Morgunblaðið - 20.04.2021, Síða 20

Morgunblaðið - 20.04.2021, Síða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 2021 ✝ Rúdólf Pálsson, viðskiptafræð- ingur, kennari og ljóðskáld, fæddist 7. október 1931 í Lyngfelli í Vest- mannaeyjum. Hann lést á hjúkrunar- heimilinu Eir 10. apríl 2021. Faðir Rúdólfs var Páll Oddgeirsson, kaupmaður og út- gerðarmaður í Vestmannaeyjum, f. 5. júní 1888, d. 24. júní 1971. Foreldrar Páls voru hjónin séra Oddgeir Þórðarson Guðmundsen prestur á Ofanleiti, f. 11. ágúst 1849, d. 2. janúar 1924, og kona hans Anna Guðmundsdóttir, f. 9. júní 1848, d. 2. desember 1919. Móðir Rúdólfs var Ragnhildur Skaftadóttir, vinnukona í Lyng- felli, f. 8. febrúar 1904, d. 12. október 1939. Foreldrar hennar voru Skafti Gíslason, bóndi á Suður-Fossi í Mýrdal, f. 2. janúar 1874, d. 17. júní 1924, og kona hans Margrét Jónsdóttir hús- freyja, f. 24. apríl 1877, d. 3. ágúst 1912. Hálfsystkini Rúdólfs samfeðra eru Richard Pálsson, f. 27. sept- ember 1920, d. 4. mars 1994, Ís- leifur A. Pálsson, f. 27. febrúar 1922, d. 14. desember 1996, Odd- geir Pálsson, f. 22. desember 1923, d. 2. júní 2019, Anna Reg- ína Pálsdóttir, f. 16. maí 1928, og Bergljót Pálsdóttir, f. 19. janúar 1933, d. 28. nóvember 2017. Hálfbróðir Rúdólfs sammæðra var Grétar Skaftason, f. 26. októ- ber 1926, d. 5. nóvember 1968. Rúdólf var með móður sinni í Eyjum, en fluttist með henni að Suður-Fossi í Mýrdal 1934. Eftir andlát hennar 1939 ólst hann upp hjá Sigurjóni Skaftasyni, bónda á Suður-Fossi, V.-Skaft., móður- bróður sínum og fósturföður, f. 27. október 1902, d. 14. apríl 1950, og Guðbjörgu Nikulásdótt- ur, bústýru hans á Suður-Fossi. Rúdólf tók landspróf við Hér- aðsskólann á Laugarvatni og lauk stúdentsprófi frá Menntaskólan- um í Reykjavík 1954. Hann lauk prófi í forspjallsvís- indum 1955 og cand. oecon.-prófi í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands 1958. Hann stund- aði framhaldsnám við viðskiptaháskól- ann Norges Hand- elshøyskole í Björgvin í Noregi 1959-60 og naut í því efni náms- styrks frá norskum stjórnvöldum til að kynna sér norskt atvinnulíf, einkum siglingar og skipaútgerð. Rúdólf var kennari við Barna- og unglingaskólann á Blönduósi 1962-63, Gagnfræðaskólann í Keflavík 1963-64, Barna- og mið- skólann á Dalvík 1964-65, Barna- og unglingaskólann í Ólafsvík 1965-66, Barna- og miðskólann á Patreksfirði 1969-70, Gagn- fræðaskólann á Sauðárkróki 1970-71 og Barnaskólann og mið- skólann í Bolungarvík 1971-72. Hann stundaði síðan ýmis störf í Reykjavík, einkum skrifstofu- störf, en lét af störfum vegna heilsubrests 1989. Rúdólf var mikilvirkt ljóð- skáld. Ljóðabækur hans eru: Á svörtum reiðskjóta, Rvík 1973, Í víngarði Drottins, Rvík 1988, Í vitund minni, Rvík 1992, Heaven and Earth, Rvík 1994, Ved Hor- isonten, Rvík 1994, Veðrabrigði, Rvík 1995, Hnattskot og stjörnu- salli, Rvík 1995, Orðskviðir og at- hugasemdir, Rvík 1998, Die Welt und ich, Rvík 1999 og Henad ska- pelsens vei, Rvík 1999. Allar voru bækurnar gefnar út af höfundi. Síðustu æviárin eða frá lokum október 2016 dvaldi Rúdólf á hjúkrunarheimilinu Eir en áður átti hann heimili á Laugavegi 