Fréttablaðið - 18.06.2021, Blaðsíða 6
Ég skrifaði það sem
hann sagði og hann fór
svo og afhenti bréfið
bæjarstjóranum.
Hulda Björk Svansdóttir,
móðir Ægis.
Bréf hins níu ára Ægis Þórs
Sævarssonar þar sem hann
óskar þess að hitta bæjar-
ráð til að ræða um að setja
lyftu við vatnsrennibrautir
í sundlaugina á Höfn vakti
athygli. Móðir hans, Hulda
Björk Svansdóttir, segir það
ekki nógu gott að fötluð börn
geti ekki rennt sér í laugum
landsins.
benediktboas@frettabladid.is
SAMFÉLAG „Ég er ekki verkfræðingur
en það hlýtur að vera hægt að laga
aðgengið að brautunum einhvern
veginn án þess að það sé mjög flókið.
Við verðum að gera betur ef við vilj-
um hafa samfélag þar sem allir geta
tekið þátt í því sem er í boði,“ segir
Hulda Björk Svansdóttir, móðir Ægis
Þórs Sævarssonar sem sendi bæjar-
ráði Hornafjarðar bréf þess efnis að
lyfta yrði sett upp við vatnsrenni-
brautirnar í sundlauginni.
Hulda, sem hefur ferðast víða með
Ægi, segir að engar lyftur séu fyrir
fötluð börn í sundlaugum landsins
þar sem hún hefur komið. Ægir glím-
ir við vöðvarýrnunarsjúkdóminn
Duchenne og finnst fátt skemmti-
legra en að renna sér niður renni-
brautirnar í sundlauginni á Höfn.
Vegna sjúkdómsins er erfitt fyrir
hann að fara margar ferðir og ákvað
hann því að taka málin í sínar eigin
hendur og skrifaði bæjarráði bréf um
hvort mögulegt væri að fá fund með
ráðinu til að ræða við þau um að fá
lyftu við vatnsrennibrautirnar.
„Ég var að spá í hvort við gætum
hist á fundi til að tala um þetta. Það
er út af því að mig langar að geta
farið margar ferðir í rennibraut-
unum með öllum vinum mínum.
Ég get ekki farið margar ferðir ef ég
er labbandi því ég þarf alltaf að hvíla
mig í fótunum reglulega,“ skrifaði
Ægir. Bæjarráð Hornafjarðar lofaði
að taka málið til skoðunar.
Hulda segir að Ægir hafi fengið sig
sem ritara enda hafa þau töluvert
lengi rætt þetta sín á milli. Velt því
fyrir sér hvað væri hægt að gera og
komist að þeirri niðurstöðu að lyfta
væri einfaldasta lausnin. „Svo ákvað
hann að fara og tala við bæjarstjór-
ann með því að senda bréf. Hann tók
málin í sínar hendur sem ég er afar
stolt af. Ég skrifaði það sem hann
sagði og hann fór svo og afhenti
bréfið bæjarstjóranum, Matthildi
Ásmundardóttur.
Ég fór með hann niður á bæjar-
skrifstofu þar sem hann labbaði einn
upp á þriðju hæð og afhenti bæjar-
stjóranum bréfið. Mér fannst það
táknrænt þar sem skrifstofurnar eru
uppi á efstu hæð og tröppurnar álíka
margar og eru í rennibrautunum.“
Hún segir að f leiri foreldrar
fatlaðra barna hafi minnst á þetta
vandamál. „Þegar maður á sjálfur
ekki fatlað barn þá er maður eðli-
lega ekki mikið að hugsa um þessa
hluti en þess vegna vil ég beina
umræðunni að þessu. Þetta á líka
ekkert endilega bara við fyrir yngri
börn eins og Ægi heldur einnig eldri
fatlaða einstaklinga og jafnvel eldra
fólk sem vill nota brautirnar,“ segir
Hulda. n
Nánar á frettabladid.is
Hvergi gott aðgengi fyrir fötluð börn
sem vilja renna sér í vatnsrennibraut
Ægir glímir við vöðvarýrnunarsjúkdóm og þarf því oft að hvíla fæturna. MYND/HULDA BJÖRK SVANSDÓTTIR
arib@frettabladid.is
VIÐSKIPTI Mikil eftirspurn er á hús-
næðismarkaði og enn eru mikil
umsvif á fasteignamarkaði miðað
við árstíma. Samkvæmt nýrri
skýrslu Húsnæðis- og mannvirkj-
astofnunar eru rúmlega 1.900 íbúðir
auglýstar til sölu eða meira en helm-
ingi færri en á sama tíma í fyrra.
