Morgunblaðið - 20.04.2021, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 20.04.2021, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 2021 Aðalfundur ÍSTEX hf. verður haldinn miðvikudaginn 21. apríl 2021, kl. 17:00. DAGSKRÁ 1. Almenn aðalfundarstörf sam- kvæmt 15. grein samþykkta félagsins. 2. Heimild aðalfundar fyrir félagsstjórn til kaupa á eigin hlutabréfum. 3. Þróunarmál og hönnun. 4. Önnur mál, löglega upp borin. Ársreikningur er til sýnis á skrifstofu í Mosfellsbæ og er sendur hverjum þeim hlutahafa sem þess óskar. Í samræmi við fyrirmæli stjórnvalda til að stemma stigu við útbreiðslu kórónuveiru verður fyllstu varúðar gætt. Hægt verður að skrá sig á istex.hf@istex.is eða í 566 6300 til að fylgjast með fundinum rafrænt. Umboðsmenn þurfa að leggja fram dagsett og skriflegt umboð. Aðgöngumiðar og fundargögn verða afhent frá skrifstofu félagsins að Völuteig 6 í Mosfellsbæ á fundardag. Mosfellsbæ, apríl 2021. Stjórn ÍSTEX hf. Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Borgarráð samþykkti á síðasta fundi sínum að veita Bjargi íbúða- félagi vilyrði fyrir lóðum undir fjöl- býlishús á tveimur stöðum í borg- inni. Annars vegar er um að ræða lóð á horni Háaleitisbrautar og Safamýrar, gegnt verslunarmiðstöð- inni Miðbæ, og hins vegar á þróun- urreit við Seljakirkju í Breiðholti. Á báðum lóðunum áformar Bjarg að reisa fjölbýlishús með 60 íbúðum. Báðir þessir reitir eru í nýsam- þykktu aðalskipulagi Reykjavíkur frá í mars sl. og mun Reykjavík- urborg vinna deiliskipulag reitanna í samvinnu við Bjarg. Skipulagsvinna er hafin Fram kemur í greinargerð skrif- stofu borgarstjóra og borgarritara að vinna við deiliskipulag lóðar sem afmarkast af Safamýri, Háaleitis- braut og Miklubraut sé hafin. Þá er sömuleiðis umhverfis- og skipulags- svið að vinna við gerð hverfisskipu- lags Breiðholts og er sú vinna langt komin. Gert er ráð fyrir að Félags- bústaðir og almenn leigufélög skipti með sér hluta íbúðanna sem nánar verður ákveðið í úthlutunarbréfi um byggingarréttinn. Á sama fundi borgarráðs voru lagðar fram tillögur matsnefndar vegna umsókna Bjargs um stofn- framlög. Niðurstaða matsnefndar- innar er sú að Bjarg uppfylli öll skil- yrði. Matsnefnd mælir með að borgarráð samþykki umsókn um stofnframlag að upphæð krónur 241.509.898 á grundvelli framan- greinds mats vegna hússins við Háaleitisbraut. Sama upphæð er lögð til vegna fjölbýlishússins í Seljahverfi. Stofnframlag kemur til útborgunar þegar fyrir liggur samn- ingur við Húsnæðis- og mannvirkja- stofnun og við Reykjavíkurborg. Nýbyggingarverkefnum Bjargs við Háaleitisbraut og í Seljahverfi er ætlað að tryggja tekjulágum ein- staklingum og fjölskyldum á vinnu- markaði, sem eru fullgildir félags- menn aðildarfélaga ASÍ eða BSRB, aðgengi að öruggu íbúðarhúsnæði í langtímaleigu. Um er að ræða svo- kölluð leiguheimili að norrænni fyr- irmynd. Með lögum 52/2016 um almennar íbúðir var ákveðið að sveitarfélög og ríkið gætu komið að fjármögnun íbúða á leigumarkaði með framlög- um til sjálfseignarstofnana eða lög- aðila sem ekki eru rekin í hagn- aðarskyni. Bjarg er slík sjálfs- eignarstofnun. Við veitingu stofn- framlags er framlag ríkisins 18% en framlag sveitarfélaga 12% af heild- arkaupverði eða -byggingarkostnaði íbúða. Bjarg fær vilyrði fyrir lóðum undir fjölbýli - Lóðir við Háaleitisbrautina og Seljakirkju í Breiðholti Morgunblaðið/sisi Háaleitisbraut Bjarg fær úthlutaða lóð í framhaldi af húsaröð við Safamýri. Vinir Vatnshólsins komu saman á hólnum á Sjómannaskólareitnum um helgina til að mótmæla fram- kvæmdum við íbúðablokk á horni Vatnsholts og Háteigsvegar. Talið er að um 150 manns hafi látið sjá sig, fullorðnir sem börn. Var áletruðum trékrossum stungið niður í moldina. Vildu íbúar þann- ig benda á með táknrænum hætti að verið væri að taka af leiksvæði barna, sem hafa rennt sér niður hólinn á snjóþotum að vetrarlagi. Á krossunum stóð m.a. „Ævintýrin okkar“ og „Hjarta hverfisins“. Frá því framkvæmdir hófust við blokk- ina fyrir um mánuði hafa börn úr hverfinu tekið sér stöðu við hólinn til að minna á sinn málstað. Ung stúlka í hverfinu bauð borgarstjóra og borgarfulltrúum í útsýnisferð um svæðið sl. laug- ardag. Borgarstjóri mætti og fimm aðrir borgarfulltrúar. Bergrún Tinna Magnúsdóttir, ein tals- manna Vina Vatnshólsins, segir að mótmælunum verði haldið áfram. Kallað verði eftir því að ásýnd hólsins og næsta umhverfis verði bætt. „Við viljum til dæmis fá skýr svör frá borginni á því af hverju 10 metra helgunarreitur Vatns- hólsins sé ekki virtur,“ segir Bergrún. Vatnshóllinn Íbúar úr hverfinu tóku sér stöðu á hólnum um helgina til að mótmæla framkvæmdum við hólinn. Krossum var stungið í moldina. Íbúar mótmæltu á Vatnshólnum - Sex borgarfulltrúar létu sjá sig

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.