Morgunblaðið - 20.04.2021, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 20.04.2021, Qupperneq 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 2021 ✝ Páll G. Guð- mundsson fæddist í Reykjavík 30. júlí 1941. Hann lést á heimili sínu 15. mars 2021. Foreldrar hans voru hjónin Sigríður Fanney Sigurð- ardóttir húsmóðir, fædd í Vest- mannaeyjum 30. janúar 1912, d. 28. maí 1968, og Guðmundur Pálsson sjómaður, fæddur á Seyðisfirði 4. maí 1908, d. 12. febrúar 1985. Páll átti þrjú systkini en þau eru Sigurður, f. 1938, Margrét, f. 1944, og Eygló, f. 1953. Páll kvæntist 30. desember 1967 Ástu Jónsdóttur leikskóla- kennara, f. 15. nóvember 1943 á Miðhúsum í Mýrasýslu. Tengda- foreldrar Páls voru Nellý Péturs- dóttir, f. 1. júní 1903, d. 29. apríl 1981, og Jón H. Jónsson, f. 13. september 1898, d. 28. febrúar 1989, bændur á Miðhúsum. Börn Páls og Ástu eru 1) Nellý, f. 26. maí 1967, hennar dóttir er Alexandra Ásta, f. 1995. 2) Sigríð- ur Fanney, f. 27. september 1972, maki Árni Böðvarsson, f. 23. jan- úar 1971. Börn þeirra eru a) Þór- unn Ásta, f. 2001, b) Guðrún Pála, Seyðisfirði. Eftir útskrift frá Vél- skólanum var Páll á Haferninum til ársloka 1967. Þá vann hann í Sameinuðu bílasmiðjunni við breytingar á strætisvögnum áður en hægri umferð var innleidd. Eftir það vann hann í Vélsmiðj- unni Dynjanda þar til hann hóf störf í Vélsmiðju Einars Guð- brandssonar 1970. Þar starfaði hann þar til hann hóf störf hjá hernum á Keflavíkurflugvelli, fyrst á Diesel-verkstæði og síðan í Rafstöðinni. Þegar herinn fór af landi brott var Páli sagt upp störfum. Þá fór hann aftur í Vél- smiðju Einars Guðbrandssonar og lauk starfsævinni þar árið 2011. Páll sat í stjórnum ýmissa fé- laga, má þar nefna Félag járn- iðnaðarmanna og Vélstjórafélag Íslands, þar sem hann var einnig í skemmtinefnd um árabil. Þá var hann í stjórn handknattleiks- deildar KR og formaður ungling- aráðs í mörg ár þar sem hann skipulagði og sá um, ásamt öðr- um, barna- og unglingamót sem KR hélt. Hann var í stjórn og um tíma formaður Dansklúbbs Heiðars Ástvaldssonar, einnig í stjórn hjá dansklúbbnum Kátt fólk. Síðustu ár glímdi Páll við veik- indi og í þeim átti hann athvarf í Ljósinu. KR-messa til heiðurs Páli verð- ur í Seljakirkju í dag, 20. apríl 2021, klukkan 13. Aðeins þeir sem haft hefur verið samband við eru velkomnir í messuna. f. 2004, c) Arna Fanney, f. 2011, 3) Anton Gylfi, f. 19. ágúst 1976, maki Hanna Andr- ésdóttir, f. 2. júlí 1983. Börn þeirra eru 1) Emilíana Guðrún, f. 2008, 2) Jakob Jarl, f. 2011. Dóttir Páls frá fyrra hjónabandi er Dröfn Snæland, f. 28. september 1960, maki Jón Ari Eyþórsson, f. 1961. Börn Drafnar eru 1) Svanhildur, f. 1985, börn hennar eru a) Viktor Berg, f. 2011, b) Soffía Kristey, f. 2014, 2) Eyþór, f. 1992, hans börn eru a) Isabella Karin, f. 2017, b) Talía Móeiður, f. 2020, 3) Eygló, f. 1996. Páll ólst upp í Camp Knox til unglingsára, en þá fluttu for- eldrar hans í Ásgarð 43. Hann gekk í Melaskólann, Gagnfræða- skóla Verknáms og lauk gagn- fræðaprófi þaðan 1957. Hann lærði vélvirkjun í Vélsmiðjunni Héðni og lauk sveinsprófi