Hrærið saman maríneringuna: sojasósa, sítrónu- safi, sætan, Sriracha, hvítlauks-, engifer- og chiliduft. Smakkið til og bætið við Sriracha ef þið viljið hafa sterkara, en sætu ef þið viljið milda bragðið. Skerið tófúkubbinn í munnbitastóra kubba og marínerið í 20-30 mínútur. Takið tófúið frá og fargið maríneringunni. Ef of mikið af henni fer með í næsta skref þá verður tófúið ekki stökkt. Setjið tófúkubbana í hreinan zip- lock poka með maíssterkjunni og sesamfræjunum. Veltið um þar til þeir eru allir húðaðir. Á meðan skal hita olíu á pönnu. Ekki mikið meira en matskeið. Þegar olían er orðin heit skal setja kubbana varlega á pönnuna og steikja í um 3 mínútur á hverri hlið uns þeir verða örlítið gulir. Hnetusmjörssósa 30-40 ml vatn 2 msk. hrísgrjónaedik (eða hvít- vínsedik) 1½ msk. hnetusmjör 1 msk. sojasósa 1 cm af fersku engifer 2 tsk. Srirachasósa 1 tsk. sesamolía Ristaðar hnetur eftir smekk Öllu nema hnetunum er blandað saman í matvinnsluvél/blandara/ með töfrasprota. Best er að byrja á að setja 30 ml af vatni og bæta svo við til að þynna ef þarf. Til að fá smá bit í sósuna er gott að bæta við söxuðum og ristuðum hnetum/ möndlum og hræra út í eftir á. Hægt er að gera barnvænni útgáfu af sósunni með því að sleppa Srir acha og bæta við 1-2 tsk. af kókosmjólk. Salat Spínat eftir smekk ½ lítill haus ferskt rauðkál 3-4 gulrætur 1/2 rauðlaukur ½ agúrka 1/3 pakki vermicelli-núðlur smámaís eftir smekk Eldið vermicelli-núðlur eftir leið- beiningum á pakka. Saxið spínat, skerið rauðkál í strimla, rífið gulrætur í rifjárni, skerið smámaís í bita, saxið rauðlauk smátt og fræhreinsið gúrku og sneiðið hana með flysjara. Blandið grænmetinu saman í skál ásamt hnetusósunni. Berðu fram kóríander Baunaspírur Lime Saxaðar salthnetur Setjið vermicelli-núðlur í skál. Næst kemur salatblandan. Svo eru tófú- bitarnir settir ofan á og allt toppað með baunaspírum, kóríander og söxuðum salthnetum. Gott er að kreista lime yfir. n Ekki lengur í fýlu út í tófú Dögg er spennt að prófa tófú á grillið í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Tófúbitarnir eru dásamlega stökkir og núðlurnar smellpassa með salatinu og hnetusmjörssósunni. Kóríander og lime setur svo punktinn yfir i-ið. Protis Liðir og Protis Kollagen eru íslenskar heilsuvörur sem innihalda hágæðahráefni úr hafinu við strendur Íslands. Protis Liðir hafa reynst vel við lið- verkjum og Protis Kollagen styrkir húð, hár og neglur. Það eru lífsgæði að geta hreyft sig alla ævi, án verkja, en hreyfingin er uppspretta orku og lífsgleði. Protis Liðir og Protis Kollagen eru öflugar heilsuvörur sem styrkja liðina, húð, hár og neglur og vernda bein og brjósk í líkam- anum. Þannig stuðla þessar vörur að bættum lífsgæðum. Best hefur reynst að taka þessa tvennu saman daglega til að fá hámarks- virkni. Protis sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og sölu á lífvirku fiskprótíni úr villtum íslenskum þorski (Gadus morhua), svoköll- uðu IceProtein® og afurðum sem innihalda IceProtein®. Protis Liðir liðka líkamann Protis Liðir er ein vinsælasta varan frá Protis en hún þykir góð fyrir liðina og hefur reynst vel við liðverkjum. Protis Liðir inniheld- ur prótín sem er einungis unnið úr villtum íslenskum þorski, sem gerir það algjörlega einstakt en prótín er mikilvægasta nær- ingarefnið fyrir vöxt og viðhald líkamans. Þorskprótínið í Protis Liðir er unnið samkvæmt IceProtein® tækni sem byggir á vatnsrofs- tækni þar sem prótínin eru með- höndluð með vatni og ensímum og í framhaldi síuð þannig að prótínið samanstendur einungis af smáum, lífvirkum peptíðum. Á þennan hátt verða til svo- kölluð vatnsrofin prótín eða „hydrolyzed protein“. Vatns- Liðkandi fiskprótínblöndur frá Protis Margir hafa tekið Protis Kollagen með góðum árangri en það styrkir húð, hár og neglur. MYND/AÐSEND Protis Liðir hefur reynst mörgum vel við morgunstirðleika og bætt þannig lífsgæði fólks. MYND/AÐSEND Protis Liðir og Protis Kollagen henta einstaklega vel fyrir þá sem stunda mikla hreyfingu. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY rofin prótín eru talin hafa marga heilsusamlega eiginleika. Fyrir það fyrsta nýtast þau líkamanum betur en hefðbundin prótín. Þau eru mun f ljótari að fara í gegnum meltingarveginn og inn í blóð- rásina. Þetta er því oft kölluð „fast acting protein“. Þau eru tilvalin rétt fyrir æfingar og svo strax eftir æfingar. Vatnsrofin prótín eru einnig talin hjálpa til við upptöku ann- arra næringarefna og þá sérstak- lega steinefna. Því getur verið gott að taka vatnsrofin prótín með steinefnum til að auðvelda upp- töku á steinefnum á borð við kalk og magnesíum og bæta þannig endurheimt. Protis Kollagen fyrir húð, hár og neglur Protis Kollagen er einstök blanda af vítamínum og steinefnum sem öll styðja við styrkingu á húð, hári og nöglum. Það er framleitt úr íslensku fiskroði en í því er ein- stakt innihaldsefni, SeaCol®, sem er blanda af vatnsrofnu kollageni úr íslensku fiskroði og vatns- rofnu þorskprótíni úr íslenskum þorski. SeaCol ® tekur þátt í að styrkja vefi líkamans og viðhalda teygjanleika.  Kollagen er algengasta efni líkamans fyrir utan vatn. Það sér til þess að vefir líkamans haldist sterkir og viðheldur teygjanleika vegna einstakrar amínósýrusam- setningar. Sérfræðingar PROTIS þróuðu sinn eigin vinnsluferil og framleiða kollagen úr íslensku fiskroði en fram að því var fiskroð sent úr landi til að vinna úr því kollagen. n Protis Liðir og Protis Kollagen fæst í öllum betri apótekum og stórmörkuðum. 6 kynningarblað 18. júní 2021 FÖSTUDAGURNÆRING OG HEILSA

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.