133. Rúdólf var ókvæntur og barn- laus. Útför Rúdólfs Pálssonar verð- ur gerð í kyrrþey að ósk hins látna. Ég vil minnast nokkrum orð- um föðurbróður míns Rúdólfs Pálssonar viðskiptafræðings, kennara og ljóðskálds. Hann fæddist 7. október 1931 í Lyng- felli í Vestmannaeyjum og lést á hjúkrunarheimilinu Eir 10. apríl sl. Barn að aldri missti Rúdólf móður sína en hún var síðast sjúklingur á Vífilsstöðum. Hann var fyrstu árin með móður sinni í Eyjum, en fluttist með henni að Suður-Fossi í Mýrdal 1934. Ólst hann upp að miklu leyti án sam- vista við föður sinn. Eftir andlát móður sinnar 1939 ólst Rúdólf upp hjá móðurbróður sínum Sig- urjóni Skaftasyni, bónda á Suður- Fossi, sem gekk honum í föður- stað, og Guðbjörgu Nikulásdótt- ur, bústýru hans á Suður-Fossi. Rúdólf tókst að brjótast til mennta, gekk í góða skóla og naut handleiðslu mikilhæfra kennara. Hann varð stúdent frá Mennta- skólanum í Reykjavík 1954 og lauk kandídatsprófi í viðskipta- fræði frá Háskóla Íslands 1958. Lokaritgerð hans við HÍ ber heit- ið Almennir eignarskattar á Ís- landi. Hann stundaði framhalds- nám við Norges Handelshøyskole í Björgvin í Noregi 1959-60. Á árabilunum 1962-66 og 1969- 72 starfaði Rúdólf víða um land sem kennari barna og unglinga. Hann stundaði síðan ýmis störf í Reykjavík en átti löngum við heilsuleysi að stríða. Rúdólf Pálsson var mikilvirkt ljóðskáld. Auðunn Bragi Sveins- son skáld og bókmenntarýnir segir frá kynnum sínum af Rúdólf í einni af þremur greinum sem hann ritaði um ljóðabækur hans í dagblaðið Tímann á 10. áratug liðinnar aldar. Þá hafi Rúdólf fyr- ir nokkrum árum sent frá sér ljóðakverið Á svörtum reiðskjóta. Greinar Auðuns Braga veita gott yfirlit um bækur Rúdólfs og hann hikar ekki við að kalla hann skáld þótt þögnin hafi leikið um verk hans. Bækur Rúdólfs eru sumar hverjar miklar að vöxtum. Þær eru ortar á fjórum tungumálum auk íslensku. Auðunn Bragi segir Rúdólf yrkja með hefðbundnum hætti, og þó mjög fjölbreytileg- um. Um Rúdólf segir Auðunn Bragi hann vera „mótaðan af fjöl- menni og menntastofnunum, þó hann sé raunar hálfgerður ein- fari“. Annarri grein sinni lýkur Auðunn Bragi svo: „Ég hef kynnt ljóðskáldið Rúdólf Pálsson.“ Ljóðagerð Rúdólfs sýnist bera vott um skarpan og leitandi huga og kannski viðleitni til að rjúfa þögn og einangrun. Á efri árum naut Rúdólf ómet- anlegs stuðnings frændsystkina sinna, Guðbjargar, Ingu og Skafta Guðbergsbarna, en Þór- hildur móðir þeirra var móður- systir Rúdólfs. Síðustu árin naut Rúdólf umhyggju starfsfólks á hjúkrunarheimilinu Eir. Áður átti hann heimili á Laugavegi 133 og kallar Auðunn Bragi Sveinsson hann skáldið hjá Hlemmi „– og sést þar oft“. Við hæfi er að greinarlokum að vitna í þessar línur Rúdólfs Páls- sonar sem er að finna í bók hans Veðrabrigði: Vorsins heimur vaknar og hjalar, víðáttan opnast, heiðríkjan blá mænir til jarðar og móvindur talar við moldarbarn sitt, hið veika strá: Nú hvílir þú aftur við barminn bláa og brennur af þrá eftir regni og sól og þú ert fyrirmynd þeirra stráa, sem þekja í vaxtarþrá laut og hól. Ég færi ástvinum Rúdólfs inni- legar samúðarkveðjur. Guð blessi minningu