þaðan 1964. Páll fór í Vélskólann og út- skrifaðist úr rafmagnsdeild 1966. Meistararéttindi hlaut hann 1973. Meðan Páll stundaði nám í Vél- skólanum vann hann á sumrin hjá Síldarverksmiðjum ríkisins á Elsku Palli minn. Hjartans þakkir fyrir lífsdans- inn okkar saman í 55 ár þar af 52 í hjónabandi. Ég vil einnig þakka þér fyrir „dansinn“ sem við stund- uðum saman í yfir 40 ár og færði okkur bæði gleði og góða samveru. Þar réðst þú ferðinni, varst við stjórnina á dansgólfinu eða eins og Heiðar sagði; „daman á að fylgja herranum þótt hann stígi feilspor“. Okkur tókst vel að stíga taktinn bæði í dansinum og lífinu. Þú settir fjölskylduna ætíð í fyrsta sæti, studdir börnin okkar í leik og starfi og vildir hag þeirra sem bestan. Síðan tók við stuðn- ingur við barnabörnin. Þú varst óþreytandi að leika við þau og gæta þeirra meðan heilsan leyfði. Við fjölskyldan erum hamingju- söm yfir að hafa getað uppfyllt þá ósk þína að vera heima síðustu vik- urnar og auðveldað þér þannig síð- ustu sporin á lífsgöngunni. Vertu kært kvaddur, elsku vin- ur minn og eiginmaður. Megir þú lifa í ljósinu og kærleikur Guðs umvefja þig. Þín eiginkona, Ásta. Elsku pabbi minn. Nú kveð ég þig í dag með miklum söknuði ásamt gleði. Gleði yfir því að þú sért nú laus frá þínum þjáningum og gleði yfir öllum þeim minning- um sem ég geymi með mér. Ég bið góðan Guð að geyma þig. Þú varst svo ótrúlega sterkur og kærleiks- ríkur og ég á þér margt að þakka. Í gegnum huga minn fara ótalmarg- ar minningar um það sem við höf- um brallað saman. Þú kenndir mér ýmislegt, eins og til dæmis að skipta um rafmagnskló sem mér þótti ekki merkilegt á sínum tíma en hefur reynst mér vel í gegnum árin. Einnig lærði ég að með- höndla hin ýmsu verkfæri þegar ég var að aðstoða þig við hitt og þetta. Þeir voru margir laugardag- arnir sem við eyddum saman úti í bílskúr og vorum að bóna fjöl- skyldubílinn, þar lærði ég mikið af þér. Þú ólst mig upp sem mikinn KR-ing. Þú fórst með mig unga að árum út í KR þar sem ég fór í knattspyrnuskólann og í fram- haldinu byrjaði ég að æfa fótbolta hjá KR og stuttu seinna líka hand- bolta. Þegar ég byrjaði að keppa með KR þá voruð þið mamma allt- af fyrst til að mæta á völlinn og hvöttuð mig áfram, fyrir það er ég óendanlega þakklát. Þegar þú varst formaður unglingaráðs handknattleiksdeildar KR þá vannstu óeigingjarnt starf sem þú smitaðir okkur systkinin af. Við ferðuðumst mikið saman, bæði innanlands og erlendis. Vorið 2002 ákvaðstu að skella þér í enskuskóla í Englandi og í fram- haldi af því þá komstu í heimsókn til okkar til Jersey þar sem við átt- um yndislegar stundir saman. Þér leið best með fullt hús af þínu fólki og þau voru ófá skiptin sem við hittumst öll saman til að horfa á íþróttir í sjónvarpinu. Afa- börnin þín voru þér mjög kær og elskaðir þú ekkert meira en að fá þau í heimsókn. Ef afabörnin voru að keppa þá voruð þið mamma mætt á svæðið til að styðja þau og skipti þá ekki máli hvort um var að ræða mót á höfuðborgarsvæðinu eða úti á landi, takk fyrir það. Þú varst algjört jólabarn og elskaðir að skreyta húsið með jóla- ljósum