Morgunblaðið - 20.04.2021, Side 16

Morgunblaðið - 20.04.2021, Side 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 2021 malbikstodin.is | 864 1220 | Flugumýri 26 | Mosfellsbær VIÐ ERUMSÉRFRÆÐINGAR Í MALBIKUN Malbikunarframkvæmdir eru okkar sérsvið. Við tökum að okkur malbikun á bílastæðum, stígum, götum, vegum og hvar sem þarf að malbika. Við tryggjum fyrirtaks þjónustu sem svarar ýtrustu gæða- og öryggiskröfum. Hafðu samband. Hinn 19. mars síð- astliðinn hófst eldgos í Geldingadölum. Hefur ekki farið fram hjá neinum. Gosið er ná- lægt byggð, og þar að auki höfuðborgar- svæðinu, og því var ljóst frá upphafi að margir myndu leggja leið sína að gosstöðv- unum. Björgunar- sveitir landsins hafa komið að gæslu, umferðarstýringu, sjúkraflutningum og öðrum þeim verkefnum sem verða til við atburð sem þennan og hef ég notað nokkra sumarfrísdaga mína í að sinna þessum verkefnum. Mjög gaman og gefandi að taka þátt í því. Nú er það svo að þegar slíkir atburðir hafa staðið lengur en 72 klukkustundir þá greiðir ríkið fyrir vinnuframlag björgunarsveitanna. Um er að ræða samning milli Lands- bjargar og ríkislögreglustjóra, sem er vel. Miðað er við útseldan tíma lögreglumanns og fyrir tæki er greitt samkvæmt kjörum á almenn- um markaði. Ríkið tekur sér langan greiðslufrest Í þessu eldgosi hafa björgunar- sveitir landsins lagt fram mörg þús- und vinnustundir. Bara sveitin mín, Hjálparsveit skáta í Hveragerði, hef- ur lagt fram 431 klukkustund. Grindvíkingar eflaust mörg þúsund og aðrar sveitir eitthvað þar á milli. Við í Hveragerði eigum inni í dag hjá ríkinu um það bil fjórar milljónir króna. En það er ekki sopið kálið þótt í ausuna sé komið. Mér skilst að ríkið gefi sér marga mánuði, stund- um upp í eitt ár, að greiða kostnað sem þennan til björgunarsveita landsins. Veit ekki af hverju, ætli það sé ekki bara af því bara, þau rök sem maður því miður fær af hendi ríkisvaldsins þegar eitthvað er ekki eins og það á að vera. Þetta er auðvitað ekki í lagi og ég mun skoða hvað er hægt að gera til að þetta sé ekki með þessum afar einkennilega hætti. Ætli maður fengi ekki tiltal frá skattinum, jafnvel lögfræðilegar innheimtuaðgerðir, ef maður segðist ætla að hinkra með skatt- greiðslur sínar í nokkra mánuði, jafnvel eitt ár. Bara svona af því bara, af því að maður væri að nota aurinn í eitthvað annað. Því miður er það svo að það hallar yfirleitt, nánast alltaf, á þann sem á í samskiptum/ viðskiptum við ríkið. Af því bara. En þetta þarf auðvitað ekki að vera svona. Við erum ríkið og við erum þau sem byggðum öll þessi kerfi upp. Breytinga er þörf En á jákvæðum nótum í lokin og afsakið neikvæðnina. Eldgosið er ægifagurt og tignarlegt. Jarðfræð- ingum finnst það lítið en það er al- gjörlega þess virði að ganga upp að því á góðum degi. Veðurfar á Ís- landi er mjög misjafnt og getur breyst hratt. Skyggni misgott og gasmengun getur orðið til þess að svæðinu er lokað fyrirvaralaust. Farið og njótið en farið varlega, ég myndi helst ekki vilja hitta ykkur þarna upp frá í einhverri neyð. Eldgosið og aurar Eftir Gísla Pál Pálsson Gísli Páll Pálsson » Því miður er það svo að það hallar yfir- leitt, nánast alltaf, á þann sem á í sam- skiptum/viðskiptum við ríkið. Af því bara. Höfundur er gjaldkeri Hjálparsveitar skáta í Hveragerði. gisli@grund.is Öll börn geta allt og tekið þátt í öllu þar til annað kann að koma í ljós. Börn með „sérþarfir“ er orð- notkun sem tíðkast víða í samfélaginu, bæði í skólakerfinu, æskulýðs- og tóm- stundamálum og tengt þátttöku barna í