Morgunblaðið - 20.04.2021, Page 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 2021
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Fangelsismálayfirvöld í Rússlandi
tilkynntu í gær að þau hefðu flutt
stjórnarandstæðinginn Alexei Na-
valní á sjúkrahús í öðru fangelsi en
því sem hann var upphaflega vist-
aður í, en stjórnvöld í Bandaríkjun-
um sem og Evrópusambandið höfðu
áður hótað Rússum að þeir yrðu
gerðir ábyrgir fyrir því ef Navalní
dæi í haldi stjórnvalda.
Sagði í tilkynningu fangelsisstofn-
unarinnar að ástand Navalnís væri
„ásættanlegt“ og hann hefði sam-
þykkt að taka inn vítamín, en hann
hefur verið í þriggja vikna hungur-
verkfalli. Hefur stofnunin til þessa
neitað læknum Navalnís að skoða
hann. Þá sagði Dmítrí Peskov, tals-
maður Vladimírs Pútín Rússlands-
forseta, að heilsa sakamanna í Rúss-
landi væri ekki málefni sem kæmi
erlendum ríkjum við.
Áhyggjur af Úkraínu
Örlög Navalnís voru meðal þess
sem utanríkisráðherrar Evrópusam-
bandsríkjanna ræddu á fjarfundi
sínum í gær, en þau eru einungis
einn af ásteytingarsteinum vestur-
veldanna og Rússa um þessar mund-
ir. Joseb Borrell, utanríkismálastjóri
Evrópusambandsins, varaði þannig
við því að Rússar hefðu nú um
150.000 manna herafla við landa-
mæri sín að Úkraínu og á Krímskag-
anum, og hefði fjöldinn aldrei verið
meiri.
Dmytro Kuleba, utanríkisráð-
herra Úkraínu, sótti fjarfundinn og
ræddi þar stöðuna sem komin væri
upp. Sagði Kuleba á Twitter-síðu
sinni að hann hefði lagt fram áætlun í
nokkrum skrefum til þess að fæla
stjórnvöld í Moskvu frá því að auka
spennuna frekar. Sagði Kuleba með-
al annars nauðsynlegt að leggja á
frekari viðskiptaþvinganir, sem
beindust að ákveðnum geirum frek-
ar en einstaklingum.
Borrell sagði hins vegar að á þess-
ari stundu væri ekki verið að skoða
tillögur að nýjum refsiaðgerðum
gegn Rússum.
Sendiráðsmenn sendir heim
Þá ræddu ráðherrarnir einnig
stöðuna í samskiptum Rússlands og
Tékklands eftir helgina, en Tékkar
ráku 18 rússneska sendiráðsmenn úr
landi á laugardaginn, og svöruðu
Rússar því með því að reka 20 Tékka
úr landi.
Saka Tékkar sendiráðsstarfs-
mennina um að vera viðriðnir dul-
arfulla sprengingu árið 2014 í skot-
færageymslu tékkneska hersins, en
tveir létust í kjölfar hennar. Var í
fyrstu talið um slys að ræða, en
Tékkar telja sig nú geta sannað að
útsendarar GRU, leyniþjónustu
rússneska hersins, hafi verið þar að
verki. Hafa tékknesk lögregluyfir-
völd lýst eftir tveimur Rússum í
tengslum við sprenginguna, en þeir
eru einnig taldir tengjast eitur-
vopnaárásinni á Skrípal-feðginin í
Englandi árið 2018. Rússnesk
stjórnvöld hafa hins vegar sakað
Tékka um „ögrandi hegðun“.
AFP
Stirð samskipti Josep Borrell ræðir hér við fjölmiðla eftir fjarfund utan-
ríkisráðherra sambandsins, en samskiptin við Rússa voru þar efst á baugi.
Navalní fluttur á sjúkrahús
- Stirð samskipti Rússa og vesturveldanna í brennidepli - ESB segir 150.000
hermenn við landamæri Úkraínu - Tékkar saka GRU um skemmdarverk
Útgöngubann tók gildi hjá íbúum
Nýju-Delí, höfuðborgar Indlands, og
varir það fram til næsta mánudags
vegna stóraukins fjölda tilfella kórón-
uveirunnar. Arvind Kejriwal, ráð-
herra yfir málefnum höfuðborgarinn-
ar, sagði að heilbrigðiskerfi
borgarinnar væri komið að fótum
fram vegna faraldursins, og nauðsyn-
legt væri að grípa í taumana núna.
Rúmlega 15 milljónir manna hafa
smitast af kórónuveirunni á Indlandi,
hið næstmesta af öllum ríkjum, en þar
búa um 1,3 milljarðar manns. Var til-
kynnt í gær um 273.810 ný tilfelli í
landinu, og var það fimmti dagurinn í
röð sem fleiri en 200.000 ný smit voru
greind.
Ríkisstjórn landsins hyggst opna
fyrir bólusetningu fyrir alla fullorðna
einstaklinga frá og með 1. maí næst-
komandi, en nú er hún takmörkuð við
fólk eldra en 45 ára að aldri. Um 65%
þeirra sem smitast hafa að undan-
förnu í landinu eru hins vegar undir
þeim aldri, en vísindamenn greinir á
um hvort það sé vegna frekari
áhættuhegðunar, eða vegna nýs af-
brigðis veirunnar, sem nú hefur rutt
sér til rúms á Indlandi.