bæði innan- og utanhúss. Það var umtalað hvað húsið ykkar var alltaf flott og fínt. Fyrst um sinn sástu alfarið um að setja ljósin upp sjálfur, en síðustu ár þá þáðir þú aðstoð frá okkur öllum í fjöl- skyldunni. Eitt sem auðkenndi alltaf húsið ykkar mömmu er KR-fáninn. Allt- af þegar meistaraflokkar karla og kvenna í knattspyrnu áttu heima- leik þá flaggaðir þú, þannig að það fór ekki framhjá neinum að þarna byggju miklir KR-ingar. Það voru líka margar bílferðirnar á afmæl- isdögum barna minna sem ég fór með þeim til að kíkja hvort afi hefði ekki örugglega flaggað ís- lenska fánanum þeim til heiðurs. Þar klikkaðir þú aldrei og gladdir hjörtu stelpnanna minna mikið. Þú vildir allt fyrir okkur gera og getum við í dag, þegar við kveðjum þig, yljað okkur við allar þær ynd- islegu stundir sem við áttum sam- an. Ég þakka þér fyrir allt elsku pabbi minn, hvíl í friði. Megi gæfan þig geyma, megi Guð þér færa sigurlag. Megi sól lýsa þína leið, megi ljós þitt skína sérhvern dag. Og bænar bið ég þér, að ávallt geymi þig Guð í hendi sér. (Þýð. Bjarni Stefán Konráðsson) Áfram KR, þín dóttir, Sigríður Fanney. Elsku pabbi, ég get varla komið orðum að því hversu sársaukafullt það er að missa þig. Þú barðist við þennan sjúkdóm af þvílíku æðru- leysi pabbi, já þvílíka hetjan. Alveg sama hvað gekk á í þínum veik- indum þá varstu alltaf að passa upp á aðra og láta þeim líða sem best. Já svona varst þú elsku pabbi, þú varst bestur. Börnin eignuðust besta afa sem hægt var að hugsa sér. Ég man þegar ég eignaðist Emilíönu og Jakob hvað þú varst stoltur og glaður. Umvafðir þau kærleik og hlýju. Þú gerðir allt fyrir þau, alveg sama hvenær, en það var bara ein regla, ef það skaraðist ekki á við KR-leik þá varstu alltaf tilbúinn. Allt sem þú gerðir fyrir mig í gegnum tíðina, öll ferðalögin og ævintýrin okkar saman. Alveg sama hvað bjátaði á þá varstu allt- af tilbúinn að koma og laga það sem þurfti að laga, stóra hluti jafnt sem smáa. Í seinni tíð var ég farinn að reyna að gera þetta sjálfur með misgóðum árangri og til þess þurfti ég verkfæri. Þér var farið að leiðast þófið að ég færi að skila þeim þannig að þú varst farinn að gefa mér verkfæri í jólagjafir. Allt- af fannst mér þú og mamma hitta í mark. Síðasta sumar þá mættir þú til Vestmannaeyja á fótboltamót. Þetta gerðir þú þó að heilsan hafi ekki leyft það. Þú ætlaðir og þú skalt, þvílíka harkan. Ég man að ég horfði á þig og hugsaði að ná- kvæmlega svona afi ætla ég að verða. Þú mættir á alla viðburði hjá barnabörnum þínum og alltaf studdir þú þau í gegnum súrt og sætt. Það varst þú sem klappaðir þeim á bakið þegar vel gekk og það varst þú sem leiðbeindir þeim þeg- ar illa gekk. Þú varst besti afinn. Við létum drauminn rætast fyr- ir ári síðan og fórum saman út á leik með mömmu og Emilíönu Guðrúnu. Fyrsti leikurinn erlendis hjá barnabarninu og það var eitt- hvað sem þú ætlaðir ekki að missa af. Everton – Man Utd á Goodison og þú grjótharður Man Utd-mað- ur. Við keyrandi þig um í hjólastól hingað og þangað. Það stoppaði þig ekkert. Þessi ferð mun alltaf sitja í hjarta mínu og mikið