Fréttablaðið - 18.06.2021, Blaðsíða 3

Fréttablaðið - 18.06.2021, Blaðsíða 3
f r e t t a b l a d i d . i sf r e t t a b l a d i d . i s Við verðum með Janssen á þriðjudaginn og Pfizer á miðviku- daginn. Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgar- svæðisins. 1 1 9 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R F Ö S T U D A G U R 1 8 . J Ú N Í 2 0 2 1 w v HEKLA · Laugavegur 170 · Sími 590 5000 · www.volkswagen.is/id3 Verð frá 4.690.000 kr. Rafmagnaður ID.3 Drægni að þínum þörfum! Hvert ertu að fara? #NúGeturÞú Megináherslan eftir næstu viku verði á að gefa fólki annan skammt bóluefnis. Í kjölfarið verður byrjað að sprauta fólk án kennitölu og þá sem eru með mótefni. thorgrimur@frettabladid.is COVID-19 „Við verðum með nokkra stóra daga í næstu viku,“ segir Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, um horfur í bólusetningum gegn Covid-19 á næstunni. „Við verðum með Janssen á þriðjudaginn og Pfiz- er á miðvikudaginn. Svo stefnum við á að vera með AstraZenica á fimmtudaginn, en við vitum ekki hvað það verður stór dagur. Það fer eftir því hvort stór sending sem er von á verður komin eða ekki.“ Ragnheiður segir að til séu um 9.000 bóluefnaskammtar fyrir hvern þessara daga. Að loknum boðuðum bólusetningum verði opið hús þar sem sprautað verður með afgangsskömmtum. Þá verði næsta vika sú síðasta þar sem meg- ináherslan verði á að gefa fyrsta skammt bóluefnanna en þar á eftir verði áherslan lögð á að gefa fólki annan skammtinn. „Svo förum við að snúa okkur að öðrum hópum, til dæmis fólki sem býr á landinu en er ekki með kennitölu og fólki sem þegar er með mótefni.“ Um þessar mundir hafa um 239.000 einstaklingar verið bólu- settir á Íslandi og eru þar af tæplega 153.800 fullbólusettir. Ragnheiður telur Íslendinga hafa staðið sig vel í bólusetningaátakinu miðað við önnur lönd og segir það meðal annars skýrast af sterkri menningu fyrir bólusetningum á landinu. Að vísu hafi borið á því að færri hafi mætt í sprautur með bólu- efni Janssen en öðrum efnum þótt munurinn sé ekki mikill. „Ég held að flestir Íslendingar séu mjög jákvæðir fyrir bólusetningum. Hlutföll á bólusetningum barna eru yfirleitt á bilinu 90 til 95 prósent. Það er lítið um að fólk sé að hafna Covid-sprautunum eða tilkynna að það sé hrætt við þær, þótt það séu kannski einstaka háværar gagn- rýnisraddir.“ n Allir verði sprautaðir einu sinni fyrir lok næstu viku Það var mikið um dýrðir í kringum 17. júní um allt land í gær þrátt fyrir að veðrið væri ekki upp á sitt besta. Þessir kátu krakkar máluðu sig og stigu dans á Klambratúni í tilefni dagsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI arib@frettabladid.is VIÐSKIPTI Ísland er eftirbátur hinna Norðurlandanna í samkeppnis- hæfni samkvæmt nýjum saman- burði IMD-viðskiptaháskólans í Sviss. Ísland er í 21. sæti af 64 og stendur í stað milli ára. Sýni að við viljum erlendar fjárfestingar benediktboas@frettabladid.is SAMFÉLAG Ægir Þór Svansson, níu ára drengur sem glímir við vöðva- rýrnunarsjúkdóminn Duchenne, hefur óskað eftir að fá lyftu í renni- brautirnar í sundlauginni á Höfn í Hornafirði. Hulda Björk Svans- dóttir, móðir Ægis, segir að f leiri börn séu í sömu sporum. Vill líka fara í rennibrautina Ægir Þór Svansson, níu ára íbúi á Höfn. „Fatlaðir einstaklingar vilja líka fara í rennibrautina í sundlaugum landsins eins og heilbrigt fólk,“ segir Hulda. „Þessir krakkar sem búa oft við svo miklar áskoranir þurfa á allri þeirri gleði að halda sem þau geta fengið í sitt líf. “ n – SJÁ SÍÐU 4 Konráð Guðjónsson, aðstoðar- framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, segir að það þurfi samstillt átak stjórnvalda, atvinnulífs og stéttar- félaga til að ráðast í aðgerðir svo Ísland færist ofar á listann. Búast má við að Ísland færist ofar á listann þegar hagkerfið jafnar sig eftir Covid-faraldurinn. Konráð segir áberandi hvað Ísland kemur illa út þegar kemur að erlendum fjárfestingum. „Það sem er stóra málið þar er að finna f löskuhálsana sem veldur því að erlend fjárfesting er ekki að koma til landsins. Stjórnvöld þurfa að sýna að þau vilji fá erlenda fjárfestingu til landsins. n

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.