íþróttum. Ég veit ekki um neitt barn sem er ekki með sérþarfir; fullorðnir eru með sérþarfir, heldri borgarar eru með sérþarfir – við erum öll með sér- þarfir! Öll börn eru með þarfir – ég vil tala um ólíkar þarfir barna. Það er hlutverk okkar fullorðinna að mæta þörfum allra barna, finna lausnir og laga umhverfið að barninu – ekki öfugt. Það er til fullt af flottum snillingum sem þurfa sérstaka nálgun og natni frá samfélaginu svo þeir njóti sín í leik og starfi. Við getum ekki ákveðið að einhver geti ekki verið með. Við verðum að prófa okkur áfram og þora að taka áskorunum til að auka lífsgæði allra barna. Flest börn þora ef þau fá rétta aðstoð og uppbyggilega nálgun. Útfært skólasund Sem dæmi þá getur barn með litla hreyfigetu alltaf tekið þátt í skólasundi. Þó svo að sundnámið verði með aðlögunum og út- færslum þá er barnið að taka þátt í fé- lagslegri athöfn, það tekur þátt í leikjum og stöðvaþjálfun, tekur þátt í umræðum um sundaðferðir, lærir ný orð og hugtök sem notuð eru í sundi og síðast en ekki síst þá er að þessu heilsufars- legur ávinningur fyrir barnið. Það er hlut- verk skólastjórnenda að skapa réttu aðstæð- urnar og umgjörð. Það sama á við um hreyfingu og íþróttir sem fara fram hvort held- ur sem er utandyra eða innandyra. Heilsa er líkamleg, andleg og fé- lagsleg. Þetta er nefnilega allt spurning um viðhorf okkar sem leiðbeinum og hæfileika okkar til að sjá tækifæri í stað vanda – tækifæri fyrir alla. Börn með þarfir – Blár apríl Eftir Sabínu Steinunni Halldórsdóttur Sabína Steinunn Halldórsdóttir » Öll börn eru með þarfir – ég vil tala um ólíkar þarfir barna. Það er hlutverk okkar fullorðinna að mæta þörfum allra barna, finna lausnir og laga umhverfið að barninu – ekki öfugt. Höfundur er M.ed. íþrótta- og heilsu- fræðingur. Færni til framtíðar. Sögu hugans má greina í sameiginlegri dulvitund mannkyns, óminnisdjúpinu. Dul- vitundin birtist í goð- sögnum og trúar- brögðum, sem í fyllingu tímans rötuðu inn í forna speki, bók- menntir, þjóðsögur og ævintýri. Fornleifar hafa einnig merka sögu að segja. Þær elstu eru um fjórtán þúsund ára gamlar. Nú, þegar afdrifaríkra straum- hvarfa gætir í vestrænni menn- ingu, er ekki úr vegi að skoða þessa sögu. Það mætti hugsanlega eitthvað af henni læra um tilurð menningar, kynja og sjálfs. Í upphafi var myrkvað frum- hvolfið, einatt táknað með baugi. Foreldrar alls, himinn og jörð, greindust að. Frumbyggjar Nýja- Sjálands nefndu þá Rangi og Papa. Í þeim áttu öll fyrirbæri náttúr- unnar, guðir og menn, upphaf sitt. Í sköpunarsögunum er foreldr- unum almennt lýst sem tvíkynja (hermafrodite) veru. Í indversku trúarritunum (Up- anishad) stendur: „Við upphaf ver- aldarinnar var Sálin (Atman) alein í mynd veru. Þegar hún svipaðist um, bar ekkert fyrir augu, nema hana sjálfa. Fyrst varð henni að orði: „Ég sjálf.“ … Í rauninni var hún eins mikil um sig og kona og karl, samslungin. Veran skipti sér í tvennt. Þannig urðu til eiginkarl (pati) og eiginkona (patni).“ And- stæður höfðu skapast. (Erich Neu- mann: Uppruni og saga vitund- arinnar.) Í hugarheimi mannkyns varð frjómagn jarðar að konu. Á annan bóginn var jörðin tengd frjósemi, visku, viðgangi, vexti og veiðum, en á hinn bóginn eyðileggingu, tortím- ingu, stríði og gleypni. Það er kvenlyndið, kvensálin. Aftur á móti var himinninn gæddur föðurlegum eigindum, frjósemi, andagift og stríði. Það er karlsálin, karllyndið. Sundurgreiningin opinberast í táknum. Jörðin varð Mikla móðir. Hún var fjöllynd og hafði margar ásjónur. Tunglið varð