er ég þakklátur fyrir þessa stund okkar saman. Elsku pabbi, ég á svo erfitt með að skrifa þessi orð. Þetta tekur mig svo sárt því ég sakna þín svo mikið. Ég gæti rifjað upp enda- laust af sögum og minningum. Hjartað mitt er fullt af góðum minningum sem ég mun geyma alla ævi. Ég trúi því og treysti að það hafi verið tekið vel á móti þér og þú sért umvafinn englum. Þú vakir yf- ir okkur og passar upp á okkur. Passar upp á litlu afagullinn sem þú umvafðir ást og hlýju alveg sama hvað bjátaði á. Takk fyrir allt elsku pabbi, ég elska þig. Bænar bið ég þér að ávallt geymi þig guð í hendi sér. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Þinn sonur, Anton Gylfi. Elsku pabbi minn, mikið á ég eftir að sakna þín en á sama tíma er gott fyrir þig að fá hvíldina, samt svo sárt. Það er margs að minnast, þú varst besti pabbinn sem studdir mig í einu og öllu sem ég tók mér fyrir hendur, hvort sem það var skólinn, dans, handbolti eða hvað sem var. Mér fannst þú vera ofur-pabb- inn og afinn sem gat allt, gerðir t.d. við bílana, málaðir íbúðir fyrir okk- ur systkinin, bjóst til kertastjaka, passaðir dóttur mína nokkurra vikna svo ég gæti klárað skólann svo fátt eitt sé nefnt. Þegar að ég fékk fyrsta klarin- ettið mitt og var að reyna að ná hljóði úr því og æfa mig, komstu stundum og lokaðir hurðinni hljóð- lega, en lést þig ekki vanta með mömmu á allar uppákomurnar og seinna meir á lúðrasveitartónleika þótt þér þætti þetta stundum vera aðeins of mikill hávaði. Ég var 12 ára þegar að ég fór á mína fyrstu handboltaæfingu hjá KR og gladdi það þig mikið enda mikill KR ingur. Ferðirnar úr Breiðholtinu út í KR eru ófáar enda fékk ég mikinn stuðning frá ykkur mömmu og þið tókuð virkan þátt í íþróttabrölti okkar systkina og varst þú fljótlega kominn í ung- lingaráðið hjá handboltanum, sást um „turneringar“ og dómaramál og sendir okkur systkinin á dómara- námskeið sem þú varst búinn að sitja á, svo við gætum tekið þátt og hjálpað þér í mótunum. Þegar að við vorum að keppa voru þið alltaf mætt í stúkuna til þess að hvetja okkur og liðið áfram og síðar barnabörnin, sem þú skráðir öll við fæðingu í KR. Þið mamma voruð svo samstíga, voruð mikið dansáhugafólk og vor- uð í dansskóla í mörg ár enda var dásamlegt að fylgjast með ykkur svífa um dansgólfin, svo glæsileg. Þið mamma voruð einnig dugleg að mæta á KR völlinn og hvetja okkar menn og konur áfram, þú við grind- verkið og við hin í stúkunni og flaggaðir stoltur KR fánanum í Breiðholtinu þegar að meistara- flokkarnir í fótbolta spiluðu heima- leiki. Einnig voru þið alla tíð dugleg að fara í útilegur, ferðir erlendis en það sem veitti þér einna mestu gleðina var samvera fjölskyldunn- ar, jólaljós og flugeldar. Það má með sanni segja að þú hafir verið frekar á undan þinni samtíð hvað varðar að skreyta húsið með jóla- seríum og allskonar jóladóti, flott- asta húsið í Breiðholtinu. Undanfarin ár varstu mikið í Ljósinu, t.d. í ræktinni og að tálga, þar leið þér vel. Elsku pabbi minn, nú kveð ég þig í bili og geri mitt besta í að hugsa um mömmu. Takk fyrir að hafa verið pabbi minn, þín dóttir