Aldrei síðan mælingar hófust
hefur hærra hlutfall íbúða verið
selt yfir ásettu verði. Í apríl seldist
um helmingur allra sérbýla á hærra
verði en ásettu. Á sama tíma hefur
meðalsölutími aldrei verið styttri,
en í apríl á þessu ári var meðal-
sölutími í höfuðborginni aðeins 39
dagar. Til samanburðar voru íbúðir
að meðaltali 78 daga í sölu í apríl
2020.
Páll Heiðar Pálsson fasteigna-
sali segir hann finni fyrir því að
markaðurinn sé að hægja á sér og
tölurnar komi til með að breytast
þegar litið verði til maí og júní. „Ég sé
á notendatölum fasteignavefjanna
að innlit hafa dregist saman um 28
prósent frá því í lok apríl,“ segir Páll.
Hluti af þessu sé árstíðabund-
inn, en megin ástæðan sé ótti við
vaxtahækkanir. „Ég held að vaxta-
ákvörðun Seðlabankans og fréttir
um áframhaldandi hækkun vaxta
og verðbólgu sé að hægja á fólki.“
Heildarmat fasteigna fyrir árið
2022 hækkaði um 7,4 prósent frá
árinu áður. Mesta hækkun er á
Vestfjörðum, en þar hækkar fast-
eignamat um 16,3 prósent. Á höfuð-
borgarsvæðinu hækkar það um 8
prósent.
Fjöldi krana í notkun er mæli-
kvarði á umsvif í byggingum, alls
hafa f leiri kranar verið skoðaðir
á fyrstu fimm mánuðum ársins á
þessu ári en á nokkru öðru ári fyrir
utan þensluárin 2007 og 2008. n
Aldrei hærra hlutfall íbúða selt yfir ásettu verði
Stýrivextir hækkuðu
í eitt prósent í maí.
Landsbankinn hefur
spáð frekari hækk-
unum.
arib@frettabladid.is
MENNING Myndlistarkonan Ólöf
Nor dal var útnefnd Borgar lista-
maður Reykja víkur 2021 af Degi B.
Eggertssyni borgarstjóra við há tíð-
lega at höfn í Höfða í gær.
Út nefningin er heiðursviður-
kenning til lista manns sem með
list sköpun sinni hefur skarað fram
úr og markað sér stök spor í ís lensku
lista lífi. Nýjasta lista verk Ólafar
var afhjúpað nýverið við Mennta-
skólann í Hamra hlíð, ber það heitið
Auga. n
Ólöf útnefnd
borgar lista maður
Ólöf fékk blóm og ágrafinn stein.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
benediktboas@frettabladid.is
REYK JAVÍK Íbúaráð Laugardals
hefur óskað eftir skýringu á því
hvers vegna Reykjavíkurborg hefur
afturkallað loforð sitt um að setja
niður eina lausa kennslustofu við
Laugalækjarskóla næsta haust.
Kennslustofunni var ætlað að
mæta því að skólinn er kominn yfir
þolmörk vegna fjölda nemenda.
Að öllum líkindum þarf að sam-
eina bekki til að hafa húsnæði fyrir
alla nemendur næsta vetur. n
Óska skýringa frá
Reykjavíkurborg
4 Fréttir 18. júní 2021 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