dæmigert móðurtákn, svo og ýmiss konar holrými og dýr eins og kýr, gylta og dreki. Him- inn varð faðir. Dæmi- gerð tákn föðurins eru sól, snákur, uxi og hross. Fuglinn var sérstakt tákn frjóvg- andi andvara. Hann varð að orði himna- föður. Frjósemi skipaði skiljanlega stóran sess í lífi frummannsins. Honum varð ljóst, að regnið skipti meginmáli fyrir jarðargróðann. Það skýrðist enn frekar, þegar konurnar fóru að stunda landbúnað fyrir rúmlega tíu þúsund árum. Blóð og sæði öðluðust töframátt, bæði í tengslum við æxlun og land- búnað. Blóð var nauðsynlegt fyrir gróður jarðar. Því urðu til frjósem- ishátíðir. Í upphafi var fólki fórnað, síðan dýrum, guðir blótaðir. Frjósem- ishátíðir fólu í sér kyn- og átsvall. Þar réð kvensálin ríkjum í ógn- arafli og algleymi dulvitund- arinnar, sem einkennist af taum- leysi, draumórum og tortímingu. Þessi ásýnd Miklu móður er ófreskjan eða drekinn. Á Vest- urlöndum er hokin, skorpin og hrum kerling táknmynd hennar, ís- lenska Grýla lifandi komin. Á frjósemishátíðunum var reð- urátrúnaður áberandi. Gyðjur skreyttu sig skeggi og belli til að öðlast karlmáttinn. Reðrar karla og dýra voru þurrkaðir til blóta. Konurnar rifu í sig karlana og drukku blóð þeirra. Útvöldum körlum var einkum fórnað, t.d. konungum, sem þótti skorta frjó- semi. Það sama átti við um börn. Það er ekki nema rétt öld síðan mannát var bannað í Eyjaálfu sem og sá siður frumbyggjamæðra í Ástralíu að deyða frumburðinn og leggja sér til munns til að glæða frjósemi sína. Á frumskeiðum sögunnar virðast konur að töluverðu leyti hafa ráðið ríkjum í veröldinni, þ.e. kvensálin, kvenaflið, kvenlyndið. Kvenræðið var umgjörð mannlífsins. Fólk lifði og hrærðist í algleymi dulvitund- arinnar. Gildi karla fólst í frjósemi, vernd og fæðuöflun. Þeir voru fylgi-, ást- og reðursveinar kvenna. Veiðar stuðluðu að hópmyndun meðal karla, bræðralag og karl- mannsvígsla sá dagsins ljós. Lögð var áhersla á þrótt til sálar og lík- ama – og tengsl við lífsandann á himni, hinn glæðandi frjóvgunar- anda, andvarann, sem fyrir tilstilli sólar blés körlum í bjóst áræði og andagift og frjóvgaði konur. Það örlaði á vitund, frumglæði ein- staklingssjálfsins. Maður árroðans var í burð- arliðnum, fyrsti vísir menningar- innar. Háleit karlmennska hafði kviknað. Afreka hennar gætir nú hvarvetna. Baráttunni fyrir sjálf- stæði frá dulvitundarfrenjunni, styrkingu sjálfsins, er dæmigert lýst sem viðureign hetjunnar við drekann. Það er leitin að hinu tor- fundna, stundum hinni eftirsókn- arverðu konu, sem skiptir sköpum fyrir þroskun vitundar og sjálfs. Hetjan er karlkennd, en oft er hin góða móðir bandamaður henn- ar, t.d. í líki systur. Þessi ásýnd Miklu móður birtist sem Soffía eða Fjallkona. Viska Miklu móður birt- ist Grikkjum sem viskugyðjur. Þegar forngríski spekingurinn Só- krates barðist við drekann, kenndi Díótíma frá Mantíneu honum um ástina. Sókrates kenndi skynsemi, Díótíma ást. Þau eiga enn brýnt erindi í mannheimum. Nú eru viðsjár. Vestræn menn- ing á undir högg að sækja. Grafið er undan skynsemi, þekkingu, rök- um og vönduðum vísindum. Í nafni rétttrúnaðar er fólk þaggað niður og því útskúfað og dæmt í útlegð. Grýla kyrjar sinn ófagra söng. Þeirra er þörf. Eftir Arnar Sverrisson » Það er vá fyrir dyr- um vestrænnar menningar; tjáningar- frelsi er fótum troðið, útskúfun er daglegt brauð, skynsemi og vönduð vísindi á undan- haldi. Arnar Sverrisson Höfundur er ellilífeyrisþegi. arnarsverrisson@gmail.com Grýluveldið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.