Rúdólfs Pálssonar. Ólafur Ísleifsson. Rúdólf Pálsson ✝ Stefanía Svein- björnsdóttir fæddist í Reykjavík 30. apríl 1932. Hún lést á hjúkrunar- heimilinu Grund 31. mars 2021. Foreldrar henn- ar voru Súsanna María Grímsdóttir, f. 6. febrúar 1906, d. 14. maí 1987, og Sveinbjörn Karl Árnason kaupmaður, f. 2. júlí 1904, d. 17. mars 1990. Systur Stefaníu eru Erna Ingibjörg Mathiesen, f. 1936, og Karólína Björg, f. 1940. Stefanía giftist Einari Flygen- ring 1956, þau skildu. Hann lést árið 2000. Börn þeirra eru : 1. Anna María Flygenring, f. 6. ágúst 1956, bóndi, gift Tryggva Steinarssyni, f. 9. mars 1954, bónda. Þau búa í Hlíð í Reykjavík. Hún fór í stutt nám til Danmerkur á hússtjórn- arskóla og einnig í enskunám til Bretlands. Stefanía bjó fyrstu hjóna- bandsárin í Reykjavík en síðar á Dalvík, í Hveragerði og Stykk- ishólmi. Þau hjónin fluttu til Hafnarfjarðar 1974. Eftir skiln- að þeirra bjó Stefanía í Hafnar- firði þar til hún fór á Hjúkr- unarheimilið Grund þar sem hún dvaldi síðustu þrjú ár ævinnar. Stefanía var húsmóðir og móðir en vann þó oft hlutastörf með því. Henni stundaði hann- yrðir af ýmsu tagi. Í Stykkis- hólmi vann hún á skrifstofu Frystihúss Sigurðar Ágústs- sonar í hálfu starfi. Eftir að hún flutti til Hafnarfjarðar vann hún á endurskoðunarskrifstofu í fullu starfi fram á eftirlauna- aldur. Hún naut eftirlaunaáranna, gat ferðast bæði innan og utan- lands auk þess að dvelja oft hjá dóttur sinni í Hlíð og í bústað yngri systkinanna í Borgar- firði.Útförin fer fram frá Garða- kirkju í dag, 20. apríl 2021, klukkan 13. Skeiða- og Gnúp- verjahreppi. Dætur þeirra eru: a) Jó- hanna Ósk, f. 1981, börn hennar eru Kolbrá Kara, Valur Ísak, Þorkell Breki. b) Helga Katrín, f. 1984, d. 2018, maki Jón Levy Guðmundsson, börn þeirra eru Árún Emma og Sivía Lára, c) Guðný Stefanía, f. 1991. 2. Súsanna Sigríður Fly- genring, f. 7. febrúar 1960, upp- lýsingafræðingur og garð- plöntufræðingur. 3. Sigurður Flygenring, f. 26. febrúar 1963, flugvirki. Stefanía ólst upp á Hávalla- götu 35 í Reykjavík. Hún gekk í Landakotsskóla sem barn og unglingur og lærði til stúdents- prófs í Menntaskólanum í Minning um góða konu. Hugsanirnar fljúga og minn- ingarnar um mömmu koma ein af annarri. Hún fékk að kveðja dag- inn fyrir skírdag og var hvíldinni fegin. Þakklætið er efst í hugan- um og eftirsjá að góðri konu. Mamma var sífellt að, öll elda- mennska og kökubakstur lék í höndum hennar, ekki var haldin sú veisla innan fjölskyldunnar að hún legði ekki til góðmeti af öllu tagi. Þrátt fyrir að hún ynni fullan vinnudag á skrifstofu, og færi svo í hesthúsið um helgar. Því hún var hestakona, sat hesta sérlega fal- lega og umgekkst þá af góð- mennsku og skilningi, enda mikill dýravinur. Hún sagði mér söguna af Lubba í Hlíð, þegar hún var kaupakona þar. Hann var þreytt- ur og gamall og þá bar hún hann heim. Síðar spunnu örlögin þann vef að ég varð bóndi og húsfreyja í Hlíð, og þá lágu leiðir hennar oft austur. Umhyggja hennar fyrir dætrum okkar Tryggva var ein- stök og fyrir öllu sem var verið að gera á bænum. Hún tók þátt í garðræktinni, reytti arfa og hreinsaði beð, tók upp