Bresk stjórnvöld brugðust við í
gær með því að setja Indland á svo-
nefndan „rauðan lista“, en ekki er
tekið við farþegum frá ríkjunum á
þeim lista nema þeir séu breskir eða
írskir þegnar, og eru þeir skikkaðir til
tveggja vikna dvalar í sóttvarnahúsi.
Bandaríkin á viðkvæmum stað
Bandaríkjamenn fögnuðu því um
helgina að tekist hefði að bólusetja
um helming allra fullorðinna einstak-
linga í landinu minnst einu sinni, og er
nú öllum einstaklingum yfir 18 ára
aldri heimilt að láta bólusetja sig.
Anthony Fauci, sóttvarnalæknir
landsins, varaði hins vegar við því í
fyrrinótt að Bandaríkin væru „á við-
kvæmum stað“, þar sem 7 daga með-
altal nýrra smita væri nú yfir 60.000
talsins. „Við þurfum að gæta að því að
fólk hætti ekki að passa sig og hrósi
sigri of snemma. Nú er ekki rétti tím-
inn til þess.“
Höfuðborgin í
sóttkví í viku
- Bretar loka á ferðalög frá Indlandi
AFP
Bólusetning Nýtt afbrigði á Ind-
landi leggst meira á yngra fólk.
Höfundar nýrrar rannsóknar-
skýrslu sem stjórnvöld í Rúanda
létu gera um þjóðarmorðið árið
1994 segja að Frakkar beri „um-
talsverða ábyrgð“ á því, og að enn
þann dag í dag neiti þeir að við-
urkenna hvert þeirra rétta hlut-
verk var. Segir í skýrslunni að
Frakkar hafi verið „vitorðsmenn“
Hútúa, sem hafi lagt á ráðin um
hreinsanir á allt að 800.000 manns
af ættbálki Tútsa. Þá er því hafnað
að frönsk stjórnvöld hafi ekki vitað
um fyrirætlanir bandamanna sinna
meðal Hútúa fyrir fram.
Skýrslan byggir á fjölmörgum
skjölum og rúmlega 250 vitn-
isburðum um hina hryllilegu at-
burði. Höfundar fundu þó ekki nein
sönnunargögn fyrir því að Frakkar
hafi tekið beinan þátt í fjöldamorð-
unum.
RÚANDA
AFP
Rúanda Þjóðarmorðið í Rúanda 1994
skók heimsbyggðina á sínum tíma.
Segja Frakka bera
umtalsverða ábyrgð
Græningjar í
Þýskalandi út-
nefndu í gær
Annalenu Baer-
bock sem kansl-
araefni sitt, en
hún er annar af
tveimur formönn-
um flokksins. Hin
fertuga Baerbock
er fyrsta kansl-
araefni flokksins,
en Græningjar hafa mælst vel í skoð-
anakönnunum undanfarið. Sagði
Baerbock að hún myndi leggja
áherslu á umhverfisvernd, næði hún
kjöri. Þá sagðist hún vera boðberi
endurnýjunar eftir 16 ára valdatíð
Angelu Merkel.
Gert er ráð fyrir að bandalag
kristilegu demókrataflokkanna
muni útnefna kanslaraefni sitt í dag.
ÞÝSKALAND
Græningjar útnefna
Baerbock til forystu
Annalena
Baerbock
Vísindamenn hjá bandarísku geim-
ferðastofnuninni NASA glöddust
mjög í gærmorgun eftir að þeir náðu
að láta Hugvit, drónaþyrlu sína á
yfirborði Mars, hefjast á loft undir
eigin afli.
Afrekið átti sér stað um hálf-
áttaleytið að íslenskum tíma og lyft-
ist flugfarið um þrjá metra upp af yf-
irborðinu, sveif þar um og lenti eftir
39 sekúndur og einu sekúndubroti
betur. Þyrlan sendir myndir af flugi
sínu til baka til jarðar, en það tók um
þrjár klukkustundir að taka við
þeim. Hér til hliðar má sjá eina af
myndunum sem þyrlan sendi, og
sést þar skuggi hennar vel á yf-
irborði Mars.
Verkefnið hefur verið sex ár í bí-
gerð og sagði MiMi Aung, yfirverk-
fræðingur þess, við teymi sitt að þau
gætu nú loksins fagnað sinni eigin
„Wright-bræðra stund“, og vísaði
þar til fyrstu flugferðarinnar hér á
jörðu árið 1903, en þá náðu bræð-
urnir Orville og Wilbur að fljúga við
bæinn Kitty Hawk í Norður-
Karólínu. Bútur af klæði sem var í
flugvél þeirra var settur í Hugvits-
þyrluna sem heillagripur.
Fyrsta flugferðin á öðrum hnetti
- Hugvitsþyrlan tókst á loft á yfir-
borði Mars og sendi myndir til jarðar
AFP