Nellý. Elsku hjartans afi minn, það sem ég á eftir að sakna þín, bæði í daglegu lífi og á stórum stundum. Þú átt svo stóran hlut í hjarta mínu og munt alltaf gera. Þakklæti er mér efst í huga þeg- ar ég hugsa til þín. Takk fyrir að vera svo miklu meira en bara afi minn. Takk fyrir allar sundferðirnar þar sem þú syntir óteljandi ferðir með mig á bakinu, fyrir öll ljúfu og góðu samtölin okkar um allt og ekkert í gegnum tíðina, fyrir allar útilegurnar, ferðalögin, utanlands- ferðirnar, skemmtilegu brandar- ana þína, böllin hjá Kátu fólki, KR- leikina, hlýju og góðu faðmlögin og bara að njóta tímans saman. Jólin eiga eftir að vera afar tómleg héð- an í frá þar sem við eyddum þeim alltaf saman, alveg frá því að ég fæddist, ég, þú, mamma og amma. Þessar stundir varðveiti ég svo fast í hjarta mínu. Þú studdir mig alltaf í öllu sem ég tók mér fyrir hendur, hvort sem það var handboltamót, tónleikar eða bara í skólanum, þá varstu allt- af tilbúinn að styðja mig og ég kunni svo mikið að meta það. Ég minnist þess þá helst að þú sagðir alltaf við mig að nám væri vinna og að einkunnir væru út- borganir og ég hef tileinkað mér þessi orð frá þér síðan. Enda var ég alltaf svo spennt að segja þér einkunnirnar mínar úr skólanum. Ég hélt alltaf að ég myndi eign- ast börn áður en þú myndir kveðja og að börnin mín fengju að kynn- ast þessum frábæra og yndislega afa sem þú varst, en ég mun halda minningunni um besta afa í heimi lifandi og segja þeim allar sögurn- ar af þér. Ég dáist að því hversu mikil hetja þú varst alveg fram að sein- asta andardrættinum, því mun ég aldrei gleyma, elsku afi minn. Takk fyrir að passa alltaf svona vel upp á mig og ég veit að þú gerir það áfram frá Sumarlandinu. Þín afastelpa, Alexandra Ásta. Í dag kveðjum við kæran bróð- ur! Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Minningar eru dýrmætar, en seinna hittumst við aftur. Ástu og fjölskyldunni sendum við okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Fyrir hönd systkina og maka þeirra, Eygló Guðmundsdóttir. Fallinn er frá heiðursmaðurinn og KR-ingurinn Páll Guðmunds- son. Palli hefði sennilega talið þetta samnefni enda er útilokað að til hafi verið meiri KR-ingur en Palli. Mögulegt er að einhverjir hafi verið jafn miklir KR-ingar en enginn meiri, því það var ekki hægt. Þegar ég byrjaði að æfa fót- bolta og handbolta með KR var Palli allt í öllu í barna- og unglinga- starfinu og í ýmsum mismunandi hlutverkum. Við strákarnir lærð- um fljótt að Palli var maður sem hægt var að treysta á og hann stóð þétt við bakið á okkur, utan vallar sem innan. Við KR-ingar getum seint feng- ið fullþakkað það mikla og óeigin- gjarna starf sem Palli og Ásta hafa alla tíð sinnt fyrir félagið og iðk- endur þess. Það er fólk eins og þau sem gera íþróttafélög að því mikla afli sem þau eru í samfélagi okkar og þótt margir leggi hönd á plóg, eru menn eins og Palli vandfundn- ir og dýrmætir eftir því. Í seinni tíð hittumst við á mannamótum í KR-heimilinu og var þar alltaf jafn gott að hitta Palla og Ástu, hvort sem það var á KR-leikjum, í getraunakaffi eða á