gulrætur og kartöflur með okkur og svo fór hún í réttir á árum áður, helst ríð- andi og gaf það oft í skyn eða sagði beinum orðum að hún hefði nú al- veg viljað fara oftar á hestbak. En verkin eru mörg á sveitabænum og útreiðar ekki alltaf fremst á verkalistanum. Mamma skildi það auðvitað vel. Svo var það handavinnan, það voru bútasaumsverkin, sem við setjum upp um hver jól, útsaum- aðir harðangurs- og klausturdúk- ar og púðar, prjónaðar peysur á systurnar og langömmubörnin og hekluðu dúlluteppin, sem eru ger- semar. Fleira mætti nefna eins og útsaumaðir stólar. Enda var mamma meira fyrir að hlusta á út- varp og tónlist af plötum en að fylgjast með miðlum í tölvu. Hún ætlaði bara ekki að læra á slík tól. Þó vann hún við tölvubókhald lengst af. Hún æfði sig á píanóið og hafði mikið yndi af sinfóníutón- leikum og leiksýningum, reyndi að komast á þær þegar tækifæri gafst. Ég undrast það mjög hve mikið hún komst yfir og þó er enn ótalið, hún var í Kvenfélaginu Hringnum í Hafnarfirði, ekki bara sem óbreytt félagskona heldur var gjaldkeri og síðar skoðunar- maður reikninga um árabil. Vin- konur hennar nutu líka góðs af lip- urð hennar og þegar sumar þeirra gátu ekki lengur ekið bíl, fannst henni sjálfsagt að skutla þeim. Henni fannst líka gaman að keyra og gat það sem betur fer langt fram eftir aldri eða þar til sjónin sagði henni að keyra bara í góðu skyggni og ekki að vetrinum. Bíl- ferðir með Sigga voru hennar besta skemmtun eftir að hún var komin á hjúkrunarheimilið á Grund og þá var minnið óbrigðult: „Þú átt að beygja hér, Siggi.“ Nú er komið að leiðarlokum og mamma lögð til hinstu hvílu í garði sem er umkringdur litlum túnum, þar sem hestar eru á beit og fjaran og sjórinn blasa við. Hafðu þökk fyrir allt og allt, elsku mamma. Anna María Flygenring. Þegar ég kveð kæra tengda- móður, Stefaníu Sveinbjörnsdótt- ur, rifjast upp fyrir mér samtal sem við Hlíðarfólk áttum fyrir nokkrum áratugum. Tilefnið var að Níní eins og hún var alltaf köll- uð var að leita að starfi á bæ fyrir Önnu Maríu dóttur sína sem var á leið í bændaskóla og þurfti að fá smá innsýn í landbúnaðarstörf áð- ur en námið hæfist. Faðir minn heitinn hafði kynnst henni þegar hún var hér í sveit sem kaupakona og það var ekki laust við að röddin væri ofurlítið meyr og blik í auga þegar hann sagði frá þessari glað- væru og lipru stúlku sem virtust allir vegir færir. Vegna fyrri kynna af henni var það honum kappsmál að gera þeim mæðgum þennan greiða sem gekk eftir. Varla þarf að taka það fram að þetta stutta samtal hafði afleiðing- ar ekki bara fyrir okkur Önnu heldur alla fjölskylduna. Níní rifjaði oft upp þessa sum- ardvöl sína hér í Hlíð og leyndi því ekki hvað staðurinn varð henni kær strax við fyrstu kynni. Hér gat hún skroppið á hestbak sem hún hafði mikið yndi af og fékk besta reiðhestinn á bænum sem var Jörp sem mér skilst að hafi verið mikill viljagammur. Seinna þegar hún var sest að í Hafnarfirði hélt hún lengi hesta og hér fyrir austan hafði hún gaman af að skreppa á bak langt fram eftir aldri. Nýlega rakst ég á mynd sem segir meira en mörg orð um hana. Þar situr hún Ask sem er stærsti hestur sem okkur hefur fæðst. Er það með ólíkindum hvernig þessi kona sem var ekki há í loftinu hef- ur komist á bak svo stórum hesti, þá komin á efri ár en alltaf var hún létt á sér og lipur í hreyfingum. Nú á kveðjustund er manni efst í huga þakklæti fyrir að hafa kynnst þessari konu og fyrir allt sem hún hefur gert fyrir okkur. Endalaus vilji að hjálpa til og leggja lið. Eldamennska, þrif, slát- urgerð og þannig mætti lengi telja og ófáar voru ferðirnar út í garð. En efst á blaði hjá henni var samt fjölskyldan og velferð hennar. Þannig minnumst við hennar. Tryggvi Steinarsson. Elsku amma mín og langamma, alltaf samt kölluð amma Níní, nú hefur þú yfirgefið þessa jarðvist, ert laus undan líkamlegri þreytu og gleymsku og minningar hrann- ast upp hjá okkur hinum. Fyrstu minningarnar mínar af þér eru all- ar úr sveitinni þar sem þú eyddir löngum stundum einkum á sumrin enda bæði dýraunnandi mikill og með græna fingur. Það var alltaf mikill vorboði þegar þú mættir á svæðið og fórst að hreinsa til í garðinum og enginn var röskari eða viljugri til að reyta arfann en þú. Að loknu góðu dagsverki í garðinum var svo ekkert annað en sjálfsagt mál að hreinsa til í eld- húsinu frá a til ö, þar með talið endurraða í alla skápana. Oftast var það þannig að í lokin höfðu all- ir hlutir verið færðir til og enginn fann neitt, helst af öllu var þetta gert með svolítið miklu skarki svo að öllum væri ljóst að nú væri amma Níní mætt. Þetta bara til- heyrði heimsóknum þínum og svo var setið við handavinnu á kvöldin, prjónað, heklað, blásið í gler eða saumuð föt á barbie-dúkkur. Ég held svei mér þá að það sé ekki til það handverk sem þú ekki gast unnið. Algjör fyrirmynd ef þið spyrjið mig. Það var ekki lítið á þig lagt þeg- ar unglingurinn ég ákvað að leggja land undir fót og fara í menntaskóla í Hafnarfirðinum og hefja menntaskólagönguna bú- andi í litla herberginu á Miðvang- inum. Þessa þraut leystir þú með prýði eins og ég held allt í þínu lífi þó svo að svona eftir á hafi ég kannski ekki alltaf sýnt mínar bestu hliðar í sambúð okkar. Ég eignaðist góðar vinkonur í skólan- um sem kynntust þér vel og við fráfall þitt núna sögðu þær allar sem ein „hún amma þín var ynd- isleg kona“. Á engan annan hátt var hægt að lýsa þér. Svo var það matseldin, krakk- arnir mínir tala enn um steikta fiskinn í raspinu og munu sjálfsagt alla tíð minnast þín fyrir þennan frábæra mat. Pönnukökurnar, skúffukakan, bananatertan og heitu réttirnir. Það var ekki veisla í fjölskyldunni nema þessar kræs- ingar mættu á svæðið frá þér og það langt fram á níræðisaldurinn. Krakkarnir mínir eiga kannski ekki jafn margar minningar og ég, en þau voru mér sammála um að þær væru allar góðar. Það voru al- gjör forréttindi fyrir mig með krakkana litla að íbúðin okkar var bara hinum megin við götuna þar sem þú sast löngum stundum við eldhúsgluggann og fylgdist með öllu og öllum og það voru ófá skiptin sem þú reddaðir einhverj- um krakkanum sem hafði læst sig úti. Þá má ég til með að minnast einnar heimsóknarinnar á Grund sem því miður urðu allt of fáar en það var af hattaballinu þar sem ég, Kolbrá og þú dönsuðum