Þorrablóti. Þétt handtakið, hlýjan og glettnin í Palla gerði þann dag- inn enn betri. Hann var reyndar stundum aðeins stressaður fyrir leiki og gleymi ég seint einhvern tímann þegar leikar stóðu tæpt og ég sá Palla hreinlega á hnjánum með spenntar greipar að biðja til æðri máttarvalda fyrir hagstæð- um úrslitum. Þessi minning lýsir Palla reyndar ágætlega, ekkert til sparað þegar möguleiki var á að aðstoða KR. Ég votta Ástu og fjölskyldu þeirra samúð mína. Minningin um þennan góða dreng mun lifa lengi. Áfram KR! Einar Baldvin Árnason. Lífsklukka vinar míns, Páls Guðmundssonar, hefur stöðvast og nú skilur leiðir að sinni. Þau eru liðin nokkuð mörg árin frá því við Palli kynntumst, svo mörg að ég man varla hvenær það var. Ég man hins vegar vel hvar við kynntumst og hvers vegna, sem og hvað það var sem tengdi okkur saman. Í gegnum uppáhaldsfélag okkar beggja, KR, lágu leiðir okkar sam- an fyrir margt löngu þegar ég var þá að dunda við að þjálfa ungdóm- inn þar í handbolta. Palli og hans kona, Ásta, voru þar fyrir, ásamt fjölda annarra foreldra og vel- unnara í sterkri bakvarðarsveit handknattleiksdeildarinnar og lögðu á sig ómælda og endalausa vinnu við rekstur yngri flokkanna enda var allt starf deildarinnar með miklum sóma. Palli var þá og síðar alltaf til staðar og ætíð var hægt að leita til hans ef einhverja aðstoð vantaði. Hann var drífandi, uppörvandi og sífellt hvetjandi bæði leikmenn og þjálfara til að ná árangri. Gladdist vel og innilega yfir öllum sigrum sem unnust, en kunni líka að taka ósigrum, þótt erfitt væri að sætta sig við slíka niðurstöðu oft og tíð- um. Palli var KR-ingur með stóru K. Hann fylgdist með öllu starfi innan félagsins, var sífellt að breiða út boðskapinn og hvatti allt- af alla félaga af lífi og sál. Þau hjónin hafa verið áberandi í öllu starfi hjá KR, hafa fylgt félaginu á leiki hvarvetna í öllum greinum og öllum aldursflokkum. Slíkur áhugi er til mikillar eftirbreytni. Samverustundum með Palla fækkaði á seinni árum þegar ég var við störf úti á landi en alltaf voru miklir fagnaðarfundir þegar við hittumst. Síðustu árin hittumst við síðan reglulega á Kanarí, en þar dvöldu þau hjónin sér til gagns, hressingar og gamans nokkrar vikur á hverjum vetri. Síðast vorum við þar samferða fyr- ir um ári og þó að Palli væri vissu- lega þrotinn kröftum þá tók hann þátt í mörgu af því sem þar er í boði þar fyrir ferðalanga og alltaf var stutt í glensið og gamanið hjá honum líkt og fyrr. Að leiðarlokum, þegar ég hugsa til allra þeirra góðu stunda sem ég átti með Palla, þá vil ég þakka fyrir þær allar af heilum hug því þær voru mér eins og öðrum KR-ing- um mikils virði. Elsku Ásta mín. Um leið og ég þakka þér og Palla fyrir samfylgd- ina undanfarin ár þá sendi ég þér, börnunum ykkar og barnabörnum innilegar og einlægar samúðar- kveðjur. Minningin um stórbrotinn og mætan mann, mikinn karakter og skemmtilegan og sannan KR-ing lifir í hjörtum okkar allra. Áfram KR. Karl Rafnsson. Kveðja frá Knattspyrnufélagi Reykjavíkur Í dag kveðjum við mætan KR- Páll G. Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.