við harmonikku-undirspil allar með hálffáránlega hatta á höfðinu. Þú söngst og trallaðir og kunnir öll lögin og hikaðir ekkert við að láta hinar skrautlegustu glósur um hina dansarana falla. Við skemmt- um okkur allar konunglega, hver á sinn hátt. Ég er alveg viss um að nú sitjið þið Helga systir saman, mjög lík- lega með prjóna eða heklunál á lofti og þið gætið okkar hinna um ókomna tíð. Ástarþakkir fyrir allt amma mín og kveðjur yfir móðuna miklu, Jóhanna og börnin. Í dag kveðjum við Níni eftir langan ævidag. Við vorum þrjár systurnar, Níní, Kæja og ég, sem ólumst upp á Hávallagötu 35. Á uppvaxtarár- unum bjuggu þar móðurforeldrar okkar Stefanía og Grímur afi í kjallaranum og yfir veturinn, í ömmuherbergi, amma Ingibjörg, milli þess sem hún dvaldi vestur í Miðhúsi og Ólafsvík. Á sumrin fór Níní ung með ömmu vestur. Þar kynntist hún lífinu á Snæfellsnesi, fólki, skepnum, landi og útiveru sem alla tíð síðan var hennar kær- leiksmál. Það er margs að minnast á langri ævi. Við gengum báðar í Landakotsskóla og síðar urðum við samferða til Kaupmannahafn- ar á námskeið í heimilisfræðum. Þar bjuggum við á heimavistinni í Den Suhrske Husmoderskole og áttum saman fróðlegan og skemmtilegan tíma, sem enn yljar hjartað. Við Níni kynntumst mök- um okkar á svipuðum tíma og úr því varð systrabrúðkaup. Æskuheimili okkar var alla tíð miðstöð stórfjölskyldunnar. Þar var öllum, ættingjum og vinum, tekið opnum örmum. Oft á tíðum var margt um manninn, ævinlega mikið fjör og líflegar umræður. Þar styrktust vinabönd og ættar- tengsl. Við systur eignuðumst börn á svipuðum tíma og nutum gjarna samvista á Lynghól við Álftavatn á sumrin. Kynni barnanna efldust og styrktust síðan á Hávallagöt- unni á menntaskólaárum þeirra. Þar áttu þau skjól og samastað hjá foreldrum okkar, Sveinbirni og Súsönnu, á ýmsum skeiðum þroska og uppvaxtar á leið inn í fullorðinsárin. Níní og fjölskylda hennar bjuggu lengst af úti á landi. Þau fluttust til Hafnarfjarðar árið 1974 og styrktust þá aftur systra- böndin. Við gengum saman í Kvenfélagið Hringinn í Hafnar- firði þar sem við tókum virkan þátt í starfinu. Þar voru, auk fjár- öflunar og góðgerðarmála, skipu- lagðar sumar- og leikhúsferðir, þar sem við nutum góðs fé- lagsskapar. Allt sem Níní tók sér fyrir hendur gerði hún af miklum myndarskap. Hún var dugnaðar- forkur sem féll aldrei verk úr hendi. Níní sinnti alla tíð áhuga- málum sínum og vinnu af sömu elju. Sérstaklega er minnisstætt hve hestamennskan var henni mikilvæg og sameinuðust þar áhugamál hennar, barna hennar og síðar barnabarna. Níní undi sér alltaf vel hjá dóttur sinni, Önnu í Hlíð. Þar, í sveitasælunni, leið henni best í samvistum með fjöl- skyldunni, náttúrunni og skepn- unum. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (Valdimar Briem) Að leiðarlokum þökkum við af heilum hug samfylgdina og send- um Önnu Maríu og fjölskyldu, Sú- sönnu og Sigurði okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning þín. Erna Ingibjörg og fjölskylda. Stefanía Sveinbjörnsdóttir - Fleiri minningargreinar um Stefaníu Sveinbjörns- dóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.